Hvers vegna hafa vonarstjörnur þróunarlandanna dofnað?

Hag­vöxtur í Síle og Suður- Afríku hefur verið lít­ill und­an­farin ár, en löndin voru bæði þekkt fyrir mikla vel­sæld í fátækum heims­hlutum. Hvað veldur efna­hagslægð þeirra?

Michelle Bachelet, forseti Síle.
Michelle Bachelet, for­seti Síle. Mynd: EPA

Síle og Suður-Afríka hafa lengi þótt fyr­ir­mynd­ar­ríki í Suður-Ameríku og Afríku, tveimur heims­álfum þar sem lítið er um efna­hags­fram­farir. Hins vegar lítur út fyrir að hraður efna­hags­vöxtur beggja landa hafi stoppað, en síð­ustu ár hafa verið þeim sér­stak­lega erfið. Hver er ástæða kuln­un­ar­innar og hvað er til ráða fyrir fyrrum von­ar­stjörnur þró­un­ar­land­anna?

Fjögurra ára kólnun

Seðla­banki Síle býst við 1-2% hag­vexti í ár, sem er mun lægri en vöxtur fyrri ára. Til dæmis var hann 7% árið 2004 og 5,8% árin 2011 og 2012, skömmu eftir alþjóða­krepp­una.

Raunar hefur hag­vöxtur síð­ustu fjög­urra ára í Síle verið sá minnsti í þrjá ára­tugi. Lægðina má að miklu leyti skýra með sam­drætti á kop­ar­mark­aði, en landið er mjög háð útflutn­ingi á rauð­málmum. Teikn eru hins vegar á lofti um að sú lægð sé á enda, sem gæti leitt til frek­ari fjár­fest­inga í kop­ar­iðn­aði á næst­unni.

Forseti Síle, Michelle Bachelet, hefur einnig verið gagn­rýnd harð­lega fyrir aukna skatt­heimtu, en árið 2014 ákvað hún að hækka fyr­ir­tækja­skatt um þriðj­ung á fimm árum. Líkt og and­stæð­ingar hækk­un­ar­innar bentu á hefur hún leitt til minni fjár­fest­inga erlendis frá og hægt á hag­kerfi sem átti nógu erfitt fyrir.

Bachelet naut mik­illa vin­sælda þegar hún var kosin og hlaut hún 62% atkvæða. Þó hefur stuðn­ingur hennar dalað hratt með versn­andi efna­hags­stöðu lands­ins og mæld­ist um 24% í mars síð­ast­liðnum.

Skuggi Pinochet vofir yfir

Stjórn­málaum­hverfi Síle hefur verið tví­skipt eftir valda­tíð ein­ræð­is­herr­ans Augusto Pinochet. Flestir for­svars­menn í stjórn­ar­and­stöðu hafa stutt ógn­ar­stjórn Pinochet á meðan margir innan rík­is­stjórn­ar­innar hafa barist gegn honum.

En nú, 27 árum eftir valda­tíð ein­ræð­is­herr­ans, sjást fyrstu vís­bend­ingar um breyt­ingar innan beggja fylk­inga. Vegna efna­hags­vand­ræða und­an­far­inna ára eru kristi­legir demókratar byrj­aðir að efast um tryggð við stjórn­mála­fylk­ingu sem inni­heldur bæði komm­ún­ista- og sós­í­alista­flokk. Einnig hafa sprottið upp nýir miðju­flokkar sem reyna að höfða til frjál­syndrar félags­mála- og efna­hags­stefnu án þess að tengj­ast gömlu fas­ista­stjórn­inni. Í fyrsta skiptið virð­ast kosn­ingar í Síle ekki lengur vera bar­átta milli tveggja eins­leitra valda­blokka sem skil­greindar eru eftir við­horfi gagn­vart ógn­ar­stjórn sem end­aði fyrir ald­ar­fjórð­ungi síðan.

Svipuð vandamál í Suður-Afríku

Annað land sem hefur þurft að þola lægð í efna­hags­líf­inu er Suður-Afríka, en þótt landið sé talið vera hávaxt­ar­land hefur árlegur hag­vöxtur þar ekki verið hærri en 2% síð­ustu fimm árin. Margir þættir eru taldir hafa áhrif þar, en aðal­lega þó lágt hrá­vöru­verð og pólítískar hrær­ingar.

Líkt og Síle er Suður-Afríka háð námu­vinnslu, en útflutn­ingur á jarð­efnum og málmum var 40% af heild­ar­út­flutn­ingi lands­ins árið 2015. Þar sem heims­mark­aðs­verð á hrá­vörum hefur verið í nokk­urri lægð und­an­farin ár hefur það komið sér­stak­lega niður á Suður-Afr­íku­mönnum. Þar að auki hafa grimmir þurrkar haft nei­kvæðar afleið­ingar á land­bún­að­ar­geir­ann og mat­væla­fram­leiðsla hefur dreg­ist veru­lega saman.

Fyrir Zuma en ekki aðra

Kreppan í Suður-Afríku er ekki bara til­komin vegna ytri aðstæðna, en margar ákvarð­anir Jacob Zuma, for­seta lands­ins, hafa leitt til lægra láns­hæf­is­mats rík­is­ins og mik­illar veik­ingar suður-afríska rands­ins. Van­traustið náði hámarki í apríl síð­ast­liðnum, en þá lækk­aði Standard & Poors láns­hæf­is­mat rík­is­skulda­bréfa þeirra niður í rusl­flokk í kjöl­far þess að Zuma end­ur­skip­aði tíu ráð­herra í rík­is­stjórn sinni. For­set­inn hefur verið sak­aður um að ýta undir spill­ingu en flokkur hans, ANC, hefur tögl og hagldir í opin­bera geira lands­ins.

Vin­sældir for­set­ans hafa dvínað nokkru að und­an­förnu, en í apríl síð­ast­liðnum var honum mót­mælt víða um landið.

Hins vegar nýtur Zuma enn mik­illa vin­sælda meðal margra Suður-Afr­íku­búa, einna helst vegna stjórn­mála­flokks­ins sem hann stendur fyrir. Flokkur Zuma, ANC, var helsta bar­áttu­afl fyrir útrým­ingu aðskiln­að­ar­stefn­unnar sem gilti í land­inu til árs­ins 1994. Samkvæmt frétt BBC telja margir stuðn­ings­menn ANC hvers konar breyt­ingar á stjórn­mála­kerf­inu geta ýtt land­inu aftur í „myrka tíma aðskiln­aðar“. Ekki er búist við því að Zuma stigi af stóli á næst­unni, en næstu alls­herj­ar­kosn­ingar í Suður-Afríku verða árið 2019.

Fram á veginn

Síle og Suður-Afríka eru lík að mörgu leyti. Þrátt fyrir að hafa verið efna­hags­fyr­ir­myndir tveggja heims­álfa standa þau nú frammi fyrir svip­uðum vanda­málum. Lágt hrá­vöru­verð og pólítískar hrær­ingar und­an­far­inna ára und­ir­strika veik­leika lands þar sem frum­vinnsla nátt­úru­auð­linda er stór hluti lands­fram­leiðslu þeirra.

Vilji ríkin ekki reiða sig á óstöðuga hrá­vöru­fram­leiðslu er mik­il­vægt að þau efli gagn­sæi í stjórrn­sýslu og verði opin fyrir erlendum fjár­fest­ingum, en til þess þarf stjórn­málaum­hverfi beggja land­anna að breyt­ast. Hræðsla við ógn­ar­stjórnir sem lauk fyrir meira en tveimur ára­tugum síðan ætti ekki að vera ráð­andi þáttur í upp­bygg­ingu efna­hags­kerf­is­ins, líta þarf fram á veg­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár