Beyoncé, Pútín og Trump meðal manneskja ársins

Stjórn­mála­leið­togar, Ólymp­íu­farar, vís­inda­menn og lista­fólk er í úrslitum í val­inu á mann­eskju árs­ins hjá TIME tíma­rit­inu í Banda­ríkj­unum. Tíma­ritið velur mann­eskju árs­ins á hverju ári og vekur valið jafnan athygli. Tilkynnt verður um valið á mið­viku­dag­inn, en þangað til hefur úrslita­list­inn verið gerður opin­ber.

Mann­eskjan sem verður fyrir val­inu er talin hafa haft mest áhrif á frétta­flutn­ing, til hins betra eða verra, á árinu sem er að líða.

Það kemur því kannski fáum á óvart að báðir for­seta­fram­bjóð­endur stóru flokk­anna í Banda­ríkj­unum séu á loka­list­anum. Hillary Clinton, sem fyrsta konan til að verða fram­bjóð­andi ann­ars stóru flokk­anna, og jafn­vel þótt hún tapað þá fékk hún meira en tveimur millj­ónum fleiri atkvæði en mót­fram­bjóð­and­inn og verð­andi for­set­inn, Donald Trump.

Vladimír Pútín Rúss­lands­for­seti og Narendra Modi, for­sæt­is­ráð­herra Indlands, eru líka á list­anum, sem og Recep Tayyip Erdoğan Tyrk­lands­for­seti og Nigel Farage, leið­togi breska Sjálf­stæð­is­flokks­ins UKIP.

Upp­ljóstr­ar­arnir í Flint í Michigan eru á meðal efstu ell­efu, en þeir komu upp um blý­eitr­anir í vatn­inu þar. Vís­inda­menn hjá CRISPR, sem hafa þróað bylt­ing­ar­kennda tækni við erfða­rann­sóknir, eru þar líka.

Mark Zuckerberg, stofn­andi og for­stjóri Facebook, kemst á list­ann. Á þessu ári fékk Facebook á sig mikla gagn­rýni í tengslum við falskar fréttir og meira en einn millj­arður manna notar nú mið­il­inn í sím­anum á hverjum ein­asta degi.

Að lokum eru Simone Biles og Beyoncé Knowles á list­anum. Tón­list­ar­konan Beyoncé er ekki síst þar vegna plöt­unnar Lemonade og tón­leika­ferða­lags um heim­inn. TIME segir hana hafa haldið áfram að koma á óvart og ögra, auk þess sem hún hafi notað áhrif sín til að tala um kyn­þátta­mis­rétti, ofbeldi lög­reglu og femín­isma.

Simone Biles skráði sig svo á spjöld sög­unnar á sínum fyrstu Ólymp­íu­leikum í sumar, þar sem þessi nítján ára gamla fim­leika­stjarna vann til ferna gull­verð­launa og einna brons­verð­launa, og styrkti stöðu sína sem sú besta í heim­inum.

Merkel fyrir valinu í fyrra

Í fyrra var það Angela Merkel Þýska­landskansl­ari sem var valin mann­eskja árs­ins. Tíma­ritið sagði að á árinu 2015 hafi ekki einu sinni, ekki tvisvar heldur þrisvar sinnum stigið upp þegar spurn­ingar vökn­uðu um það hvort Evrópa og Evr­ópu­sam­bandið lifðu af. Hún var þá þegar komin í ómissandi hlut­verk í því að stjórna skulda­krís­unum í Evrópu og hafi leitt Vest­ur­löndin í við­brögðum sínum við inn­limun Rússa á Krím­skag­anum og annað sem tengd­ist Úkra­ínu­deil­unni.

En árið 2015 hafi mögu­legt gjald­þrot Grikk­lands ógnað til­veru evru­svæð­is­ins, inn­flytj­enda- og flótta­manna­krísa hafi storkað hug­myndum um opin landa­mæri, og að lokum hafi hryðju­verkin í París end­ur­vakið þau við­brögð að vilja skella í lás, byggja landamæra­veggi og treysta eng­um. „Í hvert skipti steig Merkel upp,“ sagði tíma­rit­ið í umfjöllun sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár