Neyðarlán Kaupþings: Hvað gerðist, hvenær, hverjir tóku ákvörðun og hvert fóru peningarnir?

Nýjar upp­lýs­ingar hafa verið opin­ber­aðar um sím­tal sem leiddi af sér 500 millj­óna evra neyð­ar­lán til Kaup­þings. Enn eru upp­lýs­ingar um hver ákvað að veita lánið mis­vísandi og á huldi í hvað það fór.

Neyð­ar­lán Seðla­banka Íslands til Kaup­þings 6. októ­ber 2008 hefur reglu­lega ratað í fréttir á und­an­förnum árum. Það var upp á 500 millj­ónir evra, tæp­lega 78 millj­arða króna á gengi þess dags sem lánið var veitt. Tæpur helm­ingur láns­ins end­ur­heimt­ist aldrei þar sem veðið sem sett var fyrir lán­inu, danski bank­inn FIH, var fjarri því jafn verð­mætur og talið var í fyrstu.

Lánið komst aftur í hámæli í gær­kvöldi eftir að Kastljós og fréttir Stöðvar 2 birtu vitna­skýrslu frá 2012 þar sem það er til umfjöll­unar. Þar komu fram upp­lýs­ingar um inni­hald sím­tals milli Geirs H. Haarde, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, og Davíðs Odds­sonar, fyrr­ver­andi for­manns banka­stjórnar Seðla­banka Íslands, sem átti sér stað skömmu fyrir hádegi 6. októ­ber 2008. Eftir sím­talið lá fyrir ákvörðun um að veita lánið til Kaup­þings.

Blaða­menn Kjarnans hafa fjallað ítar­lega um þessa lán­veit­ingu árum saman. Hér að neðan eru helstu þættir máls­ins skýrðir.

Hvernig var ákvörðunin tekin?

Ljóst er að ákvörðun um veit­ingu láns­ins var tekin sam­dæg­urs, þann 6. októ­ber 2008. Í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis eru nokkrir vitn­is­burðir sem varpa frekara ljósi á hvernig ákvörðun um lán­veit­ing­una var tekin.

Hún lá til dæmis ekki fyrir klukkan 8:30 um morg­un­inn þegar Björgvin G. Sig­urðs­son, þáver­andi við­skipta­ráð­herra, lagði fram frum­varp sem síðar varð þekkt undir heit­inu neyð­ar­lögin. Í því frum­varpi var ekki ákvæði sem gerði Seðla­bank­anum kleift að taka veð í FIH bank­anum.

Það breytt­ist síðar um dag­inn. Í skýrslu­töku hjá rann­sókn­ar­nefnd­inni segir Sigríður Loga­dóttir, yfir­lög­fræð­ingur Seðla­bank­ans, að þennan morgun hafi það komið upp að Kaupþing er í vand­ræðum og það endar með því að Seðla­bank­inn ákveður að lána Kaup­þingi gegn veði í öllu FIH-bank­anum og það er sem sagt ákveðið á hádegi.“

Í vitna­skýrslu yfir Sturlu Páls­syni, fram­kvæmda­stjóra mark­aðsvið­skipta og fjar­stýr­ingar hjá Seðla­banka Íslands, hjá sér­stökum sak­sókn­ara árið 2012 kemur fram að sím­tal milli Dav­íðs Odds­sonar og Geirs H. Haarde, þar sem rætt var um lán­veit­ing­una, hafi átt sér stað klukkan 11.57 mánu­dag­inn 6. októ­ber. Þar segir einnig að það hafi farið fram í gegnum síma Sturlu, sem var við­staddur sím­tal­ið. Við skýrslu­tök­una sagði Sturla að Davíð hafi vitað að sími Sturlu væri hljóð­rit­aður og því frekar tekið sím­talið úr síma sam­starfs­manns síns en úr sínum eig­in. Eng­inn annar var við­staddur sím­tal­ið.

Í vitna­skýrsl­unni er birt end­ur­rit af hluta sím­tals­ins, og er það í fyrsta sinn sem slíkt er birt opin­ber­lega. Þar er haft eftir Dav­íð: „Í dag getum við skrapað saman 500 millj­ónir evra og erum þá nátt­úru­lega komnir inn að beini. Getum þá hjálpað Kaup­þingi í ein­hverja fjóra fimm daga en þá getum við ekki hjálpað Lands­bank­anum líka sko.“

Eftir að sím­tal­inu lauk hringdi Davíð í Hreiðar Má Sig­urðs­son, þáver­andi for­stjóra Kaup­þings, og til­kynnti honum að Kaup­þing myndi fá fyr­ir­greiðsl­una sem beðið hefði verið um. Í vitna­skýrsl­unni segir að: „Aðspurður um hvenær sú ákvörðun hefði legið fyrir að SÍ ætl­aði að hjálpa Kaup­þingi en ekki LÍ kvað SP að DO hafa sagt að ekki yrði hæg að bjarga báðum bönk­un­um. DO hafi sagt GHH að þeir fengju þennan pen­ing ekki til baka og að ákvörð­unin hafi í raun verið GHH.“

Klukkan 13:34 bár­ust skila­boð frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu til við­skipta­ráðu­neyt­is­ins þar sem það var beðið um að bæta þessu ákvæði inn.

Var allur gjaldeyrisvaraforðinn lánaður?

Lánið sem Kaupþing fékk var nán­ast allur nettó gjald­eyr­is­vara­forði Seðla­bank­ans, eða sá gjald­eyrir sem var vistaður í bank­anum og var á pari við eigin fé hans.

Til við­bótar hafði Seðla­bank­inn hins vegar yfir erlendu reiðufé sem var vistað ann­ars staðar og lána­línum sem hægt væri að draga á. Það er því rétt að nán­ast allur gjald­eyrir í Seðla­bank­anum hafi verið lán­aður, en rangt að allur gjald­eyr­is­vara­forð­inn hafi verið lán­aður.

Hver fór með yfirráð yfir FIH bankanum?

Upp­haf­lega var lánið veitt til fjög­urra daga. Kaupþing féll hins vegar í milli­tíð­inni og Fjár­mála­eft­ir­litið tók yfir bank­ann 9. októ­ber 2008. Það var því ljóst að bank­inn þyrfti að ganga að veð­inu. En upp kom vanda­mál. Það var ekki ljóst hvort seðla­bank­inn mátti raun­veru­lega eiga fjár­mála­fyr­ir­tæki á borð við FIH.

Á neyð­ar­laga­dag­inn, eftir hádegið, sendi for­sæt­is­ráðu­neytið bón á við­skipta­ráðu­neytið um að breyta neyð­ar­lög­unum þannig að seðla­bank­anum væri gert kleift að eiga fjár­mála­fyr­ir­tæki, svo Seðla­bank­inn gæti tekið FIH sem veð fyrir lán­inu til Kaup­þings. Davíð Oddsson þrýsti á þetta ákvæði í sím­tali við ráðu­neyt­is­stjóra við­skipta­ráðu­neyt­is­ins.

Líkt og frægt er orðið þá breytti ráðu­neytið frum­varp­inu með þeim hætti að nafn FIH var sér­stak­lega tekið fram í stað þess að ákvæðið væri almennt. Við það varð allt vit­laust, enda væg­ast sagt ekki gott fyrir banka að það sé sér­stak­lega til­tekið í lögum að ríki geti tekið hann yfir. Í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar segir að seðla­banka­fólk hafi fengið „"sjokk“ og Davíð nátt­úru­lega tromp­að­ist, þannig að hann hérna talar við Jóninu [Lár­us­dóttur þá ráðu­neyt­is­stjóra í við­skipta­ráðu­neyt­inu] og bara gjöra svo vel að taka þetta út „med det samme“.

Við­skipta­ráðu­neytið brást við með því að fella ákvæðið með öllu út úr neyð­ar­lög­unum, ekki með því að gera það almennt.

Þar sem heim­ild Seðla­bank­ans að halda á FIH var ekki til staðar í lög­unum skap­að­ist mikil óvissa um það eftir fall Kaup­þings hvort Seðla­bank­inn gæti raun­veru­lega gengið að veð­inu. Mikil átök áttu sér stað milli hans og slita­stjórnar Kaup­þings um hvor færi með for­ræði yfir FIH sem stuð­aði dönsk stjórn­völd mikið.

Var FIH gott veð?

Sigurður Ein­ars­son, þáver­andi stjórn­ar­for­maður Kaup­þings, sagði í Kast­ljós­inu sama dag og neyð­ar­lánið var veitt að hann „rétt­læti það að við höfum fengið þessa fyr­ir­greiðslu vegna þess að þetta er mjög öruggt lán. Vegna þess að við stöndum mjög vel og Seðla­bank­inn er öruggur um að fá þessa pen­inga til baka […] Ég get sagt það kinn­roða­laust“.

Davíð Oddsson sagði dag­inn eftir í sama þætti að ef lánið feng­ist ekki greitt þá myndi „Seðla­bank­inn eign­ast mjög góðan banka í Danmörku, FIH“.

Það kom fljót­lega í ljós að FIH, sem var á þessum tíma sjötti stærsti banki Dan­merkur, var ekki sá happa­fengur sem bæði lán­veit­endur og lán­tak­endur stórs hluta gjald­eyr­is­forða íslensku þjóð­ar­innar á þeim tíma þegar lánið var veitt vildu meina. Staða bank­ans var verri en haldið hafði verið fram.

Þann 30. júní 2009 þurfti danska ríkið að veita FIH víkj­andi lán upp á 1,9 millj­arða danskra króna. Til við­bótar ábyrgð­ist danska ríkið mán­uði síðar skulda­bréfa­út­gáfu FIH upp á 50 millj­arða danskra króna, um eitt þús­und millj­arða íslenskra króna. Aðstoðin var veitt undir for­merkjum svo­kall­aðs „Bankapakka II“ sem danska ríkið hafði sett saman til að bjarga sínu banka­kerfi. Pakkinn sner­ist um að ábyrgj­ast inn­lán og skulda­bréfa­út­gáfu danskra fjár­mála­fyr­ir­tækja sem eftir því ósk­uðu. Danska ríkið var því í reynd búið að bjarga eign íslenska Seðla­bank­ans.

Danska banka­sýslan (Fin­ansiel Stabilittet) og danska fjár­mála­eft­ir­litið (Fin­an­stil­sy­net) fylgd­ust náið með því hvernig FIH bragg­að­ist og þrýstu mikið á að leyst yrði úr eig­enda­málum bank­ans til að hann gæti fjár­magnað sig á mark­aði.

FIH bankinn í Danmörku hefur reynst örlagavaldur í íslensku efnahagslífi.
FIH bank­inn í Danmörku hefur reynst örlaga­valdur í íslensku efna­hags­lífi.

Þegar leið á haustið 2010 taldi Seðla­banki Íslands, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans, raun­veru­lega hættu á því að FIH yrði tek­inn yfir af dönskum stjórn­völdum ef ekki tæk­ist að selja bank­ann mjög hratt. Um miðjan sept­em­ber var þeim skila­boðum komið á fram­færi við Seðla­bank­ann að allt hlutafé í FIH yrði mögu­lega skrifað niður og hann tek­inn yfir af danska fjár­mála­eft­ir­lit­inu ef bank­inn yrði ekki seldur fyrir þriðju­dag­inn 21. sept­em­ber 2010. Ef það hefði verið gert hefði veð Seðla­bank­ans í FIH orðið verð­laust og krafa hans yrði almenn krafa í þrotabú Kaup­þings.

Var hægt að fá meira fyrir FIH?

Því var sagt frá því í sept­em­ber 2010 að FIH hefði verið seldur. Tveir hópar voru sagðir hafa barist um að kaupa FIH. Berl­inske Tidende sagði frá því að hærra til­boðið væri aðeins hærra en 500 millj­ónir evra en að hitt væri aðeins lægra og byði upp á auknar greiðslur síðar meir. Í dönskum fjöl­miðlum var sagt að Seðla­banki Íslands vildi taka fyrra til­boð­inu. Þessi atburða­rás og til­urð hærra til­boðs­ins hefur hins vegar ekki verið stað­fest af þeim aðilum sem áttu hlut að máli.

Því síð­ara var hins vegar tekið og hefur ekki verið upp­lýst af hverju það var. Vert er hins vegar að taka fram að danska banka­sýslan myndi á end­anum taka ákvörðun um hver fengið að eign­ast bank­ann. Inn í þá ákvörðun gæti ýmis­legt annað spilað en bara upp­hæð, til dæmis hæfi til að eiga banka.

Í til­kynn­ingu frá Seðla­banka Íslands var sagt að kaup­verðið á FIH væri 103 millj­arðar króna, eða 670 millj­ónir evra. Því virt­ist sem Seðla­bank­inn hefði hagn­ast veru­lega á þess­ari „fjár­fest­ingu“. Það átti eftir að reyn­ast fjarri sann­leik­anum.

Nýir eig­endur stað­greiddu ein­ungis um helm­ing þeirra upp­hæðar sem Kaupþing hafði fengið lán­aða, 39 millj­arða króna eða um 255 millj­ónir evra. Afgang­ur­inn var selj­enda­lán sem Seðla­bank­inn veitti nýjum eig­endum og átti að end­ur­greið­ast að ákveðnum skil­yrðum upp­fylltum fram til loka árs­ins 2014.

Selj­enda­lánið bar enga vexti. Auk þess var sam­þykkt að afskriftir allra eigna sem voru á efna­hags­reikn­ingi FIH þegar hann var seldur myndu drag­ast frá lán­inu. Á hinn bóg­inn myndi virði þess aukast ef helm­ings­hlutur sem FIH átti óbeint í skart­gripa­fram­leið­and­anum Pandoru myndi hækka. Að lokum var sett inn ákvæði um að end­ur­heimt Seðla­bank­ans yrði meiri ef kaup­enda­hóp­ur­inn næði fjár­fest­ingu sinni til baka fyrir árs­lok 2015.

Hvernig spilaðist úr FIH?

Síðan kaup­samn­ing­ur­inn var gerður hefur FIH afskrifað upp­hæð sem sam­svarar upp­hæð selj­enda­láns­ins. Í ljós kom að útlán bank­ans voru fjarri því að vera jafn trygg og af var látið. Það átti sér­sta­lega við um lán til félaga í fast­eigna­rekstri og bygg­inga­iðn­aði. Berl­ingske Tidende greindi frá því árið 2011 að FIH hefði verið pen­inga­baukur fyrir áhættu­fjár­festa í þessum geirum, sem gengu undir nafn­inu Millj­arða­mær­inga­klúbb­ur­inn, á meðan bank­inn var í eigu Kaup­þings. Flestallir með­limir þess klúbbs eru gjald­þrota í dag og greiddu ekki lán sín til baka.

Í maí síð­ast­liðnum hætti FIH í raun að vera banki þegar það seldi 2/3 af við­skipta­vinum sínum til Spar Nord. Í ágúst var síðan sam­þykkt að selja lán 24 stóra við­skipta­vina til við­bótar til Nykredit-bank­ans. FIH lánar því ekki lengur út fé og tekur ekki við nýjum inn­lánum. Frá og með mars­mán­uði munu inn­láns­eig­endur sem enn eiga inn­stæður hjá bank­anum meira að segja að þurfa að borga honum fyrir að geyma pen­ing­anna sína. Eina sem eftir er af upp­haf­legri starf­semi FIH er fyr­ir­tækja­ráð­gjöf bank­ans.

Það spil­að­ist því ekki vel úr FIH.

Hvað varð um peningana?

Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrrum for­stjóri Kaup­þings, skrif­aði grein í Frétta­blaðið í októ­ber 2014 þar sem hann sagði að ekk­ert „af fjár­magn­inu sem Kaupþing fékk frá Seðla­banka Íslands var notað til kaupa á eigin skulda­bréfum Kaup­þings eins og haldið hefur verið fram. Allt fjár­magnið var nýtt til að tryggja aðgang við­skipta­vina bank­ans í fjöl­mörgum löndum Evrópu að banka­inni­stæðum sínum, tryggja aðgang dótt­ur­banka Kaup­þings í Evrópu að lausafé og mæta veð­köllum bank­ans vegna fjár­mögn­unar hans og við­skipta­vina hans á verð­bréfum hjá alþjóð­legum bönkum í Evrópu. Með öðrum orðum þá var allt féð notað til að tryggja sem frekast var kostur rekstur og hag Kaup­þings og við­skipta­vina bank­ans.

Enginn eig­andi, við­skipta­vinur, stjórn­andi eða starfs­maður bank­ans hagn­að­ist um svo mikið sem um eina evru vegna láns Seðla­banka Íslands. Engar óeðli­legar fjár­magns­hreyf­ingar áttu sér stað með and­virði láns­ins og starfs­menn Kaup­þings sem komu að ráð­stöfun láns­ins gengu til sinna starfa af heið­ar­leika.“

Í gæslu­varð­halds­úr­skurði yfir Magnúsi Guð­munds­syni, fyrrum for­stjóra Kaup­þings í Lúx­em­borg, frá árinu 2010 segir hins vegar að lán­veit­ingar til ýmissa vild­ar­við­skipta­vina bank­ans, kaup á eigin skulda­bréfum og aðrir fjár­mála­gern­ingar sem hafa verið til rann­sóknar hjá emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara hafi verið fram­kvæmdir eftir veit­ingu neyð­ar­láns­ins. Þar segir einnig að „umræddar lán­veit­ingar hafi falið í sér mjög mikla fjár­tjóns­hættu fyrir Kaupþing banka hf. Gríð­ar­lega háar fjár­hæðir hafi verið lán­aðar eign­ar­lausum félögum til afar áhættu­samra við­skipta og hags­munum hlut­hafa og kröfu­hafa með því stefnt í stór­fellda hættu. Síðustu lán­veit­ing­arnar hafi átt sér stað eftir gild­is­töku neyð­ar­lag­anna og veit­ingu Seðla­banka Íslands á 500.000.000 EUR neyð­ar­láni til Kaup­þings banka hf.“

Í febrúar í fyrra sagði Már Guðmundsson seðlabankastjóri við RÚV að hann ætlaði að láta taka saman opinbera skýrslu um tildrög þess að Kaupþing fékk neyðarlánið. Ekkert hefur spurst til þeirrar skýrslu.
Í febr­úar í fyrra sagði Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri við RÚV að hann ætl­aði að láta taka saman opin­bera skýrslu um til­drög þess að Kaupþing fékk neyð­ar­lánið. Ekkert hefur spurst til þeirrar skýrslu.

Komið hefur fram í gögnum að sér­stakur sak­sókn­ari telur að til­gangur hluta þess­ara við­skipta­vina hafi verið að „flytja fallandi verð­gildi skulda­bréf­anna af eig­endum þeirra og yfir á Kaupþing á Íslandi“.

Hvaða máli skiptir að upplýsa þetta?

Í októ­ber 2014 greindi Kjarninn frá því að tap skatt­greið­enda vegna láns­ins til Kaup­þings sé 35 millj­arðar króna. Þá er ekki tekið inn í dæmið sá vaxta­kostn­aður sem til dæmis hefði verið hægt að spara ef þeir fjár­munir hefðu verið nýttir í að greiða niður lán íslenska rík­is­ins, eða sá þjóð­hags­legi ábati sem orðið hefði ef féð væri notað til ann­arra sam­fé­lags­legra verk­efna.

Þrátt fyrir gríð­ar­lega mikla fjöl­miðlaum­fjöllun um málið eru hins vegar enn mis­vísandi mein­ingar um það hver tók ákvörðun um veit­ingu láns­ins. Yfir­lög­fræð­ingur Seðla­bank­ans sagði við rann­sókn­ar­nefnd Alþingis að Seðla­bank­inn hefði ákveðið að veita lánið. Geir H. Haarde sagði í sjón­varps­við­tali í októ­ber 2014 að Seðla­bank­inn hefði haft fulla heim­ild til að veita lánið. Björn Þor­valds­son, sak­sókn­ari í Al Thani-mál­inu svo­kall­aða, sagði í mál­flutn­ingi fyrir hér­aðs­dómi telja að þau fölsku hug­hrif sem kaupin hefðu valdið hefðu átt þátt í að Seðla­bank­inn veitti umrætt lán. Davíð Oddsson sagði í Reykja­vík­ur­bréfi um liðna helgi að rík­is­stjórn Geirs H. Haarde hefði tekið ákvörð­un­ina. Már Guð­munds­son, núver­andi Seðla­banka­stjóri, hefur hins vegar síðar sagt að ábyrgðin á lán­inu hvíli alltaf á end­anum á Seðla­bank­anum. Það liggur því alls ekki fyrir hvernig lánið var veitt.

Til er sím­tal milli Geirs og Davíðs frá 6. októ­ber 2008 þar sem þeir ræða lán­veit­ing­una. Geir hefur ekki viljað veita heim­ild fyrir því að upp­takan verði gerð opin­ber.

Í febr­úar 2015 skrif­aði Davíð Reykja­vík­ur­bréf í Morg­un­blað­ið. Þar sagði að þar sem gjald­eyr­is­vara­­forði Seðla­­banka Íslands í októ­ber 2008 var til­­kom­inn vegna skulda­bréfa­út­­­gáfu rík­­is­­sjóðs hafi banka­­stjórar Seðla­­bank­ans litið svo á að það það yrði að vera vilji rík­­is­­stjórn­­­ar­inn­­ar, ekki bank­ans, sem réði því hvort Kaup­­þing fengi hann nán­­ast allan að láni þennan dag. Í Reykja­vík­ur­bréf­inu stóð: „Þeir sem báðu um aðstoð­ina [Kaup­­þing] héldu því fram, að rík­­is­­stjórnin vildi að þessi fyr­ir­greiðsla yrði veitt. Þess vegna fór sím­talið við for­­sæt­is­ráð­herr­ann fram. Til­­viljun réð því að það sím­­tal var hljóð­­rit­að. Þess vegna átti fyr­ir­greiðslan sér að lokum stað gegn alls­herj­­­ar­veði í banka sem tal­inn var standa mjög ríf­­lega undir því.“ Að sögn Dav­íðs var það því Geir sem tók ákvörð­un­ina um að lána Kaup­þingi.

Geir, sem er núver­andi send­i­herra Íslands í Banda­­ríkj­un­um, sagði hins vegar í fréttum Stöðvar 2 í maí í fyrra að það hafi verið mis­­tök að veita Kaup­­þingi lánið. Því miður hafi ekki allt verið sem sýnd­ist hjá bank­­anum og hann staðið veikar en látið var. Lánið hefði því aldrei dugað til að bjarga bank­­anum og pen­ing­­arnir ekki farið í það sem þeir áttu að fara.

Í svari við fyr­ir­spurn Kast­ljóss vegna nýrra upp­lýs­inga í mál­inu, sem sagt var frá í gær, sagði Geir að for­sæt­is­ráð­herra ætti ekki að þurfa að sæta því að emb­ætt­is­menn rík­is­ins hljóð­riti sam­töl við hann „án hans vit­und­ar“. Þá sagði hann það alveg skýrt að Seðla­bank­inn hafi borið ábyrgð á lán­inu, þó hann hafi talið það til­raun­ar­innar virði. Það séu von­brigði að veð sem Seðla­bank­inn taldi trygg, skyldu ekki hafa duga fyrir lán­inu.

Enn liggur heldur ekki fyrir í hvað pen­ing­arnir sem Kaupþing fékk lánað fóru. Um það eru frá­sagnir mis­vísandi. Mikil vilji virð­ist vera fyrir því að fá skýr og end­an­leg svör við þessum tveimur spurn­ingum: hver tók ákvörð­un­ina og í hvað fór lánið.

Hefur málið verið rannsakað?

Engin form­leg rann­sókn hefur hins vegar farið fram á neyð­ar­lánsveit­ing­unni. Rann­sókn­ar­nefnd Alþingis skoð­aði lán­veit­ing­una ítar­lega en hún var ekki á meðal þeirra mála sem nefndin til­kynnti til rík­is­sak­sókn­ara þegar hún lauk störfum. Embætti sér­staks sak­sókn­ara, sem nú heitir hér­aðs­sak­sókn­ari, hefur enn­fremur ekki form­lega rann­sakað málið, en það getur tekið mál upp að eigin frum­kvæði. Fjár­laga­nefnd Alþingis fjall­aði lengi um málið og kall­aði eftir ýmsum upp­lýs­ingum um það, en á vegum hennar fór ekki fram form­leg rann­sókn.

Í febr­úar í fyrra sagði Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri við RÚV að hann ætl­aði að láta taka saman opin­bera skýrslu um til­drög þess að Kaupþing fékk neyð­ar­lánið. Ekkert hefur spurst til þeirrar skýrslu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár