Tíu góð tíðindi á árinu 2020

Við fyllt­umst stolti, keppt­umst um ketti, lásum fleiri bækur og bök­uðum sem aldrei fyrr. Við gengum flest í vinn­una – alla leið inn í stofu – þar sem við líka tog­uðum okkur og teygðum á meðan við biðum eftir heim­boði frá Helga Björns.

Frétta­árið mikla 2020 er senn liðið. Árið sem hefur verið und­ir­lagt af válegum tíð­indum inn­an­lands sem utan. Því hefur örsmá veira með gadda og griparma valdið, veira sem tekið hefur sér ból­festu í lík­ömum millj­óna manna en hugum okkar allra.

En árið hefur líka verið gríð­ar­lega lær­dóms­ríkt og ýmsar fréttir, bæði sem tengj­ast far­aldr­inum beint og aðrar sem gera það alls ekki, hafa hlýjað okkur um hjarta­rætur og sýnt mátt manns­ins við að takast á við erf­iðar aðstæður og flókin verk­efni.

Kjarninn tók saman nokkur atriði sem sann­ar­lega er hægt að gleðj­ast yfir þó að sum þeirra hafi ekki komið til af góðu.

1. Vísindin efla alla dáð

Vís­inda­menn um allan heim sneru bökum saman og þró­uðu bólu­efni á met­hraða gegn far­sótt­inni sem umlék alla okkar til­veru. Þeir deildu gögnum sínum, unnu dag­ana langa – brutu heil­ann sem aldrei fyrr. Árangur þessa erf­iðis er sá að þegar er farið að bólu­setja gegn COVID-19, sjúk­dómnum sem yfir 78 millj­ónir jarð­ar­búa hafa fengið í ár og tæp­lega tvær millj­ónir lát­ist úr.

2. Saman erum við sterkari

Fréttir af fádæma sam­stöðu fólks, sam­fé­laga, ríkja og allrar heims­byggð­ar­innar, skutu reglu­lega upp koll­inum í ár. Tug­þús­undir sjálf­boða­liða tóku þátt í próf­unum á nýjum bólu­efnum en sá hluti lyfja­þró­unar er oft ástæða þess að langan tíma tekur að koma þeim á markað. Bæði lyfja­fyr­ir­tæki og ríki tóku svo mörg hver höndum saman um að deila drop­unum dýr­mætu jafnt til sem flestra – óháð stétt og stöðu.

Fjölmörg fyr­ir­tæki um allan heim, sem alla jafna eru í sam­keppni, tóku höndum saman við að þróa og fram­leiða hluti sem brýn þörf var á í far­aldr­inum, svo sem grímur og önd­un­ar­vélar.

Götur voru nær auðar og ferða­lög voru sett á bið þegar far­ald­ur­inn kom upp. Fólk vann og stund­aði nám heima, frestaði útskrift­ar­ferðum, afmælis-, ferm­ingar- og brúð­kaups­veislum. Íslensk sótt­varna­yf­ir­völd hafa ítrekað sagt að sam­staða íslensku þjóð­ar­innar hafi verið það sem skil­aði þeim árangri sem náð­ist í bar­átt­unni gegn veirunni.

Starfsfólká gjörgæsludeild Landspítalans í fyrstu bylgju faraldursins Mynd: Þorkell Þorkelsson/Landspítali
Starfs­fólká gjör­gæslu­deild Land­spít­al­ans í fyrstu bylgju far­ald­urs­ins Mynd: Þorkell Þor­kels­son/Land­spít­ali

3. Æfingin skapar meistarann

Tón­skáldið Hildur Guðna­dóttir fyllti okkur ítrekað stolti í upp­hafi árs er hún hreppti hver stór­verð­launin á fætur öðrum fyrir tón­list sína í kvik­myndum og sjón­varps­þáttum. Grammy, Emmy, Golden Globe og Óskarinn sjálfur.

Í lok árs var það svo heill hópur kvenna sem náði árangri fyrir Íslands hönd sem belgdi brjóst okkar enn á ný út af ein­skæru stolti: Kvenna­lands­lið okkar í knatt­spyrnu tryggði sér þátt­töku á Evr­ópu­mót­inu árið 2020.

Hildur Guðnadóttir rakaði inn verðlaunum í byrjun ársins. Mynd: EPA
Hildur Guðna­dóttir rak­aði inn verð­launum í byrjun árs­ins. Mynd: EPA

4. Allt fór í hund og kött

Hjarta margra stækk­aði á árinu og Facebook-síður troð­fyllt­ust af aug­lýs­ingum frá fólki sem vildi kett­linga og hvolpa. Þetta varð til þess að ekk­ert mál var að finna heim­ili fyrir fer­fætlinga, m.a. villi­ketti og kett­linga þeirra. Rekstr­ar­stjóri Katt­holts sagði að í ár hafi verið sleg­ist um ketti. Hann sagði að lík­lega vildi fólk finna „nýja fjöl­skyldu­með­limi“ í hinu óvenju­lega árferði. „En fólk verður algjör­lega að gera sér grein fyrir því að þetta er ekki skamm­tíma­lausn fyrir ein­hvern sem leið­ist. Það þarf að passa upp á ketti og gefa þeim mikla ást og hlýju í fimmtán til átján ár.“

Fjölmargar kisur fengu framtíðarheimili á árinu 2020.
Fjöl­margar kisur fengu fram­tíð­ar­heim­ili á árinu 2020.

5. Ber er hver að baki nema sér bróður eigi

Heil­brigð­is­starfs­fólk sýndi og sann­aði í far­aldr­inum hvers það er megn­ugt. Með ósér­hlífni og þekk­ingu að vopni var það í fremstu víg­línu bar­átt­unnar gegn COVID-19 um allan heim. Á Land­spít­ala og fleiri sjúkra­stofn­unum sam­ein­uð­ust allir í því verk­efni að verj­ast veirunni og veita sýktum þá bestu heil­brigð­is­þjón­ustu sem völ var á. Álagið var mikið og vakt­irnar margar og langar. Hundruð Íslend­inga skráðu sig einnig í bak­varða­sveit heil­brigð­is­kerf­is­ins og buðu fram aðstoð sína.

Sama var upp á ten­ingnum á öðrum stofn­unum á borð við öldr­un­ar­heim­ili og á heim­ilum fatl­aðra. Aldrei áður hafa Íslend­ingar fundið það jafn skýrt hversu mik­il­vægu hlut­verki þeir sem sinna aðhlynn­ingu og hjúkrun gegna í okkar litla sam­fé­lagi.

Starfsmenn Landspítalans hvöttu okkur til að vera heima.
Starfs­menn Land­spít­al­ans hvöttu okkur til að vera heima.

6. Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur

Við lærðum að meta margt af því sem við áður tókum sem sjálf­sögðum hlut.

Við komumst til dæmis að því í far­aldr­inum að kenn­arar eru algjör­lega ómissandi. Það er ekki endi­lega tekið út með sæld­inni að vera heima að vinna með börn í sótt­kví sér við hlið. Þegar verst lét þurftu þús­undir ung­menna að vera í fjar­námi og þótt þau hafi eflaust mörg stundum óskað sér á sinni skóla­göngu að þau gætu sofið aðeins lengur fram eftir og sleppt því að mæta í kennslu­stofur var nýja­brumið fljótt að fara af því að sitja stöðugt heima við námið. Kennarar voru sér­stak­lega upp­finn­inga­samir við að miðla kennslu­efn­inu í gegnum netið og lögðu margir mikið á sig til að reyna að halda utan um sinn nem­enda­hóp.

Að kom­ast ekki í rækt­ina, í sund eða á íþrótta­æf­ingu reynd­ist mörgum mjög erfitt. Þjálf­arar voru hins vegar margir hverjir gjaf­mildir á þekk­ingu sína og leið­sögn í gegnum netið svo allir sem vildu gátu stundað heima­leik­fimi eða úti­æf­ingar af miklum móð.

Við átt­uðum okkur á því hversu mikla ánægju við höfum af því að horfa á aðra í íþróttum. Að fagna saman sigrum, að sam­ein­ast í aðdáun, hvatn­ingu og ákefð, gefur okkur sem ein­stak­lingum og sam­fé­lagi mikið.

Lista­fólk varð að afbóka tón­leika- og sýn­ing­ar­sali en tók sig margt hvert til og bauð ann­ars konar upp­lifun fyrir sótt­þreytta þjóð. Það heim­sótti aldr­aða og aðra sem hvað mest voru ein­angr­aðir og léku fyrir þá, sungu og spil­uðu. Þá varð per­sónu­leg miðlun list­ar­innar fyr­ir­ferð­ar­meiri en áður: Fólk gat gefið ást­vinum sínum einka­sýn­ingu – list­gjörn­ing úti á tröppum. Tón­list­ar­fólk varð svo að heim­il­is­vinum í gegnum sjón­varpið og netið og bauð okkur heim í stofu til sín.

Tónlistarfólk og aðrir listamenn lögðu sín lóð á vogarskálarnar við að létta fólki í einangrun lífið. Sungið var, spilað og leikið við hjúkrunarheimili í samkomubanni.
Tón­list­ar­fólk og aðrir lista­menn lögðu sín lóð á vog­ar­skál­arnar við að létta fólki í ein­angrun lífið. Sungið var, spilað og leikið við hjúkr­un­ar­heim­ili í sam­komu­banni.

7. Guðirnir gefa þeim gleði sem landið sjá

Íbúar stór­borga sáu fjöllin í fjarska í fyrsta sinn greini­lega og fiskar og fuglar syntu um síkin í Feneyjum. Þó að heims­far­aldur COVID-19 hafi ekki dregið að neinu marki úr þeirri vá sem stafar af lofts­lags­breyt­ingum upp­götv­uðum við hvernig heim­ur­inn gæti litið út ef dregið yrði veru­lega úr mengun og rányrkju til lang­frama. Kjöt­fram­leiðsla á heims­vísu dróst saman um 1 pró­sent enda margir að átta sig á því að hinn stór­tæki verk­smiðju­iðn­aður sem ástund­aður er víða til að seðja lyst á dýra­af­urðum er bæði meng­andi og gengur auk þess gegn gildum þess hvað varðar umgengni við nátt­úr­una, þar á meðal aðrar skepnur.

8. Fram í heiðanna ró

Þúsundir Íslend­inga lögðu sitt eigið land undir fót í sumar enda höfðu þeir allir sem einn verið hvattir til að ferð­ast inn­an­lands. Í „veiru­frí­inu“ í júní og júlí fyllt­ust sam­fé­lags­miðlar af myndum af lands­mönnum að baða sig í nátt­úru­laugum, skoða öll nátt­úru­undrin sem erlendir ferða­menn hafa síð­ustu ár stært sig af að hafa barið augum og upp­götv­uðu gisti­staði á heims­mæli­kvarða í afskekktum sveitum og sjáv­ar­þorpum. Stuðla­gil, þar sem önnur tungu­mál en íslenska hafa síð­ustu ár berg­málað milli hamra­veggja, varð einn vin­sæl­asti við­komu­staður sum­ars­ins og fékk að launum gull­hamra og hrósyrði á okkar ást­kæra og ylhýra.

Margir Íslendingar lögðu leið sína að Jökulsárlóni í sumar.
Margir Íslend­ingar lögðu leið sína að Jök­ulsár­lóni í sumar.

9. Geymt en ekki gleymt

Rétt fyrir for­seta­kosn­ing­arnar í Banda­ríkj­unum var sendur út sér­stakur þáttur af The West Wing, stjórn­mála­dramanu sem naut gríð­ar­legra vin­sælda á árunum 1999-2006. Þeir sem höfðu saknað að sjá Rob Lowe, Allison Janney og Martin Sheen í Hvíta hús­inu fögn­uðu end­ur­kom­unni og nokkru síðar einnig því að Donald Trump tap­aði kosn­ing­unum.

Önnur end­ur­koma kall­aði ekki á minni við­brögð, sér­stak­lega þeirra sem voru ung­lingar á níunda ára­tugnum. Nokkrir leik­arar úr hinni stór­vin­sælu grall­ara­mynd, The Goonies, hitt­ust í netheimum og sendu sam­kom­una út á YouTube ásamt vel völdum atriðum úr mynd­inni. Þetta vildu þeir gera til að létta fólki stund­irnar í ein­angrun far­sótt­ar­innar.

Það er ekki hægt að rifja upp end­ur­komur í öldum ljós­vakans öðru­vísi en að segja frá einni slíkri sem átti sér stað í sjón­varps­þátt­unum gríð­ar­vin­sælu Grey‘s Anatomy – nánar til tekið í þætti sem frum­sýndur var vest­an­hafs í nóv­em­ber. Aðdá­endur þátt­anna sem vilja ekki láta spilla hinni óvæntu upp­á­komu fyrir sér, ættu að hætta að lesa NÚNA.

Í þætt­inum sem frum­sýndur var 13. nóv­em­ber, birt­ist McDreamy, lækn­ir­inn Derek Shepherd sem Patrick Dempsey leikur, skyndi­lega á ný. Grey‘s Anatomy hafa átt mik­illi vel­gengni að fagna víða um heim og hafa nú sautján þátt­araðir verið gerðar. Leikarar og fram­leið­endur vildu end­ur­spegla álagið á heil­brigð­is­starfs­fólki í far­aldr­inum er nýj­ustu þætt­irnir voru teknir upp í vor. Og til að gleðja áhorf­endur sem saknað hafa McDreamy, sem er í hópi þeirra fjöl­mörgu per­sóna sem hafa dáið í þátt­unum, var beitt end­ur­liti og draumum.

10. Öll él birtir um síðir

Bestu fréttir árs­ins 2020 eru lík­lega að margra mati þær að nú fer því senn að ljúka. Á því höfum við þurft að takast á við algjör­lega nýjan og flók­inn veru­leika og margir átt um sárt að binda vegna ást­vina­missis og heim­sókn­ar­banna. Á næstu vikum og mán­uðum verður þjóðin bólu­sett gegn COVID-19 og þá getum við farið að hitta aftur og faðma þá sem okkur þykir vænst um. Við getum því óhikað hlakkað til árs­ins 2021.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2020

Pistill

Sandra B. Franks

Far­ald­ur­inn yfir­skyggði allt

Á við­burða­ríku ári sem nú er liðið yfir­skyggði Covid-19 far­ald­ur­inn allt annað. Hann reyndi veru­lega á starfs­þrek heil­brigð­is­starfs­manna og ekki síst okkur sjúkra­liða. Mörg okkar voru í fram­lín­unni. Aðrir sjúkra­liðar stóðu vakt­ina í störfum sem ekki voru síður mik­il­væg. Ég er mjög stolt af því hve frá­bær­lega sjúkra­liða­stéttin hefur staðið sig í Covid far­aldr­inum. Hann hefur svo sann­ar­lega beint athygl­inni...

Mest lesið undanfarið ár