Magnús Orri Schram býður sig fram til formanns Samfylkingarinnar

Magnús Orri Schram hefur ákveðið að bjóða sig fram til for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar. Magnús vinnur sem ráð­gjafi hjá Capacent, en sat á þingi fyrir Sam­fylk­ing­una á síð­asta kjör­tíma­bili.

Í til­kynn­ingu til flokks­fé­laga Sam­fylk­ing­ar­innar frá Magnúsi Orra segir hann að fram­boð hans spretti upp meðal almennra félags­manna í Sam­fylk­ing­unni. „Fólk vill sjá breyt­ingar í starfi og for­ystu flokks­ins. Fjöldi fólks hefur hvatt mig til þátt­töku og er til­búið í verk­efnið með mér,“ segir Magnús Orri í til­kynn­ing­unni.

Magnús Orri segir helstu stefnu­mál sín vera að öll opin­ber heil­brigð­is­þjón­usta eigi að vera ókeypis, að jafna eigi skatt­byrð­ina og hækka skatta á rík­asta pró­sentið og lækka skatta á venju­legt launa­fólk. Þá eigi að fara í mark­vissar aðgerðir til að styðja ungt fólk sem er að kaupa sína fyrstu eign eða eru á leigu­mark­aði.

Einnig eigi að halda útboð á nýt­ingu auð­linda sem fjár­magni alvöru byggða­stefnu, við­hafa opið lýð­ræði þar sem almenn­ingur kemur að ákvarð­ana­töku og setja fram mark­vissa aðgerða­á­ætlun í ferða­þjón­ustu.

Helgi Hjörvar, þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, hefur þegar til­kynnt að hann ætli í for­manns­fram­boð. Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, hefur ekki enn til­kynnt um það hvort hann hygg­ist sækj­ast eftir end­ur­kjöri. Flokks­stjórn­ar­fundur fer fram hjá flokknum í dag. Ákveðið var í vik­unni að kosið verður um öll emb­ætti innan flokks­ins á lands­fundi flokks­ins í byrjun júní.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár