Mun beita sér fyrir björgun Icelandair þegar réttindi og kjör starfsfólksins verða tryggð

Formaður VR seg­ist ætla að beita sér af krafti fyrir björgun Icelandair þegar stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins hafa tryggt fram­tíð félags­manna VR án þess að gengið verði á rétt­indi þeirra og launa­kjör.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR. Mynd: Hringbraut

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, segir í stöðu­upp­færslu á Facebook í dag að hann muni beita sér af krafti fyrir björgun Icelandair þegar stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins hafa tryggt fram­tíð félags­manna VR án þess að gengið verði á rétt­indi þeirra og launa­kjör.

Hann hefur gagn­rýnt harð­lega stjórn­endur Icelandair á und­an­förnum vikum en hann sagði þann 11. maí síð­ast­lið­inn að aldrei hefði verið mik­il­væg­ara en nú að standa í lapp­irnar og verja rétt­ind­i launa­fólks. „Við erum í raun­veru­legu stríði um lífs­kjör okkar og fram­tíð. Starfs­fólk Icelandair stendur nú í fremstu víg­línu í þessu stríði. Ekki til að bjarga sínu eigin skinni heldur fyrir okkur öll,“ sagði hann.

Ragnar Þór hafði áður minnst á að leitun væri að stjórn­endum sem stigið hefðu fleiri feil­spor í fyr­ir­tækja­rekstri og stjórn­endur Icelanda­ir. Þeir hefðu þó nú náð „að toppa sig, ótrú­legt en satt, með árásum á sitt eigið starfs­fólk sem er hið raun­veru­lega verð­mæti fyr­ir­tæk­is­ins“.

Hvaða leið vilja Íslendingar fara?

Ragnar Þór bendir á í stöðu­upp­færsl­unni á Facebook í dag að rætt hafi verið um að flug­fé­lög­in Blá­fugl og Play geti fyllt í skarðið fari svo að Icelanda­ir verði gjald­þrota. Þannig væri hægt að halda uppi flug­sam­göng­um til og frá land­inu tíma­bundið. En hann spyr hvort þetta sé virki­lega leiðin sem Íslend­ingar vilji fara.

„Fá hér flug­fé­lög í skatta­skjóls­braski sem veigra sér ekki við að úthýsa störfum til Indlands eða Fil­ipps­eyja eða hverra landa sem rétt­indi og laun eru lægst fyrir mestu vinn­una? Setja svo rest­ina á gervi­verk­töku í gegnum starfs­manna­leigur?“ spyr for­mað­ur­inn.

Hann segir jafn­framt að þó ekki sé nema út frá flug­ör­ygg­is­sjón­ar­miðum þá hljóti metn­aður Íslend­inga að vera meiri en þetta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár