Kjarninn hefur stefnt Seðlabankanum og vill fá neyðarlánasímtalið

Kjarninn fer fram á að ógild verði með dóm ákvörðun Seðla­banka Íslands um að synja miðl­inum um aðgang að sím­tali Davíðs Odds­sonar og Geirs H. Haarde sem fram fór 6. októ­ber 2008. Kjarninn vill að réttur hans til aðgangs að sím­tal­inu sé við­ur­kenndur.

Kjarninn miðlar, móð­ur­fé­lag Kjarnans, hefur stefnt Seðla­banka Íslands og fer fram á að ógilt verði með dómi sú ákvörðun bank­ans að hafna kröfu Kjarnans um aðgang að hljóð­ritun og afritum af sím­tali milli þáver­andi for­manns Seðla­banka Íslands, Davíðs Odds­sonar, og þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, Geirs H. Haarde, sem átti sér stað 6. októ­ber 2008. Enn fremur gera Kjarninn kröfu um að við­ur­kenndur sé réttur Kjarnans til aðgangs að hljóð­ritun og afritum af sím­tal­inu. Í því er rætt um veit­ingu 500 milljón evra neyð­ar­láns til Kaup­þings sem kost­aði skatt­greið­endur á end­anum 35 millj­arða króna.

[links]Kjarninn óskaði eftir því með tölvu­pósti þann 6. sept­em­ber 2017 að fá aðgang að hljóð­rit­un­inni. Til­gang­ur­inn var að upp­lýsa almenn­ing um liðna atburði og vegna þess að framundan var birt­ing á tveimur skýrslum, þar af önnur sem unnin er af Seðla­bank­anum, þar sem atburðir tengdir sím­tal­inu verða til umfjöll­unar. Beiðnin var rök­studd með því að um væri að ræða einn þýð­ing­ar­mesta atburð í nútíma hag­sögu sem hefði haft í för með sér afdrifa­ríkar afleið­ingar fyrir íslenskan almenn­ing. Seðla­bank­inn hafn­aði beiðn­inni þann 14. sept­em­ber síð­ast­lið­inn og byggði þá ákvörðun ein­vörð­ungu á því að þagn­ar­skylda hvíldi yfir umræddum upp­lýs­ingum.

[adspot]Kjarninn ákvað í kjöl­farið að stefna Seðla­banka Íslands fyrir dóm­stóla til að reyna að fá ákvörðun Seðla­bank­ans hnekkt og rétt sinn til að nálg­ast ofan­greindar upp­lýs­ingar við­ur­kenndan á grund­velli upp­lýs­inga­laga. Í stefnu Kjarnans segir m.a.: „Þá telur stefn­andi að við mat á beiðni hans á afhend­ingu gagn­anna þurfi að líta til stöðu og skyldna stefn­anda sem fjöl­mið­ils í lýð­ræð­is­sam­fé­lagi. Réttur fjöl­miðla til þess að taka við og skila áfram upp­lýs­ingum og hug­myndum skiptir meg­in­máli fyrir almenn­ing. Beiðni stefn­anda lýtur að umræðum vald­hafa um umfangs­miklar efna­hags­að­gerðir sem snertu allan almenn­ing. Það er horn­steinn lýð­ræðis og for­senda rétt­ar­ríkis að fjöl­miðlar fjalli um brýn mál­efni með sjálf­stæðum rann­sóknum á upp­lýsandi hátt. Svo hægt sé að fjalla um þessi mál­efni er nauð­syn­legt að réttur til upp­lýs­inga sé tryggður með full­nægj­andi hætti og að tak­mark­anir á þeim rétti séu ekki túlk­aðar með rýmk­andi hætti.“

Stefnan var birt fyr­ir­svars­manni Seðla­bank­ans á mið­viku­dag og hún lögð fram í hér­aðs­dómi Reykja­víkur á fimmtu­dag.

Hægt er að lesa stefn­una í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár