Þeim fjölgar á Íslandi sem búa við þröngan húsakost

Ef litið er á tekju­fimmt­unga varð mesta breyt­ingin á milli 2016 og 2018 hjá þeim sem eru í lægsta tekju­bil­inu, en árið 2016 bjuggu 14,3 pró­sent ein­stak­lingar á heim­ili við þröng­býli en 30,2 pró­sent árið 2018.

Hlutfall ein­stak­linga sem býr við þröng­býli hefur hækkað síð­ast­liðin ár. Árið 2018 bjuggu 14,1 pró­sent ein­stak­linga þröngt sem er mun hærra borið saman við 10,9 pró­sent árið 2017 og 7,8 pró­sent árið 2016. Þetta kemur fram á vef Hag­stof­unnar í dag.

Hlutfall ein­stak­linga sem býr þröngt hefur hækkað á öllum aldri en sér­stak­lega á aldr­inum 25 til 34 ára þar sem 24 pró­sent bjuggu við þröng­býli árið 2018 en 15,6 pró­sent árið 2017.

Ef litið er á tekju­fimmt­unga varð mesta breyt­ingin á milli 2016 og 2018 hjá þeim sem eru í lægsta tekju­bil­inu, en árið 2016 bjuggu 14,3 pró­sent ein­stak­lingar á heim­ili við þröng­býli en 30,2 pró­sent árið 2018.

[adspot]

Þróunin önnur í öðrum Evrópulöndum

Samkvæmt Hag­stof­unni virð­ist þessi þróun ekki eiga sér stað í öðrum Evr­ópu­löndum. Sam­an­borið við Norð­ur­löndin er hlut­fallið á Íslandi svipað og í Svíþjóð en það er mun hærra en á hinum Norð­ur­lönd­unum. Árið 2018 var hlut­fallið 15,2 pró­sent í Svíþjóð, 6 pró­sent í Noregi, 9,2 pró­sent í Danmörku og 7,3 pró­sent í Finn­landi.

Notast er við alþjóð­lega skil­grein­ingu evr­ópsku Hag­stof­unnar á þröng­býli. „Þröng­býli er reiknað út frá fjölda her­bergja og sam­setn­ingu heim­il­is­fólks. Hvert heim­ili þarf eitt her­bergi sem er sam­eig­in­legt fyrir allt heim­il­is­fólk, eitt her­bergi fyrir hvert par á heim­il­inu, eitt her­bergi fyrir hvern ein­hleypan ein­stak­ling 18 ára og eldri, eitt her­bergi fyrir hverja tvo ein­stak­linga 12 til 17 ára af sama kyni og eitt her­bergi fyrir hverja tvo ein­stak­linga undir 12 ára aldri,“ segir á vef Hag­stof­unnar.

Marktækur munur eftir aldri hvort fólk segist búa húsnæði í lélegu ástandi

Frá árinu 2015 hefur hlut­fall ein­stak­linga sem segj­ast búa í hús­næði í lélegu ástandi staðið nokkurn veg­inn í stað. Árið 2017 var hlut­fallið 19,8 pró­sent en 19,2 pró­sent árið 2018. Lítill munur er á milli kynja en mark­tækur munur er á aldri. Hlutfall ein­stak­linga 35 til 44 ára sem seg­ist búa í hús­næði í lélegu ástandi var 23,9 pró­sent árið 2018 en lægst var hlut­fallið fyrir ein­stak­linga 65 ára og eldri eða 8,9 pró­sent.

Þetta er meðal nýrra nið­ur­staðna úr Lífs­kjara­rann­sókn Hagstofu Íslands. Nið­ur­stöð­urnar byggja á svörum fólks við því hvort það eigi í vand­ræðum með þakleka, raka eða fúa í veggjum, gólfi eða gluggum. Sé svarað ját­andi telst við­kom­andi til þeirra sem segj­ast búa við lélegt ástand hús­næðis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár