Davíð taldi víst að neyðarlánið væri tapað

Endurrit úr frægu sím­tali milli Davíðs Odds­sonar og Geirs H. Haarde hefur verið birt. Davíð taldi víst að lánið myndi ekki end­ur­greið­ast og að Geir hefði tekið ákvörðun um veit­ingu þess. Davíð skipti um síma til að sím­talið yrði hljóð­ritað.

Davíð Oddsson, þáver­andi for­maður banka­stjórnar Seðla­banka Íslands og núver­andi rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, taldi víst að neyð­ar­lán til Kaup­þings sem veitt var 6. októ­ber 2008 myndi ekki end­ur­greið­ast og að Geir H. Haarde, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, hefði í raun tekið ákvörðun um að veita lánið. Hann skipti sér­stak­lega um síma til að geta hljóð­ritað sím­tal sitt við Geir þar sem fjallað var um lánið.

Frá þessu var greint í kvöld­fréttum Stöðvar 2 í dag en þar var fjallað um frægt sím­tal milli Davíðs og Geirs þegar lán­veit­ingin var ákveðin. Endurrit úr sím­tal­inu er að finna í vitna­skýrslu yfir Sturlu Pálssyni, fram­kvæmda­stjóra mark­aðsvið­skipta og fjár­stýr­ingar hjá Seðla­banka Íslands, hjá sér­stökum sak­sókn­ara árið 2012 sem frétta­stofan hefur undir höndum. Þegar hefur verið boðað að málið verði til umfjöll­unar í Kast­ljósi kvölds­ins.

Í vitna­skýrsl­unni yfir Sturlu Pálssyni kemur fram að sím­talið milli Davíðs og Geirs hafi átt sér stað klukkan 11.57 mánu­dag­inn 6. októ­ber. Þar segir einnig að það hafi farið fram í gegnum síma Sturlu, sem var við­staddur sím­talið. Við skýrslu­tök­una sagði Sturla að Davíð hafi vitað að sími Sturlu væri hljóð­rit­aður og því frekar tekið sím­talið úr síma sam­starfs­manns síns en úr sínum eigin. Enginn annar var við­staddur sím­talið.

Í vitna­skýrsl­unni, sem birt var í fréttum Stöðvar 2, er birt end­ur­rit af hluta sím­tals­ins, og er það í fyrsta sinn sem slíkt er birt opin­ber­lega. Þar er haft eftir Davíð: „Í dag getum við skrapað saman 500 millj­ónir evra og erum þá nátt­úru­lega komnir inn að beini. Getum þá hjálpað Kaup­þingi í ein­hverja fjóra fimm daga en þá getum við ekki hjálpað Lands­bank­anum líka sko.“

Eftir að sím­tal­inu lauk hringdi Davíð í Hreiðar Má Sig­urðs­son, for­stjóra Kaup­þings, og til­kynnti honum að Kaupþing myndi fá fyr­ir­greiðsl­una sem beðið hefði verið um. Í vitna­skýrsl­unni segir að: „Aðspurður um hvenær sú ákvörðun hefði legið fyrir að SÍ ætl­aði að hjálpa Kaup­þingi en ekki LÍ kvað SP að DO hafa sagt að ekki yrði hæg að bjarga báðum bönk­unum. DO hafi sagt GHH að þeir fengju þennan pen­ing ekki til baka og að ákvörð­unin hafi í raun verið GHH.“

Hefur áður sagt að Geir beri ábyrgð á láninu

Í febr­úar 2015 skrif­aði Davíð Reykja­vík­ur­bréf í Morg­un­blaðið. Þar sagði að þar sem gjald­eyr­isvara­forði Seðla­banka Íslands í októ­ber 2008 var til­kom­inn vegna skulda­bréfa­út­gáfu rík­is­sjóðs hafi banka­stjórar Seðla­bank­ans litið svo á að það það yrði að vera vilji rík­is­stjórn­ar­inn­ar, ekki bank­ans, sem réði því hvort Kaup­þing fengi hann nán­ast allan að láni þennan dag. Í Reykja­vík­ur­bréf­inu stóð: „Þeir sem báðu um aðstoð­ina [Kaup­þing] héldu því fram, að rík­is­stjórnin vildi að þessi fyr­ir­greiðsla yrði veitt. Þess vegna fór sím­talið við for­sæt­is­ráð­herr­ann fram. Til­viljun réð því að það sím­tal var hljóð­rit­að. Þess vegna átti fyr­ir­greiðslan sér að lokum stað gegn alls­herj­ar­veði í banka sem tal­inn var standa mjög ríf­lega undir því.“ Að sögn Davíðs var það því Geir sem tók ákvörð­un­ina um að lána Kaup­þingi.

Geir, sem er núver­andi sendi­herra Íslands í Banda­ríkj­un­um, sagði hins vegar í fréttum Stöðvar 2 í maí í fyrra að það hafi verið mis­tök að veita Kaup­þingi 500 milljón evra lán neyð­ar­laga­dag­inn 6. októ­ber 2008. Því miður hafi ekki allt verið sem sýnd­ist hjá bank­anum og hann staðið veikar en látið var. Lánið hefði því aldei dugað til að bjarga bank­anum og pen­ing­arnir ekki farið í það sem þeir áttu að fara.

35 millj­arða tap skatt­greið­enda

Kjarn­inn greindi frá því í októ­ber 2015 að tap skatt­greið­enda vegna lán­veit­ing­ar­innar verði um 35 millj­arðar króna.

Lánið hefur verið ítrekað til umfjöll­unar í opin­berri umræðu á und­an­förnum árum. Alþingi hefur í nokkur skipti reynt að kom­ast til botns í því hvers vegna lánið var veitt, og hefur afrit af sím­tali Dav­íðs Odds­sonar og Geirs H. Haarde meðal þess sem borið hefur á góma. Þó sím­talið hafi á sínum tíma verið tekið upp, og afrit af því til, þá hefur það ekki verið gert opin­bert.

Lánið hefur einnig komið inn á borð yfir­valda sem rann­saka ýmis mál tengd hruni fjár­mála­kerf­is­ins. Í ákæru­skjali emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara í máli hans gegn Hreið­ari Má Sig­urðs­syni, Sig­urði Ein­ars­syni og Magn­úsi Guð­munds­syni vegna umboðs­svika, sem birt var í byrjun maí 2014, kom fram að þær lán­veit­ingar sem emb­ættið telur ólög­legar hafi meðal ann­ars átt sér stað eftir veit­ingu Seðla­bank­ans á 500 milljón evra lán­inu að mati emb­ætt­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

efnahagshrun

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Þegar fjöl­mið­ill velur að sitja á upp­lýs­ingum

Sá maka­lausi atburður átti sér stað í dag að Morg­un­blaðið birti afrit af sím­tali milli Geirs H. Haarde, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, og Davíðs Odds­sonar, fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóra, frá 6. októ­ber 2008. Í sím­tal­inu ræddu þeir um að veita Kaup­þingi, stærsta banka lands­ins, nán­ast allan aðgengi­legan gjald­eyr­is­forða þjóð­ar­innar, 500 millj­ónir evra, til að gefa bank­anum tæki­færi til að reyna að bjarga sér fyrir...
Fréttirefnahagshrun

Lyk­il­maður í Seðla­bank­anum braut trúnað um hrun­helg­ina

Sturla Pálsson, fram­kvæmda­stjóri mark­aðsvið­skipta og fjár­stýr­ingar hjá Seðla­banka Íslands, við­ur­kenndi að hafa brotið trúnað þegar hann upp­lýsti eig­in­konu sína, sem þá var lög­maður sam­taka fjár­mála­fyr­ir­tækja, um aðgerðir bank­ans í aðdrag­anda setn­ingu neyð­ar­lag­anna. Þetta kemur fram í vitna­skýrslu sem tekin var af Sturlu af sér­stökum sak­sókn­ara árið 2012 og fjallað verður um í Kast­ljósi í kvöld. Við skýrslu­tök­una var­aði Sturla sjálfur...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár