Staðan í stjórnmálunum galopin

Flokk­arnir sem mynd­uðu síð­ustu rík­is­stjórn misstu 11 þing­menn, miðað við stöð­una eins og hún er núna. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn yrði með áber­andi stærsta þing­flokk­inn eins og mál standa núna.

Þó Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sé sig­ur­veg­ari kosn­ing­anna, þegar horft er til heild­ar­fylgis, þá er erfitt að greina ein­hverjar sér­stakar póli­tískar sveiflur í þeim tölum sem komið hafa upp köss­unum á þessum tíma­punkti.

Staðan er galopin og erfitt að segja hvaða flokkar gætu náð saman, en ekki er þó búið að telja allt ennþá brog eyt­ingar geta vita­skuld komið fram alveg fram á síð­ustu stundu.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er með 25,5 pró­sent, Vinstri græn 16,9 pró­sent, Sam­fylk­ingin 12,8, Framsókn 10,7, Mið­flokk­ur­inn 10,2, Píratar 8,8, Flokkur fólks­ins 7,5, Viðreisn 6,4 og Björ fram­tíð 1,1 pró­sent.

Flokk­arnir sem mynd­uðu rík­is­stjórn Bjarna Bendikts­sonar hafa tapað 11 þing­mönnum, eins og mál standa nú. Sjálf­stæð­is­menn fjórum, Björt fram­tíð öllum fjórum og Viðreisn þremur.

Mið­flokk­ur­inn og Flokkur fólks­ins hafa fengið 11 sam­tals, miðað við stöð­una eins og hún er núna. Flokkur fólks­ins fimm, og Mið­flokk­ur­inn 6.

Meiri­hluti þeirra var eins manns meiri­hluti, 32 á móti 31 í stjórn­ar­and­stöðu.

Ómögu­legt er að segja hvaða meiri­hluti mun mynd­ast í rík­is­stjórn­ar­sam­starfi, og mátti glöggt heyra það á leið­togum stjórn­mála­flokk­anna í sjón­varps­sal.

Bjarni Bene­dikts­son sagði meðal ann­ars að staðan væri for­dæma­laus, og nú þyrfti að anda rólega og skoða hvernig mætti koma á sam­starfi flokka og koma saman rík­is­stjórn.

Miðað við stöð­una núna fengi Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn 17 þing­menn, Vinstri græn 11, Sam­fylk­ingin 8, Mið­flokk­ur­inn 6, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn 7, Píratar 5 og Flokkur flokks­ins 5.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár