5,4 milljarða hagnaður hjá Íslandsbanka á öðrum ársfjórðungi

Hagnaður bank­ans jókst umtals­vert á öðrum árs­fjórð­ungi, og í raun á fyrri hluta árs­ins, miðað við sama tíma í fyrra. Útlán bank­ans hafa auk­ist um 8,2 pró­sent það sem af er ári vegna umsvifa í hús­næð­is­lánum.

Birna Einarsdóttir bankastjóri segir fyrri hluta þessa árs hafa verið viðburðaríkan.
Birna Ein­ars­dóttir banka­stjóri segir fyrri hluta þessa árs hafa verið við­burða­ríkan. Mynd: Íslandsbanki

Hagnaður Íslands­banka nam 5,4 millj­örðum króna á öðrum árs­fjórð­ungi og er það tölu­verð aukn­ing á milli ára en bank­inn hagn­að­ist um 1,2 millj­arða króna á sama tíma­bili í fyrra. Arðsemi eigin fjár var 11,6 pró­sent á árs­grund­velli á tíma­bil­inu sem er yfir fjár­hags­legum mark­miðum bank­ans. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem Íslands­banki sendi frá sér sam­hliða birt­ingu upp­gjörs fyrir annan árs­fjórð­ung.

Við­snún­ingur hefur orðið á rekstri Íslands­banka á fyrri hluta árs­ins sam­an­borið við árið í fyrra. Hagnaður af rekstri bank­ans nam 9 millj­örðum króna á fyrri helm­ingi árs­ins í ár sam­an­borið við tap upp á 131 milljón króna á sama tíma­bili í fyrra. Arðsemi eigin fjár á fyrstu sex mán­uðum þessa árs var 9,7 pró­sent á árs­grund­velli.

Inni í þessum hagn­að­ar­tölum er jákvæð virð­is­rýrnun en hún nam um 1,1 millj­arði króna á fjórð­ungnum sem skýrist aðal­lega vegna batn­andi útlits í ferða­þjón­ustu. Á sama tíma í fyrra var virð­is­rýrnun nei­kvæð um 2,4 millj­arða króna vegna áhrifa kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins.

Útlánavöxtur vegna mikilla umsvifa í húsnæðislánum

Hreinar vaxta­tekjur á fjórð­ungnum námu 8,4 millj­örðum króna og hækka þær um 200 millj­ónir króna frá fyrra ári, vegna stækk­unar lána­safns bank­ans. Útlán til við­skipta­vina juk­ust um 5,9 pró­sent á fjórð­ungnum, þ.e. frá lok mars, og hafa auk­ist um 8,2 pró­sent frá árs­lokum. Það er helst vegna umsvifa í hús­næð­is­lánum, þó einnig hafi orðið vöxtur í lánum til fyr­ir­tækja.

Hreinar þókn­ana­tekjur bank­ans námu 2,9 millj­örðum króna á tíma­bil­inu og hækk­uðu um 26 pró­sent milli ára. Þá námu hreinar fjár­muna­tekjur 619 millj­ónum króna á fjórð­ungnum sam­an­borið við 181 milljón króna tap á sama tíma­bili í fyrra en breyt­ingin stafar aðal­lega af hækk­unum á inn­lendum hluta­bréfa­mark­aði.

Hluta­fjár­út­boð bank­ans skýrir að stórum hluta hækkun á stjórn­un­ar­kostn­aði bank­ans sem hækk­aði um 10,5 pró­sent á milli ára og nam 6,5 millj­örðum á öðrum árs­fjórð­ungi. Ein­skiptis­kostn­aður vegna útboðs­ins nam 588 millj­ónum króna.

Kostn­að­ar­hlut­fall bank­ans lækk­aði á milli ára og var 49,9 pró­sent á öðrum árs­fjórð­ungi árs­ins en var 57,5 pró­sent á sama tíma í fyrra. Fyrir fyrri hluta árs­ins í ár er kostn­að­ar­hlut­fallið 50,6 pró­sent en var 60,1 pró­sent í fyrra.

Eigið fé bank­ans nam 190 ma. kr. í lok júní og heild­ar­eig­in­fjár­hlut­fall bank­ans var 22,9 pró­sent sam­an­borið við 21,9 pró­sent í lok mars, það er vel yfir mark­miði bank­ans sem er 18,3-19,8 pró­sent en lög­bundið lág­mark er 17,8 pró­sent

Verð hlutabréfa í bankanum hækkað um 37 prósent frá útboði

Í til­kynn­ingu frá bank­anum er haft eftir Birnu Ein­ars­dóttur banka­stjóra að rekstr­ar­nið­ur­staðan sé góð enda um við­spyrnu frá síð­asta ári að ræða. Að mati hennar hefur fyrri hluta árs­ins verið við­burða­ríkur.

„Það má með sanni segja að fyrri helm­ingur árs­ins hafi verið við­burða­ríkur hjá bank­anum. Hluta­bréf Íslands­banka voru tekin til við­skipta á Aðal­mark­aði Nasdaq Iceland þann 22. júní. Um var að ræða stærsta frumút­boð hluta­bréfa sem farið hefur fram hér á landi. Met­þátt­taka var í hluta­fjár­út­boð­inu og marg­föld umfram­eft­ir­spurn og er bank­inn með mesta fjölda hlut­hafa allra skráðra félaga á Íslandi,“ er haft eftir Birnu Ein­ars­dóttur, banka­stjóra Íslands­banka, í til­kynn­ingu frá bank­anum.

Íslenska ríkið á enn 65 pró­senta hlut í bank­anum en 35 pró­senta hlutur var seldur í hluta­fjár­út­boð­inu í júní. Þá fjölg­aði hlut­höfum um 24 þús­und en níföld eft­ir­spurn var í hluta­fjár­út­boð­inu. Fram kemur í skýrslu stjórnar að fjöldi hlut­hafa í lok júní hafi verið yfir 20 þús­und og því ljóst að þús­undir hafa selt bréf sín eftir að þau voru tekin til við­skipta. Verð bréf­anna hækk­aði um 20 pró­sent á fyrsta við­skipta­degi. Verð hluta­bréf­anna er í dag 108,5 krónur, sem er rúm­lega 37 pró­sentum hærra en útboðs­gengið sem var 79 krónur á hlut.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár