Símtal Davíðs og Geirs birt: Vissu að lánið fengist ekki endurgreitt

Símtal milli þáver­andi seðla­banka­stjóra og þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, sem fór fram neyð­ar­laga­dag­inn 6. októ­ber 2008, hefur verið birt í heild sinni í Morg­un­blað­inu, sem er rit­stýrt af Davíð Oddssyni.

Davíð Oddsson og Geir Haarde.
Davíð Oddsson og Geir Haarde. Mynd: Samsett

Morg­un­blaðið birtir í dag sím­tal milli þáver­andi for­manns Seðla­banka Íslands, Dav­íðs Odds­son­ar, og þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, Geirs H. Haarde, sem átti sér stað 6. októ­ber 2008. Í sím­tal­inu ræða þeir neyð­ar­lána­lán­veit­ingu til Kaup­þings upp á 500 millj­ónir evra, sem kost­aði íslenska skatt­greið­endur á end­anum 35 millj­arða króna í tap.

[links]Aðilar máls hafa hingað til ekki viljað birta sím­talið, sem fór fram fyrir rúmum níu árum síðan og er um einn þýð­ing­ar­mesta atburð í nútíma hag­sögu sem hefði haft í för með sér afdrifa­ríkar afleið­ingar fyrir íslenskan almenn­ing.

Kjarn­inn miðl­ar, móð­ur­fé­lag Kjarn­ans, stefndi í síð­asta mán­uði Seðla­banka Íslands og fór fram á að ógilt yrði með dómi sú ákvörðun bank­ans að hafna kröfu Kjarn­ans um aðgang að hljóð­ritun og afritum af sím­tal­inu.

Birt í blaðinu sem Davíð stýrir

Davíð Oddsson er í dag rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins og þar er sím­talið birt í heild sinni. Um málið er einnig fjallað í for­síðu­frétt og þar er því haldið fram að hvorki Davíð né Geir hafi vitað að sím­talið var tekið upp.

[adspot]Í vitna­skýrslu yfir Sturlu Páls­syni, fram­kvæmda­stjóra mark­aðsvið­skipta og fjar­stýr­ingar hjá Seðla­banka Íslands, hjá sér­stökum sak­sókn­ara árið 2012, sem fjallað var um í fjöl­miðlum fyrir um ári, kom fram að sím­tal milli Dav­íðs og Geirs, þar sem rætt var um lán­veit­ing­una, hafi átt sér stað klukkan 11.57 mánu­dag­inn 6. októ­ber. Þar sagði einnig að það hafi farið fram í gegnum síma Sturlu, sem var við­staddur sím­tal­ið. Við skýrslu­tök­una sagði Sturla að Davíð hafi vitað að sími Sturlu væri hljóð­rit­aður og því frekar tekið sím­talið úr síma sam­starfs­manns síns en úr sínum eig­in. Eng­inn annar var við­staddur sím­tal­ið.

Bjuggust ekki við því að fá peninganna til baka

Í sím­tal­inu rekja Davíð og Geir stöð­una eins og hún var og ræða um að það sé ein­ungis hægt að lána Kaup­þingi. Það muni þýða að bæði Lands­bank­inn og Glitnir falli nær sam­stundis.

Davíð útskýrir fyrir Geir að ef Seðla­banki Íslands geti „skrapað saman 500 millj­ónum evra“ fyrir Kaupþing séu þeir „komnir inn að beini og þá gætum við hjálpað Kaup­þingi í ein­hverja fjóra fimm daga en þá getum við ekki hjálpað Lands­bank­anum líka, sko.“

Davíð spyr svo Geir hvort að hann sé að tala um að það eigi frekar að reyna að hjálpa Kaup­þingi. Geir svarar: „ Það slær mig þannig sko og mér fannst þeir vera líka á þeirri línu í gær­kvöldi alla­vega þessir Morgan menn.“

Davíð segir honum þá að hann búist ekki við því að fá pen­ing­anna til baka. „Þeir segja að þeir muni borga okkur eftir fjóra fimm daga en ég held að það séu ósann­indi eða við skulum segja ósk­hyggja.“

Þeir ræða svo hinn danska FIH banka sem tek­inn var sem veð fyrir lán­inu og Davíð segir að án góðra veða myndi bank­inn aldrei lána þessa fjár­muni. Hann bætir svo við: „Við megum ekki setja íslenska ríkið á galeið­una.“

Geir svarar:„Nei, nei þetta eru 100 millj­arðar, spít­al­inn og Sunda­brautin.“

Þar á Geir við að þarna sé verið að eyða hinum svoköll­uðu Síma­pen­ingum, en ríkið fékk um 67 millj­arðar króna þegar það seldi Símann til Exista árið 2005. Stór hluti þeirra pen­inga, um 18 millj­arðar króna, voru eyrna­merktir nýju hátækni­sjúkra­húsi en ein­ungis brot af þeirri upp­hæð, um 700 millj­ónir króna, rataði þangað. Þá áttu einnig að fara um 15 millj­arðar króna í sam­göngu­bætur á borð við lagn­ingu Sunda­brautar.

Segir fjölmarga hafa haft samtalið undir höndum

Davíð fjallar einnig um sím­talið í Reykja­vík­ur­bréfi Morg­un­blaðs­ins. Þar segir hann meðal ann­ars frá því að þegar fjár­laga­nefnd hafi fjallað um hugs­an­lega birt­ingu sím­tals­ins á sínum tíma, undir for­ystu Björns Vals Gísla­sonar, þá hafi hann, fyrr­ver­andi seðla­banka­stjór­inn, aldrei verið boð­aður fyrir nefnd­ina.„ Hann var þó annar af aðeins tveimur sem örugg­lega vissi eitt­hvað um þetta sam­tal. Hvers vegna var hann aldrei boð­aður? Var það vegna þess að hann hefði aðeins þurft að stoppa í fimm mín­útur til að segja að sjálf­sagt væri að birta þetta sam­tal. Fjöl­margir aðilar hafa haft það undir höndum. Sumir í end­ur­rit­aðri hljóð­upp­töku og aðrir í upp­skrift. Það er merki­legt á tímum, þegar svo mörgu ómerki­legu er lekið að þetta stutta sam­tal hafi ekki birst.“

Davíð segir að sam­talið sé ekki sú sprengja sem menn voru búnir að ímynda sér og að það sé aug­ljóst af því að hann hafi ekki verið með­vit­aður um að sam­talið var tekið upp. Þá hefði hann verið fág­aðri í tal­máli sínu en á einum stað í sam­tal­inu segir Davíð til að mynda að „við erum að fara alveg niður að rass­gati.“ „Annað sem aug­ljóst er að þarna er um fram­halds­sam­tal tveggja manna að ræða, sem þekkst hafa í ára­tugi. Það þriðja er að banka­stjór­inn hefur miklar efa­semdir um að bank­inn, sem lánið fái, sé að segja satt um það, að hann muni end­ur­greiða lánið innan nokk­urra daga. Þess vegna megi alls ekki lána honum nema mjög öruggt veð fáist (það var á end­anum alls­herj­ar­veð, sem skipti máli). Þannig veð að bank­inn og rík­is­sjóður standi óskadd­aðir eftir þótt lán­tak­and­inn svíki allt sem hann geti svikið.“

Samtalið í heild sinni eins og það er birt í Morgunblaðinu í morgun:

Davíð Oddsson seðla­banka­stjóri: Halló.

Ritari Geirs H. Haarde for­sæt­is­ráð­herra: Gjörðu svo vel.

Davíð: Halló.

Geir: Sæll vertu.

Davíð: Sæll það sem ég ætl­aði að segja þér, sko, sko, við út af fyrir sig getum í dag skrapað saman 500 millj­ónir evra en nátt­úr­lega, en erum þá komnir inn að beini og þá gætum við hjálpað Kaup­þingi í ein­hverja fjóra fimm daga en þá getum við ekki hjálpað Lands­bank­anum líka, sko.

Geir: Nei.

Davíð:

Þú ert að tala um það að við eigum frekar að reyna að hjálpa Kaup­þingi.

Geir:

Það slær mig þannig sko og mér fannst þeir vera líka á þeirri línu í gær­kvöldi alla­vega þessir Morgan menn.

Davíð:

Ég býst við því að við fáum ekki þessa pen­inga til baka. Þeir segja að þeir muni borga okkur eftir fjóra fimm daga en ég held að það séu ósann­indi eða við skulum segja ósk­hyggja.

Geir:

En eru þeir ekki með ein­hver veð?

Davíð:

Við myndum aldrei lána það og við ætlum að bjóða þetta gegn 100% veði í FIH banka.

Geir:

Já.

Davíð:

Og þá verðum við að vita að sá banki sé veð­banda­laus.

Geir:

Já.

Davíð:

Því þá við megum ekki, sko, við megum ekki setja íslenska ríkið á galeið­una.

Geir:

Nei, nei þetta eru 100 millj­arðar, spít­al­inn og Sunda­brautin.

Davíð:

Já, já ert þú ekki sam­mála því að við verðum að gera ýtr­ustu kröfur?

Geir:

Jú, jú.

Davíð:

Já.

Geir:

Ég held að þeir muni leggja mikið á sig til að reyna samt að að upp­fylla þær, sko.

Davíð:

Já, já, já, já það er bara eina hættan er sú að þeir séu búnir að veð­setja bréfin og þá geta þeir ekki gert þetta, sko.

Geir:

Já, já og hvað myndum við koma með í stað­inn?

Davíð:

Ja, það veit ég ekki, þá verðum við bara að horfa á það en það, við erum bara að tala um ýtr­ustu veð, erum að fara með okkur inn að beini þannig að við verðum að vera algjör­lega öruggir.

Geir:

En er Lands­bank­inn ekki með neitt slíkt sem hann geti látið okkur hafa?

Davíð:

Já, en þá er að við erum ekki með pen­ing í þetta. Við erum að fara alveg niður að rass­gati og við ætlum meira að segja að draga á Danina sem ég tal­aði við í gær og sagði að við myndum ekki gera.

Geir:

Já.

Davíð:

En við erum búnir að tala við banka­stjór­ana þar og þeir eru að íhuga að fara yfir þetta.

Geir:

Um.

Davíð:

Það tekur tvo til þrjá daga að kom­ast í gegn.

Geir:

Já.

Davíð:

En við myndum skrapa, Kaupþing þarf þetta í dag til að fara ekki á haus­inn.

Geir:

Já, en það er spurn­ing með þá, fer þá Lands­bank­inn í dag?

Davíð:

Já, þá myndi hann fara í dag á haus­inn vænt­an­lega.

Geir:

Og Glitnir á morgun?

Davíð:

Og Glitnir á morgun.

Geir:

Já.

Davíð:

Lands­bank­anum verður vænt­an­lega lokað í dag bara.

Geir:

Já.

Davíð:

Við vitum ekki, reyndar vitum við ekki hvort það er árás á Kaupþing Edge. Við gerum ráð fyrir því þeir hafa ekki sagt okkur það ennþá.

Geir:

Er það á Icesave?

Davíð:

Það eru farnar 380 millj­ónir út af Icesave punda og það eru bara 80 millj­arðar.

Geir:

Þeir ráða aldrei við það, sko.

Davíð:

Nei, þeir ráða aldrei við neitt af því, sko, en þetta er það besta leiðin ef við getum afskrifað allar skuldir þjóð­ar­innar þó að það muni valda vand­ræðum í Evrópu þá en þeir bara hjálp­uðu okkur ekki neitt þannig að það er ha...

Geir:

Já, já.

Davíð:

Þannig að þetta er nú...

Geir:

Heyrðu, ég var að spá í að halda hérna fund klukkan eitt og ætl­aði að biðja þig að koma þangað annað hvort einan eða með þeim sem þú vilt hafa með með öllum for­mönnum stjórn­mála­flokk­anna.

Davíð:

OK.

Geir:

Og Fjár­mála­eft­ir­lit­inu?

Davíð:

Já.

Geir:

Til að fara yfir þetta og...

Davíð:

En það, getur þú ekki haft það Jónas ekki Jón Sig­urðs­son það er óeðli­legt að...

Geir:

Jónas, hann var hjá okkur í morgun.

Davíð:

Og hvað ertu að hugsa um að?

Geir:

Ég myndi vilja að það yrði farið í fyrsta lagi yfir frum­varpið án þess kannski að afhenda þeim það en...

Davíð:

En hvað mega menn vera ein­lægir?

Geir:

Ég er búinn að vera mjög ein­lægur við þá.

Davíð:

Já.

Geir:

Ég er eig­in­lega búinn að segja þeim þetta allt.

Davíð:

OK.

Geir:

Ég segi bara að við erum bara hérna að tala hérna saman í fyllstu ein­lægni um alvar­leg­ustu vanda­mál sem upp hafa komið í þjóð­fé­lag­inu og ég treysti ykkur til að fara ekki með það.

Davíð:

Já, já.

Geir:

Og það hafa þeir virt held ég ennþá.

Davíð:

Ja, þeir hafa sagt ein­hverjum af örugg­lega en það er bara, þú getur aldrei haldið lok­inu.

Geir:

Nei.

Davíð:

Fastara en þetta á.

Geir:

Nei, en...

Davíð:

Klukkan eitt eða hvað?

Geir:

Bara hérna hjá mér í rík­is­stjórn­ar­her­berg­inu.

Davíð:

Hérna niðri í stjórn­ar­ráði?

Geir:

Já.

Davíð:

OK.

Geir:

Spurs­málið er svo hérna...

Davíð:

Ég kem bara einn held ég, það er betra að vera þarna fámennt en fjöl­mennt.

Geir:

Já og þá myndum við fara almennt yfir heild­ar­mynd­ina.

Davíð:

Já.

Geir:

Og af hverju þessi lög eru nauð­syn­leg.

Davíð:

Já, já.

Geir:

Og svo er ég að plana það þannig að lögin verði orðin að lögum um sjöleytið, mælt fyrir þeim klukkan fjögur, þing­flokks­fundir klukkan þrjú og það ætti að skapa okkur rými til þess að...

Davíð:

Mælt fyrir þeim klukkan fjögur?

Geir:

Já.

Davíð:

OK.

Geir:

Já, er það ekki rétti tím­inn?

Davíð:

Jú, jú, jú, jú, jú, jú.

Geir:

Ég er búinn að und­ir­búa það að þetta geti fengið hraða afgreiðslu og þeir...

Davíð:

Já, já.

Geir:

Hafa haft góð orð um það.

Davíð:

Fínt er.

Geir:

OK bless, bless.

Davíð:

Bless.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

efnahagshrun

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Þegar fjöl­mið­ill velur að sitja á upp­lýs­ingum

Sá maka­lausi atburður átti sér stað í dag að Morg­un­blaðið birti afrit af sím­tali milli Geirs H. Haarde, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, og Davíðs Odds­sonar, fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóra, frá 6. októ­ber 2008. Í sím­tal­inu ræddu þeir um að veita Kaup­þingi, stærsta banka lands­ins, nán­ast allan aðgengi­legan gjald­eyr­is­forða þjóð­ar­innar, 500 millj­ónir evra, til að gefa bank­anum tæki­færi til að reyna að bjarga sér fyrir...
Fréttirefnahagshrun

Lyk­il­maður í Seðla­bank­anum braut trúnað um hrun­helg­ina

Sturla Pálsson, fram­kvæmda­stjóri mark­aðsvið­skipta og fjár­stýr­ingar hjá Seðla­banka Íslands, við­ur­kenndi að hafa brotið trúnað þegar hann upp­lýsti eig­in­konu sína, sem þá var lög­maður sam­taka fjár­mála­fyr­ir­tækja, um aðgerðir bank­ans í aðdrag­anda setn­ingu neyð­ar­lag­anna. Þetta kemur fram í vitna­skýrslu sem tekin var af Sturlu af sér­stökum sak­sókn­ara árið 2012 og fjallað verður um í Kast­ljósi í kvöld. Við skýrslu­tök­una var­aði Sturla sjálfur...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár