Karolina Fund: Uppi og niðri og þar í miðju – úr alfaraleið

Nú er kvik­mynduð tón­leika­ferð í júlí 2019 á Karolina­fund.

Uppi og niðri og þar í miðju – úr alfara­leið er kvik­mynduð tón­leika­ferð í júlí næst­kom­andi, þar sem íslensk þjóð­lög verða flutt á 6 mögn­uðum stöðum á Íslandi. Þeir eru; Tjarn­ar­gígur í Laka­gígum, Akra­nes­viti, lýsistankur í Djúpavík, Stef­áns­hellir í Hall­mund­ar­hrauni, Botns­tjörn í Ásbyrgi og Emel­íuklappir í Grímsey.

Tón­leika­ferðin, sem á fáa sína líka, verður í júlí nk. Anna Jóns­dóttir sópran­söng­kona stendur á bak við verk­efnið og er konan í brúnni. Með henni í för verða Dragos Alexandrescu kvik­mynda­töku­maður og mynd­list­ar­maður og Árni Gylfason, hljóð­maður og kvik­mynda­töku­maður. Afurð­irnar verða svo tón­leika­mynd ætluð fyrir sjón­varp, inn­setn­ingar sem verða not­aðar á tón­leikum síðar, og einnig sjálf­stæð lista­verk og tón­list­ar­mynd­bönd.

[adspot]

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

Hug­myndin hefur verið að vaxa og dafna und­an­far­inn ára­tugi. Fyrsti vísir­inn varð til þegar ég var gisti­lista­maður í Music Omi í Hudson í New York fylki 2010, og var þá beðin um að segja sam­lista­mönnum mínum frá íslenskum tón­list­ar­arfi. Ég söng fyrir þau sýni­dæmi og það var án með­leiks. Þetta féll í afar frjóan jarð­veg, og ég vakn­aði sjálf til vit­undar um hversu kröft­ugt efni ég var með í far­stesk­inu, þar sem voru menn­ing­ar­arf­ur­inn og röddin. Þetta leiddi svo til útgáfu hljóm­disks­ins VAR sem var hljóð­rit­aður í lýsistanki á Djúpavík og í Akra­nes­vita, stöðum sem ég valdi með til­liti til hljóm­burðar. Ég fylgdi disknum eftir með tón­leika­ferð sum­arið 2015, á stöðum sem flestir eru þekktir fyrir annað en að vera eig­in­legir tón­leika­staðir, margir úti í nátt­úr­unni.

Í þess­ari ferð sem mér fannst göldrum lík­ust, með sínum ótrú­legum stöðum, lands­lagi og fólki, vakn­aði sú hug­mynd að gera sam­bæri­legt verk­efni, en ganga skref­inu lengra og kvik­mynda tón­leik­ana og umhverfið og umstangið sem fylgdi. Ég hef verið að und­ir­búa þessa ferð leynt og ljóst síðan þá.

Þegar ég fór að leita að sam­starfs­að­ilum heima og erlendis til að sjá um ýmsa þætti verk­efn­is­ins, komst ég í kynni við Dragos Alexandrescu, finnsk-rúm­enskan kvik­mynda­gerð­ar­mann. Hann sér um kvik­mynda­töku, og tón­leika­ferðin verður jafn­framt hluti af menn­ing­ar­verk­efn­inu 6263, en það er alþjóð­legt sam­starf lista­manna á norð­lægum breidd­argráðum (62. og 63.). Árni Gylfason hljóð­maður og kvik­mynda­töku­maður bætt­ist svo í hóp­inn og sér um hljóðið. Ingi­björg Hrönn Guð­munds­dóttir, fata­hönn­uður sér svo um að hanna bún­ing sér­stak­lega fyrir þetta verk­efni.

Draum­ur­inn er alveg að verða að veru­leika og ég er mjög ánægð að hafa fengið þetta frá­bæra fólk í lið með mér. Ég á von á því að þarna muni verða ódauð­legir og ógleym­an­legir tón­leikar, við­burðir og sam­vera.

Segðu okkur frá þema verk­efn­is­ins

E.t.v. mætti segja að sam­runi sé þemað. Samruni tón­listar, ljóð­listar, nátt­úru, gjörn­ings, myndar, hljóðs, sam­veru og sam­vinnu sem renna saman í eina heild sem verður töfr­andi and­ar­tak, í senn ein­stakt og ódauð­legt.

Sam­taka­máttur okkar og mik­il­vægi menn­ingar- og nátt­úru­varð­veislu?

Það er mik­il­vægt að geta leitað til fjöld­ans í gegnum fyr­ir­bæri eins og Karolina fund, því að verk­efni eins og þetta kostar svo­lítið meira en mat­ar­pen­ing­arnir heim­l­is­ins leyfa.

Það er mik­il­vægt að varð­veita menn­ing­ar­arf og við­burði og fag­ur­ferði nátt­úru þarf líka að varð­veita og gera ódauð­legt, enda gæfan fall­völt og lífið hverf­ult. Því er því gott að eiga góða að og hvert fram­lag skiptir máli í stóra sam­heng­inu.

Hér er hægt að taka þátt í verk­efn­inu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár