Óskar eftir svörum forsætisráðherra um lán Seðlabankans til Kaupþings árið 2008

Jón Steindór,Valdi­mars­son, þing­maður Við­reisnar, spurði for­sæt­is­ráð­herra í gær hver tók ákvörð­un­ina um lán Seðla­bank­ans til Kaup­þings árið 2008 og hvernig Kaupþing ráð­staf­aði þeim fjár­munum.

Seðlabanki Íslands
Seðla­banki Íslands Mynd: Birgir Þór Harðarson

Jón Steindór Valdi­mars­son, þing­maður Við­reisnar lagði fram fyr­ir­spurn fyrir for­sæt­is­ráð­herra á Alþingi í gær um lán­veit­ingu Seðla­banka Íslands til Kaup­þings 6. októ­ber 2008. Hann óskaði eftir skrif­legum svörum.

Spurn­ing­arnar voru svo hljóð­andi:

1. Hver tók ákvörðun um að Seðla­banki Íslands veitti Kaup­þingi 500 millj. evra neyð­ar­lán, tæp­lega 78 millj­arða kr. á þáver­andi gengi, hinn 6. októ­ber 2008?

2. Hvernig ráð­staf­aði Kaupþing þessum fjár­munum?

3. Hverjar voru inn­heimtur Seðla­banka Íslands af þessu láni?

Eftir hrun var mikið fjallað um neyð­ar­lán Seðla­banka Íslands til Kaup­þings þann 6. októ­ber 2008 í fjöl­miðlum. Lánið var upp á 500 millj­ónir evra, tæp­lega 78 millj­arða króna á gengi þess dags sem lánið var veitt. Tæpur helm­ingur láns­ins end­ur­heimt­ist aldrei þar sem veðið sem sett var fyrir lán­inu.

[links]

Í vitna­skýrslu frá 2012 kom fram upp­lýs­ingar um að sím­tal hefði átt sér stað á milli Geir H. Haarde þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, og Davíðs Odds­sonar, fyrr­ver­andi for­manns banka­stjórnar Seðla­banka Íslands, sem átti sér stað skömmu fyrir hádegi 6. októ­ber 2008. Eftir sím­talið lá fyrir ákvörðun um að veita lánið til Kaup­þings.

Á 10 ára afmæli hruns­ins í byrjun mán­að­ar­ins virt­ust vakna aftur spurn­ingar um lán Seðla­bank­ans til Kaup­þings. Björgólfur Thor Björg­ólfs­son athafna­maður kall­aði m.a. eftir í pistli á heima­síðu sinni þann 5. októ­ber eftir end­an­legum skýr­ingum á því hvert gjald­eyr­is­forði þjóð­ar­innar hafi farið sem Kaup­þing fékk að láni frá Seðla­bank­an­um.

[adspot]

Krafðist þess að símtalið væri birt

Í októ­ber á síð­asta ári stefndi Kjarninn Seðla­banka Íslands og fór fram á að ógilt yrði með dómi sú ákvörðun bank­ans að hafna kröfu Kjarnans um aðgang að hljó­ritun og afritum af sím­tali milli þáver­andi for­manns Seðla­banka Íslands, Dav­íðs Odds­son­ar, og þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, Geirs H. Haarde, sem átti sér stað 6. októ­ber 2008. Kjarninn fór fram á ógild­ingu dóms­ins. Í sam­tal­inu var rætt um veit­ingu 500 milljón evra neyð­ar­láns til Kaup­þings sem kost­aði skatt­greið­endur á end­anum 35 millj­arða króna.

Til­gang­ur­inn við að óska eftir sím­tal­inu var að upp­lýsa almenn­ing um liðna atburði og vegna þess að framundan var birt­ing á tveimur skýrsl­um, þar af önnur sem unnin er af Seðla­bank­an­um, þar sem atburðir tengdir sím­tal­inu verða til umfjöll­un­ar. Beiðnin var rök­studd með því að um væri að ræða einn þýð­ing­ar­mesta atburð í nútíma hag­sögu sem hefði haft í för með sér afdrifa­ríkar afleið­ingar fyrir íslenskan almenn­ing. Seðla­bank­inn hafn­aði beiðn­inni og byggði þá ákvörðun ein­vörð­ungu á því að þagn­ar­skylda hvíldi yfir umræddum upp­lýs­ing­um.

Morgunblaðið birti símtalið

Í nóv­em­ber sama ár birti Morg­un­blaðið síðan sím­talið í blaði sínum. Davíð Odds­son er og var rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, sím­talið var birt í heild sinni í blað­inu. Um málið var einnig fjallað í for­síðu­frétt og þar er því haldið fram að hvorki Davíð né Geir hafi vitað að sím­talið var tekið upp

Í sím­tal­inu rekja Davíð og Geir stöð­una eins og hún var og ræða um að það sé ein­ungis hægt að lána Kaup­þingi. Það muni þýða að bæði Lands­bank­inn og Glitnir falli nær sam­stund­is.

Davíð útskýrir fyrir Geir að ef Seðla­banki Íslands geti „skrapað saman 500 millj­ónum evra“ fyrir Kaup­þing séu þeir „komnir inn að beini og þá gætum við hjálpað Kaup­þingi í ein­hverja fjóra fimm daga en þá getum við ekki hjálpað Lands­bank­anum líka, sko.“

Davíð spyr svo Geir hvort að hann sé að tala um að það eigi frekar að reyna að hjálpa Kaup­þingi. Geir svar­ar: „ Það slær mig þannig sko og mér fannst þeir vera líka á þeirri línu í gær­kvöldi alla­vega þessir Morgan menn.“

Davíð segir honum þá að hann búist ekki við því að fá pen­ing­anna til baka. „Þeir segja að þeir muni borga okkur eftir fjóra fimm daga en ég held að það séu ósann­indi eða við skulum segja ósk­hyggja.“

Þeir ræða svo hinn danska FIH banka sem tek­inn var sem veð fyrir lán­inu og Davíð segir að án góðra veða myndi bank­inn aldrei lána þessa fjár­muni. Hann bætir svo við: „Við megum ekki setja íslenska ríkið á galeið­una.“

Geir svar­ar:„Nei, nei þetta eru 100 millj­arð­ar, spít­al­inn og Sunda­braut­in.“

Þar á Geir við að þarna sé verið að eyða hinum svoköll­uðu Síma­pen­ing­um, en ríkið fékk um 67 millj­arðar króna þegar það seldi Sím­ann til Exista árið 2005. Stór hluti þeirra pen­inga, um 18 millj­arðar króna, voru eyrna­merktir nýju hátækni­sjúkra­húsi en ein­ungis brot af þeirri upp­hæð, um 700 millj­ónir króna, rataði þang­að. Þá áttu einnig að fara um 15 millj­arðar króna í sam­göngu­bætur á borð við lagn­ingu Sunda­braut­ar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár