Vinnuþjarkurinn með mjúka skotið

Helsta stjarna NBA-deild­ar­innar, Stephen Curry, er í huga margra ein­hver mesta skytta sem komið hefur fram í deild­ina. En á skömmum tíma hefur hann breyst í afburða­leik­mann á öllum sviðum leiks­ins.

Þegar Wardell Stephen Curry II kom inn í NBA-deild­ina, árið 2009, voru miklar vonir bundnar við hann, en fáir höfðu þó trú á því að hann gæti orðið að leið­andi leik­mann í deild­inni, leið­toga, sig­ur­veg­ara og fram­úr­skar­andi leik­manni. Hann er fæddur 1988 í Akron Ohio, en alinn upp að mestu í Charlotte, og var því lið­lega tví­tugur þegar fyrstu skrefin í deild­inni voru stigin.

Frá fyrsta tíma­bili hefur hann fengið að bera mikla ábyrgð. Hann spil­aði 36,1 mín­útu í leik, af 48 mín­útna heild­ar­tíma, á fyrsta tíma­bili 2009/2010, skor­aði 17,5 stig, 46,5 pró­sent hittni í stökk­skotum innan þriggja stiga lín­unnar (FG) og fyrir utan þriggja stiga lín­una var hann með 43,7 pró­sent hittni. Lið Golden State Warriors (GSW), sem Curry hefur leikið með allan sinn feril, var frekar slakt í upp­hafi, vann aðeins 23 leiki af 82. Fyrir leik­mann á fyrsta tíma­bili, í slöku liði, þá eru þetta afburða­tölur, og ekki síst til marks um að þarna sé óvenju­lega góð skytta á ferð. Í fyrra­vor tryggði liðið sér svo tit­il­inn, í fyrsta skipti í fjöru­tíu ár, með Curry fremstan meðal jafn­ingja. Á sex árum hefur liðið orðið betra og betra, sam­hliða upp­gangi þessa magn­aða leik­manns.

Frábær frammistaða

Á þessu tíma­bili, þar sem engin bönd hafa haldið Curry, spilar hann 34 mín­útur að með­al­tali í leik en skorar að með­al­tali tæp­lega þrjá­tíu stig í leik, eða 29,7 stig, og hittir áfram í tæp­lega öðru hverju skoti; 51,1 pró­sent hittni í stökk­skotum innan þriggja stiga lín­unnar og 44 pró­sent hittni í þriggja stiga skotum. Allan fer­il­inn, sex tíma­bil í röð, hefur hann verið með hittni vel yfir 40 pró­sent fyrir utan og innan þriggja stiga lín­una, þrátt fyrir að vera yfir­leitt að glíma við stranga gæslu ýmissa varn­araf­brigða liða í deild­inni. Það má ein­fald­lega ekki gefa honum opið skot.

Miklar framfarir

Óhætt er að segja að Curry hafi sannað að hann er eng­inn venju­legur leik­maður, nokkuð fljótt. En fram­farir hans hafa verið með miklum ólík­indum, og þá sér­stak­lega á síð­ustu tveimur tíma­bilum. Sjálfur segir hann að lyk­ill­inn að árangri hans sé agi, agi og aftur agi. Hann æfir meira en aðrir hjá Golden State, að sögn for­svars­manna liðs­ins. Hann ein­fald­lega leggur meira á sig.

Sjálfur talar hann mikið um að trúin á Jesú krist og Guð almátt­ugan hjálpi honum að halda æfing­unum góðum, auk þess sem hann hafi mik­inn stuðn­ing frá eig­in­konu sinni og stór­fjöl­skyldu. Allir legg­ist á eitt við að gera honum mögu­legt að æfa mikið svo hann geti stans­laust bætt sig. „Ég á þér allt að þakka, þú ert mín stoð og stytta,“ sagði hann við eig­in­konu sína, tár­votur, í ræðu þegar hann tók við verð­launum sem mik­il­væg­asti leik­maður deild­ar­innar.

Hann eyddi flestum orðum í ræð­unni í að hrósa þeim sem höfðu gert honum mögu­legt að æfa mikið og rækta hæfi­leika sína, ekki síst föður sínum, Dell Curry, sem spil­aði í sextán tíma­bil í röð í NBA deild­inni, þar af ell­efu ár með Charlotte Hornets. Dell var góður leik­maður, þegar hann var upp á sitt besta, sem var tíma­bilið 1993 til 1994. Hann skor­aði þá 16,3 stig að með­al­tali í leik, og þótt harður af sér og ákveð­inn. Á ferl­inum skor­aði hann rúm­lega ell­efu stig í leik, og spil­aði 21 mín­útu að með­al­tali í hverjum þeirra. Það eru tölur sem leik­menn geta verið stoltir af eftir langan feril í deild þeirra bestu.

Feðgarnir ólíkir

Helstu styrk­leikar Dell, ákveðni og harka, voru eig­in­leikar sem sonur hans þótti ekki vera með, þegar hann hóf leik í NBA-deild­inni, en í dag þykir stöð­ug­leiki og ein­beit­ing – sem hald­ast oft hendur við ákveðni og hörku, í jákvæðum skiln­ingi – í bland við nátt­úru­lega hæfi­leika, vera hans helstu styrk­leikar. Afburða­skytta er hann vissu­lega, og lík­lega ein sú besta í sögu deild­ar­innar, en hann hefur bætt sig mikið á þeim sviðum þar sem hann þótti vera með veik­leika í upp­hafi. Það hefur hann gert með þrot­lausum æfingum, lík­am­legum og tækni­legum.

Á síð­asta tíma­bili var hann besti leik­maður deild­ar­innar, og tók við við­ur­kenn­ingu sem MVP, eða mik­il­væg­asti leik­maður deild­ar­innar. Við­ur­kenn­ingin er að venju veitt þegar úrslita­keppnin stendur sem hæst, en eftir magnað ein­vígi Golde State Warriors og Cleveland Cavaliers, þar sem LeBron James er við stýrið í vörn og sókn, þá unnu Curry og félagar. Liðs­heild GSW er ógn­ar­sterk en það er Curry sem er með þræð­ina í hendi sér. Það er erfitt að stoppa mann sem getur hitt úr flestum færum, og er að upp­lagi óeig­in­gjarn og spilar fyrir liðið.

Ethan Sherwood Strauss, einn af föstum pistla­höf­undum ESPN, tók við­tal við aðstoð­ar­þjálf­ara Golden State Warriors, Ron Adams, í apríl í fyrra, þegar Curry var að eiga hvern stjörnu­leik­inn á fætur öðrum. Það héldu honum engin bönd. Það sem þótti merki­leg­ast, var að hann var far­inn að spila stór­kost­lega vörn, og vera skeinu­hættur við að stela boltum og líka að verja stöðu sína.

Aðeins tveimur vikum eftir að Steve Kerr og Ron Adams tóku við sem þjálf­arar Golden State Warriors boð­uðu þeir Curry og hádeg­is­fund, og sögðu að hann yrði að stíga upp í varn­ar­leik sínum. Ef hann vildi verða bestur, sem Kerr og Adams töldu að hann bæði gæti og vildi, þá yrði hann að hlýða varn­ar­skip­unum og hlífa sér hvergi. „Þetta var ekki sér­lega erfið sala,“ sagði Kerr, og en hann segir Curry þríf­ast á áskor­unum.

Kominn í hóp þeirra bestu

Á undra­skömmum tíma breytt­ist Curry úr því að vera stór­kost­leg skytta og sókn­ar­maður, í að verða afger­andi alhliða varnar- og sókn­ar­maður. Það er meira en að segja það, að ná þeirri stöðu. Fáir leik­menn hafa náð þeim gæðum í leik sinn eins og Curry er að sýna þessa dag­ana, og eru menn eins og Michael Jordan og Kobe Bryant, þegar þeir voru að spila sem best, nefndir í sömu andrá og þessi frá­bæri leik­maður. LeBron James er síðan hans helsti keppi­nautur, enda stór­kost­legur alhliða leik­maður sömu­leiðis.

En ólíkt James er Curry með sér­staka eig­in­leika, enda er hann ekki helj­ar­menni að burðum og nær ekki árangri með kraft­miklum troðslum eða „látum“, eins og oft fylgja James. Ekki skal þó gert lítið úr mögn­uðum alhliða hæfi­leikum James, sem fyrir löngu eru búnir að skila honum í allra fremstu röð.

Curry er einna best lýst sem óút­reikn­an­legum. Enginn veit hvað getur gerst þegar hann kemur með bolt­ann upp völl­inn. Hann er stór­kost­legur einn og móti einum, og skilur varn­ar­menn oftar en ekki eftir á rass­inum - algjör­lega ósjálf­bjarga eftir að hafa ekki ráðið við hraða fóta­vinnu - áður en hann tekur þægi­legt skot. Til þess að lág­marka mögu­leik­ana á því að sú staða skap­ist, það er að Curry sé að mæta sínum varn­ar­manni einn og móti einum, þá beita lið oft varn­araf­brigðum þar sem hann er þving­aður í erfið skot, eða erf­iðar aðstæður. En GSW liðið hefur góða leik­menn til að taka við kefl­inu þegar Curry getur ekki verið með það, og hann hikar ekki við að laga leik sinn að því þegar aðrir leik­menn liðs­ins þurfa að blómstra.

Enginn er gallalaus, en...

Enginn er galla­laus, og Curry hefur sína galla eins og aðrir. Ef hann væri meiri að burðum og með ógn­ar­kraft­inn frá Lebron James, þá væri hann lík­lega full­kom­lega óstöðv­andi. En það er and­legur styrkur hans sem er kannski það sem skilur hann frá mörgum öðrum. Hann er vinnu­þjarkur með mjúkt skot, eldsnöggar hreyf­ingar og hug­ar­far sig­ur­veg­ar­ans.

En eins og Curry spil­aði körfu­bolta allt árið í fyrra, þá verður ekki annað séð en að hann sé nú þegar búinn að taka frá margar síður í sögu NBA-deild­ar­innar sem einn af þeim allra bestu, þökk sé mik­illi vinnu­semi, aga, nátt­úru­legum hæfi­leikum og vilja til að takast á við nýjar áskor­anir. Hann hefur alltaf bætt sig milli ára, og það ætti ekki að koma neinum á óvart ef hann myndi bæta við fleiri meist­ara­hringjum í sitt safn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár