Útlán bankanna ekki vaxið jafnhratt frá hruni

Bæði inn­lend og erlend útlán íslenska banka­kerf­is­ins uxu tölu­vert milli júní­mán­aða, en aukn­ingin hefur ekki verið jafn­mikil á árs­grund­velli frá hruni.

Útlán frá íslensku bönkunum þremur auk annarra innlánsstofnanna hefur aukist hratt á síðustu tólf mánuðum.
Útlán frá íslensku bönk­unum þremur auk ann­arra inn­láns­stofn­anna hefur auk­ist hratt á síð­ustu tólf mán­uðum. Mynd: Samsett

Lántaka fólks og fyr­ir­tækja hjá íslenskum banka­stofn­unum hefur ekki auk­ist jafn­hratt frá hruni, ef miðað er við árs­grund­völl. Þetta kemur fram ef rýnt er í hag­tölur Seðla­banka Íslands sem birt­ust í gær.

Samkvæmt hag­töl­unum aukast umsvif íslenskra banka nokkuð milli mán­aða, en í júní námu eignir inn­láns­stofn­anna tæpum 3.600 millj­örðum króna og hækk­uðu um 48,2 millj­arða frá mán­uð­inum á undan. Þar af námu inn­lendar eignir um 3.200 millj­örðum, en erlendar eignir um 401 millj­örðum. Inn­lendar skuldir hækk­uðu um 42,2 millj­arða í mán­uð­inum og námu 2.329 millj­örðum, en erlendar skuldir námu 653,7 millj­örðum og hækk­uðu um 456 millj­ónir.

Ef litið er sér­stak­lega á útlán banka­kerf­is­ins, þá stóðu þau alls í 2.730 millj­örðum í lok júní. Þar af voru inn­lend útlán banka­kerf­is­ins 2.556 millj­arðar króna og juk­ust um 12% frá því á sama tíma og í fyrra. Sömu­leiðis juk­ust erlend útlán um 32,7%, eða úr 132 millj­örðum í 175 millj­arða. Þetta eru stærstu hækk­anir útlána á árs­grund­velli frá fjár­mála­hrun­inu árið 2008.

Góð­ær­is­tím­inn á árunum rétt fyrir hrun ein­kennd­ist af stór­auk­inni skuld­setn­ingu, en frá 2005 til 2008 juk­ust inn­lend útlán að jafn­aði um 50% á ári og erlend útlán tvö­föld­uð­ust á hverju ári. Á árunum rétt eftir hrun tók svo við nokkur sam­dráttur í útlána­starfi bank­anna, og eftir það stöð­ugur en hægur vöxtur inn­lendra útlána um 5% á ári og sveiflu­kenndur sam­dráttur erlendra útlána.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár