Leiga hækkað um 45 prósent frá árinu 2013

Lítil breyt­ing hefur orðið á leigu­verði á árinu 2019 frá fyrra ári en leigu­verð hefur hins vegar hækkað til muna ef litið er til síð­ustu sex ára.

Leigu­verð á Íslandi hefur hækkað hratt á síð­ustu árum. Leiga á árinu 2019 er um 45 pró­sent hærri en hún var árið 2013. Ef aðeins nágranna­sveit­ar­fé­lög höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins eru skoðuð þá hefur leiga hækkuð um 52 pró­sent á þessu tíma­bili. Þá er leigu­verð hæst á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eða um 201 þús­und krónur að mið­gildi en leigu­verð á Íslandi er með því hæsta í Evrópu.

Þetta kemur fram í nýrri mán­að­ar­skýrslu Íbúða­lána­sjóðs.

Miklar hækkanir á síðustu árum

Leigu­fjár­hæð hefur verið um 182 þús­und krónur á mán­uði á árinu sé miðað við mið­gildi þing­lýstra samn­inga það sem af er ári og stendur hún í stað að raun­virði frá því í fyrra eftir miklar hækk­anir árin þar á undan.

Þannig hefur leiga hækkað um 42 pró­sent á höf­uð­borg­ar­svæð­inu frá árinu 2013, 52 pró­sent í nágranna­sveit­ar­fé­lögum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og 33 pró­sent ann­ars staðar. Leigu­verð er hæst á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, næst hæst á Suð­ur­nesjum en lægst á Norð­vest­ur­land en mið­gildi leigu­verðs þar er um 116.000 krónur.

Leigu­verð í Reykja­vík er tölu­vert hærra en í helstu borgum Evrópu. Í nýj­ustu könnun Eurostat kemur fram að leigu­verð á 3ja svefn­her­bergja íbúð um 260.500 krónur á mán­uði í Reykja­vík eða um 2.100 evrur. Var það hærra en í flestum öðrum borgum, en þó lægra en í Stokk­hólmi, Osló og Kaup­manna­höfn.

Fermetrinn á 2700 krónur

[links]Flestar leigu­í­búðir á Íslandi eru litlar eða með­al­stórar. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eru til að mynda 80 pró­sent leigu­í­búða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu 98 fer­metrar eða minni og helm­ingur íbúða 73 fer­metrar eða minni.

Í nágranna­sveit­ar­fé­lögum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins er helm­ingur íbúða 90 fer­metrar eða minni og ann­ars staðar er helm­ingur 79 fer­metrar eða minni. Leigu­verð á hvern fer­metra er um 2.700 krónur á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en um 1.900 krónur í nágranna­sveit­ar­fé­lögum þess og 1.800 krónur ann­ars staðar miðað við mið­gildi.

Eitt af hverjum fimm heimilum á leigumarkaði undir lágtekjumörkum

Alls voru 17,5 pró­­sent full­orð­inna ein­stak­l­inga 18 ára og eldri á leig­u­­mark­aði hér á land­i í sept­em­ber síð­ast­liðnum og 19 pró­sent full­orð­inna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Í við­horfskönnun Íbúða­lána­­sjóðs frá því í júní á þessu ári kemur fram að ­­meiri­hluti þjóð­­­ar­innar telur óhag­­­stætt að leigja eða alls 92 pró­­­sent. Þá kemur fram í sömu könnun að ein­ungis 51 pró­­­sent leigj­enda telji sig búa við hús­næð­is­ör­ygg­i. Al­­­geng­asta á­­­stæða þess að fólk telur sig ekki búa við hús­næð­is­ör­yggi er vegna þess að fólk hefur ekki efni á leigu eða verð of hátt.

Þá kom fram í nýj­ustu lífs­kjara­rann­sókn Hagstofu Íslands að lág­tekju­hlut­fall meðal leigj­enda er hærra en á meðal fólks sem býr í eigin hús­næði og hefur verið svo frá því að mæl­ingar hófust. Í fyrra voru 20 pró­sent heim­ila á leigu­mark­aði undir lág­tekju­mörkum en 6 pró­sent heim­ila í eigin hús­næði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár