Nýhættur að skúra þegar hann fékk tilnefningu til Óskarsverðlauna

„Fangar hjartað“ var skrifað um Ljósbrot í Overly Honest Movie Reviews – í einni af fjölmörgum lofsam­legum umfjöllunum um myndina – og þau orð lýsa henni vel. Myndin er nú sýnd á Íslandi, um leið og hún fer sigurför um heiminn. „Ég geri það sem ég vil. Það hefur verið mitt móttó,“ segir leik­stjórinn Rúnar Rúnarsson sem var á fyrsta ári í kvikmynda­skóla þegar hann var tilnefndur til Óskars­verð­launanna.

Ljósbrot hlaut standandi lófaklapp sem opnunar­mynd á kvikmynda­hátíðinni í Cannes. Og nýverið var myndin útnefnd besta norræna kvik­myndin þegar hún hlaut aðal­verðlaun kvikmynda­hátíðarinnar í Osló – fimmtu alþjóð­legu verð­launin.

„Við gerum það sem við þurfum að gera,“ segir Rúnar á sinn einlæga en þó ákveðna hátt þegar hann er spurður út í feril sinn.

„Ég held að flest okkar sem vinnum í einhverju skapandi gerum það út af ástríðu, ekki veraldlegri praktík. Það er ekki sjálf­gefið að svoleiðis gangi eftir til að byrja með. Maður á vini og kunningja sem eru rithöfundar, myndlistar­menn og tónlistar­fólk – alls konar! Og veit að það er sama þótt fólk gangi líka í skóla að það er ekki sjálf­gefið við útskrift að það geti haft í sig og á og átt einhvern feril. Það þýðir ekki endilega að lista­maður sé ekki góður lista­maður. Alls ekki! Oft og tíðum lít …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár