Bjarni Benediktsson og Ólöf Nordal á aflandsfélagalistanum

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og Ólöf Nordal, vara­for­maður hans, eru bæði á lista yfir þá íslensku aðila sem tengj­ast aflands­fé­lögum, sam­kvæmt frétt vef­mið­ils­ins Eyjunnar. Þar segir að nöfn nokkur hund­ruð Íslend­inga sé finna á tveimur listum yfir nöfn þeirra sem átt hafa aflands­fé­lög eða banka­reikn­inga í skatta­skjólum. Margir þeirra séu þjóð­þekktir.

Hópur sem sam­anstendur af fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­inu Reykja­vík Media, alþjóð­legu rann­sókn­ar­blaða­mennsku­sam­tök­unum ICIJ og ýmsum fjöl­miðlum, meðal ann­ars Kast­ljósi, er að vinna að frétta­röð um þá sem til­greindir eru á öðrum list­anum. Fyrr í dag var greint frá því á vef RÚV að þrír ráð­herrar væru á meðal þeirra sem tengd­ust félögum skráðum í aflands­fé­lögum. Í nýrri frétt á vef RÚV hefur verið stað­fest að tveir ráð­herr­anna séu Bjarni og Ólöf. Þar kemur fram að Bjarni teng­ist félag­inu Falson og Co, sem hann seg­ist hafa talið að hafi verið skráð í Lúx­em­borg. Ólöf teng­ist félagi sem Lands­bank­inn stofn­aði fyrir eig­in­mann hennar, Tómas Sig­urðs­son. Hún segir það aldrei hafa verið notað. Hvorugt félagið mun lengur vera til.

Forsætisráðherra einn þeirra

Í dag eru liðnar tæpar tvær vikur frá því að Anna Sig­ur­laug Páls­dóttir, eig­in­kona Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra, greindi frá því að hún ætti aflands­fé­lag sem héldi utan um miklar eignir hennar. Þær eignir nema um 1,2 millj­arði króna og eru í stýr­ingu hjá Credit Suisse bank­anum. Skömmu síðar var einnig greint frá því að hún ætti kröfur í slitabú allra stóru bank­anna sem féllu í októ­ber 2008. Þær kröfur eru til komnar vegna þess að Anna Sig­ur­laug keypti skulda­bréf af bönk­unum fyrir hrun. Heild­ar­um­fang þeirra er 523 millj­ónir króna og miðað við væntar end­ur­heimtir úr búum bank­anna má ætla að hún fái að minnsta kosti um 120 millj­ónir króna þegar kröf­urnar verða að fullu greiddar út úr búunum. 

Daginn eftir var upp­lýst að opin­berun Önnu Sig­ur­laugar kom í kjöl­far þess að Jóhannes Kr. Krist­jáns­son, sem rekur fjöl­miðla­fyr­ir­tækið Reykja­vík Media ehf., spurð­ist fyrir um aflandseignir for­sæt­is­ráð­herra­hjón­anna. Sú fyr­ir­spurn var í tengslum við ofan­greinda umfjöllun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár