Kappræður ársins eru í kvöld

Mikil spenna er í Frakk­landi fyrir kosn­ing­arnar um næstu helgi. Freyr Eyj­ólfs­son, sem búsettur er í Frakk­landi, hefur fylgst með spenn­unni magn­ast upp und­an­farnar vikur.

Emmanuel Macron og Marine Le Pen mætast í kappræðum í sjónvarpi í kvöld.
Emmanuel Macron og Marine Le Pen mæt­ast í kapp­ræðum í sjón­varpi í kvöld. Mynd: EPA

Í kvöld verða kapp­ræður árs­ins í frönskum stjórn­málum. Þá mæt­ast for­seta­fram­bjóð­end­urnir Emmanuel Macron og Marine Le Pen. Kosið verður á sunnu­dag. Öll Evrópa fylgist spennt með; fram­tíð Evr­ópu­sam­bands­ins virð­ist vera í húfi í þessum for­setaslag, sem end­ur­speglar einnig þróun stjórn­mála í álf­unni. Macron vill efla sam­starf Evrópu, en Le Pen draga úr því. Búist er við hörðum umræðum þar sem tek­ist verður á um inn­flytj­enda­mál, alþjóða­væð­ingu og ein­angr­un­ar­stefnu. Kapp­ræð­urnar verða í beinni útsend­ingu í rúma tvo tíma. Allt er lagt undir. Bæði tóku þau sér frí í gær til þess að und­ir­búa sig fyrir átökin. Þetta er mik­il­væg­asti við­burður kosn­inga­bar­átt­unar. Áhorfið er gríð­ar­legt, margir kjós­endur gera upp hug sinn eftir þessa útsend­ingu.

Sögulegur sjónvarpsviðburður

Frakkar hafa upp­lifað mörg dramat­ísk atvik í þess­ari mik­il­vægu sjón­varps­út­send­ingu. Það var ískalt and­rúms­loft þegar François Mitt­er­and og Valéry Giscard tók­ust á 1981. Fyr­ir­litn­ing skein úr augum þeirra, háðsk og eitruð orð féllu.

Frægar eru sömu­leiðis harð­vít­ugar kapp­ræður Mitt­er­and og Jaques Chirac árið 1988. Þá höfðu þessir miklu mótherjar þurft að starfa saman í rík­is­stjórn, til­neyddir, í heil tvö ár. Mitt­er­and ávarp­aði Chiraq stöðugt sem for­sæt­is­ráð­herra sem fór afskap­lega í pirr­urnar á Chirac og kom honum úr jafn­vægi. Hann brást við með því að kalla for­set­ann Herra Mitt­er­and (sem er ákveð­inn dóna­skapur) og Mitt­er­and svar­aði þá með því að kalla hann Herra for­sæt­is­ráð­herra. Chirac brást reiður við og sagði: „Má ég bara minna þig á að ég er ekki for­sæt­is­ráð­herra og þú ert ekki starf­andi for­seti. Við erum tveir fram­bjóð­endur á jafn­rétt­is­grund­velli.“

Umræð­urnar breytt­ust hálf­part­inn í hanaslag og skít­kast og franska þjóðin var í hálf­gerðu sjokki yfir þessu öllu saman. Chirac var alla tíð þekktur fyrir að vera djarfur og fram­sæk­inn í kapp­ræðum en þarna svar­aði Mitt­er­and honum fullum hálsi og var end­ur­kjör­inn fyrir vikið.

Frægustu kapp­ræð­urnar eru þó kannski þær sem fóru aldrei fram. Árið 2002 komst Jean-Marie Le Pen, faðir Marine Le Pen, í seinni umferð kosn­ing­anna, en sitj­andi for­seti, Jaques Chirac, neit­aði að mæta honum.

Öllu meira gekk á þegar Ségolène Royal, fyrsta konan til þessa að kom­ast í seinni umferð for­seta­kosn­ing­anna, mætti Nicolas Sarkozy í sjón­varp­s­kapp­ræðum 2007. Sarkozy, sem er þekktur ræðu­kappi, átti í vök að verj­ast fyrsta klukku­tím­ann og var kom­inn út í horn þegar Royal sak­aði hann um spill­ingu og van­rækslu í starfi. Allt stefndi í rot­högg þegar Sarkozy spurði Royal hvort hún hefði virki­lega taug­arnar í þetta starf, hún væri stöðugt að missa stjórn á skapi sínu. Sarkozy horfði aldrei til hennar, heldur til þátt­ar­stjórn­enda. Karl­rembustælar sem komu Royal úr jafn­vægi.

Í kvöld er búist við fjör­ugum umræðum. Le Pen og Macron eru algjörar and­stæður í póli­tík, hann er frjáls­lyndur, evr­ópusinni; hún þjóð­ern­issinnuð, hægri öfga­kona og and­stæð­ingur ESB. Hún hefur látið í sér heyra í vik­unni, kallað Macron elítu­strák og þjón auð­valds­ins. Hann er öllu kurt­eis­ari en lætur hana ef til vill finna til tevatns­ins í kvöld.

Gæti dræm kjörsókn orðið Macron að falli?

Samkvæmt öllum skoð­ana­könn­unum ætti Macron að hafa betur á sunnu­dag, en reynsla síð­asta árs (banda­rísku for­seta­kosn­ing­arnar og Brexit) sýnir okkur að ekki er alltaf hægt að treysta þeim. Flestar kann­anir sýna mik­inn mun. Macron 60% og Le Pen 40%.

Macron virð­ist samt ekki geta treyst á vinstra fólk í þessum slag. Mikill meiri­hluti stuðn­ings­manna Jean-Luc Mélenchon ætlar ekki að kjósa Macron á sunnu­dag­inn kemur. Um 36% þeirra ætla að skila auðu eða ógildu, 29% ætla ekki að mæta. Einungis 35% segj­ast ætla að styðja Macron. Mélenchon, sem lenti í fjórða sæti, hefur ekki fylgt for­dæmi Francois Fillon og Benoît Hamon og lýst yfir stuðn­ingi á Macron. Margir hafa gagn­rýnt hann fyrir að leggja ekki sitt af mörkum til þess að halda Front National frá völdum og kalla hann sið­lausan vinstri öfga­mann. Hann ætlar samt að kjósa og hefur sagt við blaða­menn að það þurfi nú enga sér­fræð­inga til þess að giska á hvað hann kjósi að lokum. „Heldur virki­lega ein­hver að ég muni kjósa Front National? En ég styð ekki áætlun Macron, mér lýst ekk­ert á hvað hann ætlar að gera.“

Þetta er því sýnd veiði en ekki gefin fyrir Emmanuel Macron, hann gæti lent í vand­ræðum ef kjör­sókn verður dræm. Til þess að Marine Le Pen fari með sigur af hólmi þarf aðvitað eitt­hvað meiri­háttar að ger­ast. En reynslan hefur einmitt sýnt okkur að allt getur einmitt gerst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár