Innviðir Hafnarfjarðar komnir að þolmörkum vegna þjónustu við flóttafólk

Hafn­ar­fjörður hefur ítrekað komið því á fram­færi við félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neytið und­an­farið að sveit­ar­fé­lagið geti ekki tekið á móti fleira flótta­fólki í bili. Samt hafi rík­is­stofn­anir komið upp úrræðum þar án sam­ráðs við bæj­ar­yf­ir­völd.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson er félags- og vinnumarkaðsráðherra.
Guð­mundur Ingi Guð­brands­son er félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Bæj­ar­stjórn Hafn­ar­fjarðar sam­þykkti í dag harð­orða ályktun þar ábyrgð á þjón­ustu við flótta­fólk er vísað til félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neyt­is­ins.

Í álykt­un­inni segir að Hafn­ar­fjarð­ar­bær hafi frá árinu 2015 verið eitt þriggja sveit­ar­fé­laga lands­ins sem gert hefur samn­ing við rík­is­valdið um mót­töku ein­stak­linga í leit að alþjóð­legri vernd, en hin tvö eru Reykja­vík og Reykja­nes­bær. Auk þess hefur bæj­ar­fé­lagið tekið á móti stórum hópi flótta­fólks í gegnum sam­ræmda mót­töku, en önnur sveit­ar­fé­lög sem gera það eru Akureyri, Árborg, Reykja­nes­bær og Reykja­vík.

Þessum verk­efnum seg­ist Hafn­ar­fjarð­ar­bær hafa sinnt af alúð og metn­aði og að mikil sér­þekk­ing hafi skap­ast innan sveit­ar­fé­lags­ins vegna þessa. „Nú er svo komið að hátt í 200 börn sem hafa komið til lands­ins á flótta eru í grunn- og leik­skólum Hafn­ar­fjarðar og leggur bæj­ar­fé­lagið mikla áherslu á að sinna þeim ein­stak­lingum vel. Und­an­farna mán­uði hefur Hafn­ar­fjarð­ar­bær ítrekað komið því á fram­færi við félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neytið að bær­inn geti ekki tekið á móti fleira flótta­fólki í bili þar sem inn­viðir sveit­ar­fé­lags­ins séu fyrir all nokkru komnir að þol­mörkum, sér­stak­lega hvað skóla­þjón­ustu og stuðn­ing til barna varðar.“

Ríkisstofnun sett upp úrræði án samráðs

Þrátt fyrir þetta hafi flótta­fólki án samn­ings við bæj­ar­fé­lagið fjölgað um nokkur hund­ruð á síð­ustu vikum. „Fólkið er hingað komið og búsett í úrræðum sem Útlend­inga­stofnun hefur komið upp í bæj­ar­fé­lag­inu algjör­lega án sam­ráðs við bæj­ar­yf­ir­völd. Í erindum bæj­ar­ins til ráðu­neyt­is­ins hefur því skýrt verið komið á fram­færi að úti­lokað er að Hafn­ar­fjarð­ar­bær geti tekið við fleira flótta­fólki og veitt því þá þjón­ustu sem lögum sam­kvæmt búsetu­sveit­ar­fé­lag­inu ber að gera, sbr. skóla­þjón­ustu til barna. Þar sem við­ræður og erindi til ráðu­neyt­is­ins og Útlend­inga­stofn­unar hafa ekki skilað árangri, er ábyrgð­inni á veit­ingu þjón­ust­unnar hér með vísað til félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neyt­is­ins. Hafn­ar­fjarð­ar­bær skor­ast alls ekki undan þátt­töku í verk­efn­inu og vill sinna því vel áfram með hags­muni flótta­fólks og hæl­is­leit­enda að leið­ar­ljósi. Ríkið verður hins vegar að standa undir sinni ábyrgð í mál­inu og koma til móts við bæj­ar­fé­lögin sem hafa tekið að sér þessi verk­efni.“

[adspot]Í álykt­un­inni segir að bæj­ar­fé­lag­inu beri lögum sam­kvæmt að gæta hags­muna allra barna sem nú þegar eru í leik- og grunn­skóla­kerf­inu. „Vegna skorts á sam­ráði þola inn­viðir sveit­ar­fé­lags­ins hins vegar ekki frek­ari fjölgun flótta­fólks án samn­ings og óskar Hafn­ar­fjarð­ar­bær því eftir því að félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neytið taki ábyrgð á því að við­eig­andi þjón­ustu við flótta­fólk verði sinnt.“

Reykjanesbær líka kominn að þolmörkum

Meiri­hluti bæj­ar­stjórnar Reykja­nes­bæjar sendi frá sér ályktun um sam­bæri­legt efni í síð­ustu viku. Þar kom fram að rík­is­stofn­anir hefðu komið sér upp leigu­hús­næði sem rúmi á fimmta hund­rað ein­stak­linga á flótta, í Ásbrú­ar­hverfi, umfram þá um 270 sem sveit­ar­fé­lagið þjón­ustar nú þegar án þess að fjár­magn hafi fylgt til grunn­stoða sam­fé­lags­ins. Fyrir vikið séu allir inn­viðir komnir að þol­mörkum. „Það er algjör­lega ótækt að sam­ráð ríkis og sveit­ar­fé­lags sé ekki betra og að ekki séu tekin til greina mál­efna­leg rök sem borist hafa frá Reykja­nesbæ.“

Í álykt­un­inni, sem birt var á vef Vík­ur­frétta, sagði enn fremur að í huga meiri­hlut­ans sé ein­ungis ein lausn á mál­inu, sem hafi margoft verið rædd áður. „Hún er að reglu­gerð verði lögð fram um að sveit­ar­fé­lög á stór­höf­uð­borg­ar­svæð­inu taki við ákveðnum fjölda ein­stak­linga miðað við íbúa­fjölda hvers þeirra. Ljóst er að þetta gengur ekki lengur með núver­andi skipu­lagi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár