Prentsmiðjan og skuldir Árvakurs við hana færðar úr útgáfufélagi Morgunblaðsins

Í lok sept­em­ber var ákveðið að færa prent­smiðj­una Lands­prent út úr Árvakri og til móð­ur­fé­lags­ins Þórs­merkur. Með fylgdu skuldir Árvakurs við tengdan aðila, Lands­prent, upp á 721 milljón króna. Hlutafé í móð­ur­fé­lag­inu var aukið um 400 millj­ónir króna.

Guðbjörg Matthíasdóttir, er stærsti einstaki eigandi Þórsmerkur og Árvakurs ásamt börnum sínum. Hún settist í stjórn félaganna fyrir skemmstu.
Guðbjörg Matth­í­as­dóttir, er stærsti ein­staki eig­andi Þórs­merkur og Árvakurs ásamt börnum sínum. Hún sett­ist í stjórn félag­anna fyrir skemmstu. Mynd: Bára Huld Beck

Búið er að færa Lands­prent, sem rekur prent­smiðju sem prentar þorra þeirra prent­miðla sem gefnir eru út á Íslandi, út úr Árvakri, útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins og stærsta við­skipta­vini Lands­prents. Það var gert á hlut­hafa­fundum sem haldnir voru í bæði Þórsmörk, móð­ur­fé­lagi Árvakurs sem á nær allt hlutafé í því, og Árvakri 27. sept­em­ber síð­ast­lið­inn með fram­lagn­ingu og sam­þykkt áætl­unar um upp­skipt­ingu Árvakurs. Skipt­ingin felur í sér að Lands­prent er fært úr Árvakri og til móð­ur­fé­lags­ins Þórs­merkur. Í fund­ar­gerð stjórn­ar­fundar Þórs­merkur segir að á sama tíma hafi verið sam­þykkt hluta­fjár­aukn­ing upp á 400 millj­ónir króna „sem þegar hefur verið sam­þykkt á árinu og greidd til félags­ins.“

Við skipt­ing­una lét Árvakur af hendi eignir sem metnar voru á 997 millj­ónir króna og skuldir upp á 721 milljón króna. Eignin sem færð var yfir er bók­fært virði Lands­prents. Skuldin sem fær­ist yfir er að uppi­stöðu skuld Árvakurs við Lands­prent, sem hefur vaxið gríð­ar­lega á síð­ustu árum.

Þetta má lesa úr skjölum sem nýverið voru send til fyr­ir­tækja­skráar vegna þessa.

[adspot]Árvakur skil­aði hagn­aði upp á 110 millj­ónir króna í fyrra. Rekstr­ar­tap félags­ins var hins vegar 113 millj­ónir króna. Ástæðan fyrir hagn­að­inum fólst í hlut­deild í afkomu dóttur- og hlut­deild­ar­fé­laga, sem var jákvæð um 243 millj­ónir króna. Þar skipti lang­mestu hlut­­deild í Lands­­prenti, en hún var 196 millj­­ónir króna í fyrra. Án þess hagn­aðar sem Lands­prent sýndi hefði Árvakur því verið rek­inn í tapi á árinu 2021.

Árvakur er á meðal stærstu við­skipta­vina Lands­prents sem átti kröfur á tengd félög upp á 730,3 millj­ónir króna um síð­ustu ára­mót. Þær kröfur, sem eru á Árvakur, uxu um 410,2 millj­ónir króna á tveimur árum, frá byrjun árs 2020 og út síð­asta ár. Með því spar­aði Árvakur sér greiðslur tíma­bundið, en stórjók skuldir sínar við félag í sinni eigu.

Skipt­ing­unni, sem færir Lands­prent yfir til móð­ur­fé­lags­ins Þórs­merkur, er ætlað að taka á þess­ari skulda­stöðu. Við hana lækka skuldir Árvakurs við tengda aðila um 721 milljón króna og sú skuld fær­ist til Þórs­merkur, nú eig­anda Lands­prents.

Eftir skipt­ing­una fara eignir Árvakurs, sem á Morg­un­blaðið, mbl.is og K100 og tengda miðla, úr tæp­lega 2,2 millj­arði króna í 1,2 millj­arð króna og eignir Þórs­merkur hækka að sama skapi um tæpan millj­arð króna.

Guðbjörg í stjórn en Ásdís Halla út

Í ár var ný stjórn Þórs­merkur og Árvakurs. Samkvæmt til­kynn­ingu til fyr­ir­tækja­skrár var sú stjórn skipuð 27. sept­em­ber síð­ast­lið­inn, sama dag og ofan­greind skipt­ing og hluta­fjár­aukn­ing var ákveðin. Þar kom meðal ann­ars fram að Ásdís Halla Braga­dóttir, ráðu­neyt­is­stjóri í háskólar-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu, sagði sig úr stjórn­unum, en lög banna auka­störf æðstu emb­ætt­is­manna og ráð­herra.

Í hennar stað sett­ist Guðbjörg Matth­í­as­dóttir, aðal­eig­andi Ísfélags Vest­manna­eyja, í stjórn­irnar. Sig­ur­björn Magn­ús­son, faðir Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur, ráð­herra í ráðu­neyt­inu sem Ásdís Halla starfar í, er áfram sem áður stjórn­ar­for­maður félag­anna tveggja.

Stærsti eig­and­inn fyrir síð­­­ustu hluta­fjár­­aukn­ingu voru Guð­­­björg Matt­h­í­a­s­dóttir og börn henn­­­ar, í gegnum félögin Hlyn A og Ísfé­lag Vest­­­manna­eyja. Sam­an­lagt átti sá hópur 25,5 pró­­­sent hlut.

Næst stærsti eig­and­inn eru Íslenskar Sjá­v­­­­ar­af­­­urð­ir, í eigu Kaup­­­fé­lags Skag­­­firð­inga, með 19,4 pró­­­sent eign­­­ar­hlut.

Legalis, félag sem Sig­ur­björn stjórn­ar­for­maður veitir for­stöðu á 13,4 pró­sent.. Félagið Í fjár­fest­ingar ehf., í eigu Katrínar Pét­urs­dótt­ur, for­stjóra Lýs­is, og Gunn­laugs Sæv­ars Gunn­laugs­son­ar, stjórn­ar­for­manns Ísfé­lags Vest­manna­eyja, á 8,72 pró­sent. Auk þess á Lýsi beint 2,96 pró­sent hlut.

Mikið tap og fallandi lestur

Kjarn­inn greindi frá því í mars að hlutafé í Morg­un­blaðs­sam­stæð­unni hafi verið aukið um 100 millj­­­­ónir króna þann 31. jan­úar síð­­­­ast­lið­inn. Aðilar tengdir Ísfé­lagi Vest­­­­manna­eyja og félag í eigu Kaup­­­­fé­lags Skag­­­­firð­inga greiddu stærstan hluta henn­­­ar.

[links]400 millj­óna króna hluta­fjár­aukn­ingin sem sam­þykkt var í lok sept­em­ber bæt­ist því við þá tölu. Alls hefur nýtt hlutafé verið sett inn í sam­steypuna fjórum sinnum frá árinu 2019, en sam­an­lagt umfang þess er einn millj­arður króna.

Frá því að nýir eig­endur tóku við rekstri Árvak­­­urs í febr­­­úar 2009 hefur útgáfu­­­­fé­lagið tapað yfir 2,5 millj­­­­örðum króna. Eig­enda­hóp­­­­ur­inn, sem hefur tekið ein­hverjum breyt­ingum á tíma­bil­inu, hefur nú lagt Árvakri til sam­tals vel yfir tvo millj­­­­arða króna í nýtt hluta­­­­fé.

Þegar nýju eig­end­­­­­urnir tóku við rekstr­inum var Morg­un­­­­­blað­ið, flagg­­­­­skip útgáf­unn­­­­­ar, lesið af rúm­­­­­lega 40 pró­­­­­sent þjóð­­­­­ar­inn­­­­­ar. Í síð­­­­­­­­­ustu birtu mæl­ingu Gallup á lestri prent­miðla var sá lestur kom­inn niður í 17,3 pró­­­­­sent og hefur ein­ungis einu sinni mælst lægri, í ágúst 2022. Lestur blaðs­ins hjá 18-49 ára mælist átta pró­­­sent.

Vefur útgáf­unn­­­­­ar, Mbl.is, var lengi vel mest lesni vefur lands­ins en síð­­­­­­­­­ustu mis­­­­s­eri hefur Vísir.is, vefur í eigu Sýn­­­­­ar, stöðugt mælst með fleiri not­end­­­­­ur. Mbl.is hefur þó enn vinn­ing­inn þegar kemur að fjölda flett­inga en mið­l­­arnir tveir hafa und­an­farið verið með afar svip­aðan fjölda inn­­lita á viku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár