Flokkurinn klofinn vegna heilbrigðismála

Obamacare verður ekki afnumið í bráð.

Mitch McConnell, leiðtoga repúblikana í bandaríska þinginu, hefur ekki tekist að efna loforð sín um að fella Obamacare úr gildi.
Mitch McConnell, leið­toga repúblik­ana í banda­ríska þing­inu, hefur ekki tek­ist að efna lof­orð sín um að fella Obamacare úr gildi. Mynd: EPA

Repúblikönum í banda­ríska þing­inu mistókst í annað sinn að fá heil­brigð­is­mála­frum­varp sitt stað­fest í öld­unga­deild þings­ins í gær. Frá þessu er greint á vef Reuters.

Flokk­ur­inn hefur meiri­hluta í báðum deildum þings­ins og hefur for­seta í Hvíta hús­inu á sínum snærum en tekst ekki að afla stuðn­ings innan eigin raða fyrir nýju heil­brigð­is­mála­frum­varpi.

Það hefur verið repúblikönum mikið kapps­mál að geta afnumið heil­brigð­is­lög fyrr­ver­andi for­seta Baracks Obama, Obamacare. Það var eitt af þeirra helstu kosn­inga­lof­orðum í þing- og for­seta­kosn­ingum síð­asta vetur.

„Því miður þá er það ljóst núna að til­raun okkar til að afnema og sam­þykkja ný lög í stað Obamacare mun ekki takast,“ lét Mitch McConnel, leið­togi meiri­hluta repúblik­ana í öld­unga­þing­inu, hafa eftir sér í til­kynn­ingu til fjöl­miðla.

Repúblikanar hafa lofað því í sjö ár að um leið og þeir myndu ráða báðum deildum þings­ins og eiga for­seta í Hvíta hús­inu myndu þeir afnema heil­brigð­is­lög­gjöf Obama, sem þeir telja of kostn­að­ar­sama. Almenn­ingur telur Obamacare hins vegar mun betra en allar til­lögur repúblik­ana, miðað við skoð­ana­kann­anir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár