Ekki víst að það sé mikið raunverulegt framboð af seðlabankastjóraefnum

Seðla­banka­stjóri segir að margir telji sig hæfa til að gegna starfi sínu, en hann er ekki viss um að raun­veru­legt fram­boð af kandídötum sé jafn mikið. Hann ætlar alls ekki að sækj­ast eftir end­ur­kjöri og hlakkar til að hætta.

Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri mun ekki verða skip­aður aftur í emb­ættið þegar öðru skip­un­ar­tíma­bili hans lýkur í ágúst 2019. „Ég hlakka mjög til að hætta.“ Þetta kom fram í sjón­varps­þætti Kjarnans á Hring­braut sem frum­sýndur var i gær­kvöldi.

Már segir að hann hafi á sínum tíma sagt að hann ætl­aði sér að losa höftin áður en að hann hætti. Enn sé „smá aflandskrón­ustabbi eftir“ og allur hafta­laga­bálk­ur­inn virkur. Hann sér fyrir sér að það muni taka lungað af þessu ári að klára þessi mál, þótt end­an­lega ákvörðun um það liggi hjá Alþingi. Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neðan:

Hann telur að fólk geti ekki setið mjög lengi í stóli seðla­banka­stjóra. „Mitt mat er það að í gamla daga var hægt að vera 30 ár í starfi sem þessu. En það er ekki hægt lengur. Það er tími fyrir allt.“

Már segir að þótt nægt fram­boð sé af fólki sem telur sig geta orðið næsti seðla­banka­stjóri þá sé ekki víst að raun­veru­legt fram­boð af kandídötum í starfið sé mikið.

Ætlaði mögulega að hætta fyrir lok skipunartímans

Már var upp­haf­lega skip­aður í stöðu seðla­banka­stjóra árið 2009. Hann var svo end­ur­skip­aður í starfið 2014, á miklum umróts­tíma þegar enn átti eftir að klára lyk­il­mál tengd losun hafta. Miklar vanga­veltur voru um það í aðdrag­anda skip­unar hans hvort að hann nyti stuðn­ings þáver­andi stjórn­ar­flokka, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks, sem þá mynd­uðu rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar.

Í frétta­til­kynn­ingu sem send var út 15. ágúst 2014, þegar Már var end­ur­ráð­inn kom fram í skip­un­ar­bréfi Bjarna Bene­dikts­sonar, þáver­andi og núver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, að vinna væri hafin við heild­ar­end­ur­skoðun laga um Seðla­banka Íslands. Búist var við því að end­ur­skoð­unin myndi leiða af sér breyt­ingar varð­andi stjórn­skipun bank­ans, t.d. fjölgun seðla­banka­stjóra að nýju, og að staða Más yrði því aug­lýst til umsóknar á ný áður en fimm ára skip­un­ar­tími hans myndi renna út.

[adspot]Már sagði í frétta­til­kynn­ing­unni að hann teldi rétt að upp­lýsa í þessu sam­bandi að hann hefði „í nokkur ár haft hug á að skoða mögu­leik­ann á að hverfa á ný til starfa erlendis áður en ald­urs­mörk hamla um of. Ég taldi ekki heppi­legt að gera það nú í ljósi ástands­ins og verk­efna­stöð­unnar í Seðla­bank­anum auk fjöl­skyldu­að­stæðna. Þetta mun breyt­ast á næstu miss­erum. Það er því óvíst að ég myndi sækj­ast eftir end­ur­ráðn­ingu komi til slíks ferlis vegna breyt­inga á lögum um Seðla­banka Íslands á næstu miss­erum.“

Nefnd um heild­ar­end­ur­skoðun á lögum um Seðla­banka Íslands skil­aði af sér í sept­em­ber 2015. End­ur­skoðun á starf­semi bank­ans hefur ekki átt sér stað.

Katrín skipar næsta seðlabankastjóra

Þegar rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar var mynduð í byrjun árs 2017 voru mál­efni Seðla­banka Íslands færð úr fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu yfir í for­sæt­is­ráðu­neytið. Þau fylgdu þar með Bjarna sem færði sig á milli sömu ráðu­neyta. Ef sú rík­is­stjórn hefði setið heilt kjör­tíma­bil hefði það orðið hlut­verk Bjarna að skipa næsta seðla­banka­stjóra. Rík­is­stjórnin lifði hins vegar ekki árið og sprakk um miðjan sept­em­ber 2017.

Í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum eftir síð­ustu kosn­ingar lagði Katrín Jak­obs­dóttir, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans, áherslu á að mál­efni Seðla­banka Íslands yrðu áfram í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu eftir að hún myndi taka við því. Það varð ofan á. Hún mun því skipa eft­ir­mann Más þegar að því kemur. Þ.e. ef rík­is­stjórnin situr enn á þeim tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár