Geir: Ábyrgðin var Seðlabankans

For­sæt­is­ráð­herra á ekki að þurfa að sæta því að emb­ætt­is­menn rík­is­ins hljóð­riti sam­töl við hann „án hans vit­undar“. Þetta segir Geir H. Haarde, fyrr­ver­andi for­sæts­ráð­herra og nú sendi­herra Íslands í Banda­ríkj­unum, um þá frá­sögn starfs­manns Sturlu Páls­sonar, starfs­manns Seðla­banka Íslands, að til­viljun hafi ekki ráðið því að Davíð Oddsson hljóð­rit­aði sam­tal þeirra. Þá segir hann það alveg skýrt, að Seðla­bank­inn hafi borið ábyrgð á lán­inu, þó hann hafi talið það til­raun­ar­innar virði. Það séu von­brigði að veð sem Seðla­bank­inn taldi trygg, skyldu ekki duga fyrir lán­inu.

Þetta kemur fram í umfjöllun RÚV um sím­tal Geirs og Davíðs Odds­sonar, þáver­andi for­manns stjórnar Seðla­banka Íslands, 6. októ­ber 2008, þegar ákveðið var að lána Kaup­þingi 500 millj­ónir evra sama dag og neyð­ar­lögum var beitt. Um 35 millj­arðar króna af upp­hæð­inni eru tap­aðir.

Í skjali þar sem Geir svarar fyr­ir­spurnum Kast­ljóss, vegna máls­ins, sem birt hefur verið á vef RÚV, kemur fram að Seðla­bank­inn hafi borið ábyrgð á lán­veit­ing­unni. „Þegar Seðla­bank­inn veitti Kaup­þingi neyð­ar­lánið lá fyrir að Kaupþing gat lagt fram veð sem var umfram láns­upp­hæð­ina- svo­kallað alls­herj­ar­veð sem náði þar með einnig til ann­arra skulda bank­ans við Seðla­bank­ann. Þetta veð var FIH bank­inn í Danmörku. Seðla­bank­inn kann­aði það sér­stak­lega hjá Seðla­banka Dan­merkur hvort þetta veð væri ekki örugg­lega traust og fékk skýr svör um að svo væri. Ítrekaði seðla­banka­stjóri það í sam­tal­inu að lánið yrði aldrei veitt nema gegn öruggu veði. Það var Seðla­bank­inn sem veitti lánið til Kaup­þings en það var gert að höfðu sam­ráði við mig sem for­sæt­is­ráð­herra sem hafði hvorki þá né nú ákvörð­un­ar­vald yfir lán­veit­ingum bank­ans,“ segir í Geir í svari sínu við fyr­ir­spurn Kast­ljóss.

Sturla Páls­son, fram­kvæmda­stjóri mark­aðsvið­skipta og fjár­stýr­ingar hjá Seðla­banka Íslands, við­ur­kenndi að hafa brotið trúnað þegar hann upp­lýsti eig­in­konu sína, sem þá var lög­maður sam­taka fjár­mála­fyr­ir­tækja, um aðgerðir bank­ans í aðdrag­anda setn­ingu neyð­ar­lag­anna. Þetta kemur fram í vitna­skýrslu sem tekin var af Sturlu af sér­stökum sak­sókn­ara árið 2012 og fjallað verður um í Kast­ljósi í kvöld.

Við skýrslu­tök­una var­aði Sturla sjálfur við því að inn­herjar gætu nýtt sér það hversu seint neyð­ar­lögin voru sett. Stur­la, sem starfar enn í Seðla­bank­an­um, upp­lýsti bank­ann ekki um fram­burð sinn hjá sér­stökum sak­sókn­ara fyrr en eftir að Kast­ljós spurð­ist fyrir um málið hjá hon­um. Frá þessu er greint á vef RÚV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár