Fleiri gifta sig utan þjóðkirkjunnar

Helm­ingur þeirra para sem gekk í hjóna­band í síð­asta mán­uði gifti sig innan þjóð­kirkj­unnar. Hlutfall kirkj­unnar í hjóna­vígslum hefur farið minnk­andi á síð­ustu árum en um ald­ar­mótin var hlutur þjóð­kirkj­unnar rúm­lega 71 pró­sent.

Hlutur þjóð­kirkj­unnar í hjóna­vígslum hefur farið minnk­andi und­an­farin ár. Um síð­ustu ald­ar­mót fóru um 70 pró­sent hjóna­vígsla fram í þjóð­kirkj­unni en á síð­asta ári var hlut­fallið innan við 50 pró­sent. Á sama tíma­bili hafa hjóna­vígslum hjá sýslu­manni fjölgað veru­lega eða farið úr rúm­lega 13 pró­sent um ald­ar­mótin í rúm­lega 31 pró­sent í fyrra. Þá hefur hlutur ann­arra trú­fé­laga auk­ist úr 7 pró­sent í rúm­lega 15,5 pró­sent.

Í tölum Þjóð­skrár má sjá að af þeim 484 ein­stak­lingum sem giftu sig í síð­asta mán­uði kusu um tæp­lega 50 pró­sent að gera það hjá þjóð­kirkj­unni. [adspot]

Þá gengu 144 í hjú­skap hjá sýslu­manni í júlí síð­ast­liðnum eða 29,8 pró­sent, 82 ein­stak­lingar gengu í hjú­skap í öðru trú­fé­lagi og 18 ein­stak­lingar gengu í hjú­skap erlendis.


Fækkar áfram í þjóðkirkjunni

[links]Á sama tíma og sífellt færri ganga í hjú­skap innan þjóð­kirkj­unnar þá fækkar einnig þeim sem skráðir eru í kirkj­una. Frá 1. des­em­ber á síð­asta ári hefur skráðum í þjóð­kirkj­unni fækkað um 632 manns á tíma­bil­inu. Nú eru 232.040 ein­stak­lingar skráðir í þjóð­kirkj­una.

Þessar tölur ríma við þróun síð­ustu ára en í byrjun árs 2009 náði fjöldi þeirra lands­­­manna sem skráðir eru í þjóð­­­kirkj­una met­­­tölu, en þá voru 253.069 lands­­­menn í henni. Frá þeim tíma hefur þeim fækkað jafnt og þétt.

Miklu fjármagni ráðstafað til þjóð­kirkjunnar í fyrra

Til­­­veru­­­réttur þjóð­­­kirkj­unnar er tryggður í stjórn­­­­­ar­­­skrá lands­ins. Þar segir að hin evang­el­íska lút­­­­erska kirkja skuli vera þjóð­­­­kirkja á Íslandi og að rík­­­­is­­­­valdið eigi bæði að styðja hana og vernda.Í krafti þessa fær þjóð­­­­kirkja umtals­verða fjár­­­­muni úr rík­­­­is­­­­sjóði. Þaðan er til að mynda greitt fram­lag til Bisk­­­­ups Íslands, í Kirkju­­­­mála­­­­sjóð og Jöfn­un­­­­ar­­­­sjóð sókna.

Fram kom í fréttum í des­em­ber síð­ast­liðnum að í fjár­­auka­lögum vegna árs­ins 2018 hefði fjár­­heim­ild til trú­­mála verið hækkuð um 820 millj­­ónir króna. Þessi hækkun skýrð­ist ann­­ars vegar af því að fram­lag til þjóð­­kirkj­unnar hefði verið aukið um 857 millj­­ónir króna og hins vegar hefðu fram­lög vegna sókn­­ar­gjalda lækkað um 37 millj­­ónir króna vegna end­­ur­­mats á fjölda ein­stak­l­inga í skráðum trú­­fé­lög­­um.

Þetta fram­lag kom til við­­bótar því fjár­­­magni sem þegar hafði verið ráð­stafað til þjóð­­kirkj­unnar á fjár­­lög­­um. Sam­tals var áætlað að þessi upp­­­­hæð yrði 2.830 millj­­­­ónir króna árið 2018. Til við­­­­bótar fékk þjóð­­­­kirkjan greidd sókn­­­­ar­­­­gjöld í sam­ræmi við þann fjölda sem í henni var. Sam­tals kost­aði rekstur þjóð­­kirkj­unnar því tæp­­­­lega 4,6 millj­­­­arða króna árið 2018 áður en að við­­bót­­ar­fram­lagið var sam­­þykkt. Það hækk­­aði rík­­is­fram­lagið um tæp 19 pró­­sent.

Þá er ekki með­­­­talið rúm­­­­lega 1,1 millj­­­­arðs króna fram­lag til kirkju­­­­garða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

trúmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár