Farsinn sem breyttist í harmleik

Skraut­legar sögur af „bunga bunga“ kyn­lífs­veislum Silvio Berlusconi fyrrum for­sæt­is­ráð­herra Ítalíu falla í skugg­ann af ásök­unum um vændi við ólög­ráða stúlku og dóms­máli þar sem eitt lyk­il­vitnið lést á grun­sam­legan hátt.

Silvio Berlusconi, fyrrum forsætisráðherra Ítalíu.
Silvio Berlusconi, fyrrum for­sæt­is­ráð­herra Ítalíu. Mynd: Flickr

Ýmis rétt­ar­höld hafa staðið yfir Silvio Berlusconi og svo­kall­aða „Rubygate“ mál­inu á Ítalíu í nær ára­tug. Í þeim hefur fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herr­ann verið sak­aður um að hafa keypt vændi af 17 ára stelpu í stórfurðu­legri kyn­lífs­veislu, mútað fjölda vitna til að þegja um atvikið og mis­notað emb­ætti sitt til að sleppa stelp­unni úr haldi lög­reglu. Fyrr í mán­uð­inum lést eitt lyk­il­vitni í mál­inu skyndi­lega, en grunur leikur á um að fyrir henni hafi verið eitrað.

Ítalski Trump

Þrátt fyrir að hafa verið far­sæll við­skipta­jöfur og vin­sæl­asti stjórn­mála­maður Ítalíu um ára­tuga­skeið er Silvio Berlusconi langt frá því að vera óum­deildur maður. Allt frá því hann hóf feril sinn í stjórn­málum um miðja tíunda ára­tug­inn sem eig­andi fjöl­miðla­veld­is­ins Mediaset og fót­boltaliðs­ins AC Milan hefur hann verið við­rið­inn ótal hneyksl­is­málum. Þeirra á meðal eru mál sem tengj­ast skattsvikum, hags­muna­á­rekstrum hans sem stjórn­mála- og við­skipta­maður auk ýmissa ummæla sem sýndu kven­fyr­ir­litn­ingu, ras­isma eða for­dóma gagn­vart sam­kyn­hneigðum. Vegna fyrr­nefndra atriða auk hás ald­urs, fjölda lýta­að­gerða og gíf­ur­legs per­sónu­fylgis hafa margir blaða­menn bent á lík­indi hans og Donald Trump Banda­ríkja­for­seta.

Rubygate

Eitt hneyksl­is­mál Berlusconi hefur þó dregið langan dilk á eftir sér og gæti leitt til þess að fyrrum for­sæt­is­ráð­herr­ann verði dæmdur til fang­els­is­vistar, en það er hið svo­kall­aða „Rubygate“ mál. Málið vísar til marokkóskrar vænd­is­konu að nafni Karima El Mahrough sem gekk undir nafn­inu Ruby Rubacuori, eða Ruby Hjarta­þjófur. Berlusconi liggur undir grun fyrir að hafa keypt vændi af Ruby árið 2010 þegar hún var aðeins 17 ára gömul, en hann gegndi emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra Ítalíu á þessum tíma.

Frænka Mubarak

Upptök máls­ins má rekja til hand­töku Karimu í Mílanó vegna gruns um þjófnað, en þar sem hún var ólög­ráða átti hún að vera vistuð á ung­linga­heim­ili. Hins vegar, áður en að því kom, hringdi Berlusconi sjálfur í lög­reglu­stjóra borg­ar­innar og krafð­ist þess að hún yrði látin laus und­ir­eins. For­sæt­is­ráð­herr­ann sagði lög­reglu­stjór­anum að Karima væri í raun frænka þáver­andi ein­ræð­is­herra Egypta­lands, Hosni Mubarak, og að rétt­ast væri að sleppa henni til að afstýra diplómat­ískri krísu milli land­anna.

Bunga bunga

Upp komst að Karima væri ótengd egypska ein­ræð­is­herr­anum og var hún því yfir­heyrð af lög­reglu skömmu síðar. Þar greindi hún frá sam­bandi sínu við Berlusconi og sagði hann hafa boðið henni í veislur á sveita­setri sínu og borgað henni fyrir að taka þátt í svoköll­uðum „bunga bunga“ kyn­lífs­at­höfnum. Lýsingar á þessum veislum eru stórfurðu­legar, en þær hafa meðal ann­ars inni­haldið súlu­dans hjá ungum stelpum í nunnu­bún­ingum og fata­fellu í AC Milan treyju með grímu af brasil­ísku fót­bolta­stjörn­unni Ron­ald­inho, sam­kvæmt lýs­ingu sjón­ar­votta.

Sekur, saklaus og aftur sekur?

Berlusconi hefur stað­fast­lega neitað ásök­unum um að nokk­urs konar kyn­lífs­veisla hafi átt sér stað á sveita­setri sínu og hefur lýst umræddum veislum sem „fínum kvöld­verð­ar­boðum.“ Hins vegar var hann dæmdur árið 2013 til 7 ára fang­els­is­vistar fyrir að hafa keypt vændi af ólög­ráða stelpu og mis­notað emb­ætti sitt sem for­sæt­is­ráð­herra. Berlusconi áfrýj­aði dómnum og var sýkn­aður af báðum ákærum, fyrst af áfrýj­un­ar­dóm­stóli árið 2014 og síðar af hæsta­rétti Ítalíu árið 2015.

Þrátt fyrir sýkn­una hófst nýtt dóms­mál gegn Berlusconi seinna sama ár þar sem grunur lék á um að hann hafi borgað vitnum máls­ins alls um tíu millj­ónir evra og gefið þeim fjölda gjafa fyrir að milda vitn­is­burð sinn. Meðal slíkra gjafa voru milli­færslur til Karimu frá banka­reikn­ingi í Antigua og afnot ann­ars vitnis afíbúð á 22. Hæð í Velasca-turn­inum í Mílanó. Dóms­málið er ansi viða­mikið og stendur enn yfir, en ásamt Berlusconi eru 27 aðrir ein­stak­lingar ákærðir fyrir að hafa annað hvort borgað eða þegið mútur.

Imane Fadil

Eitt af lyk­il­vitn­unum í mál­inu var Imane Fadil, marokkósk fyr­ir­sæta sem á að hafa tekið þátt í „bunga bunga“ partýj­unum hjá Silvio Berlusconi.Í við­tali við Imane í jan­úar síð­ast­liðnum sagð­ist hún hafa þurft að gjalda dýru verði vegna vitn­is­burðar síns vegna árása frá Berlusconi sjálfum og fylgd­ar­liði hans. Nokkrum dögum seinna var hún lögð inn á spít­ala vegna heift­ar­legra maga­verkja og tíðra upp­kasta. Á spít­al­anum var hún fyrst greind með bein­merg­s­bilun, en heilsu hennar hrak­aði stöðugt auk þess sem hún létt­ist tölu­vert. Þann fyrsta mars síð­ast­lið­inn lést Imane svo á spít­al­anum, 34 ára að aldri.

Imane sjálfa grun­aði að eitrað hafi verið fyrir henni og bað starfs­fólk spít­al­ans um að leita að spilli­efnum í lík­ama hennar. Nið­ur­stöður úr fyrstu eit­ur­efna­grein­ing­unni lágu fyrir þann 6. mars, en sam­kvæmt þeim eru engin aug­ljós merki um eitrun, þótt magn hinna ýmsu málma hafi verið óvenju­hátt í blóð­inu hennar. Síðasta föstu­dag úrskurð­uðu læknar í Mílanó svo að úti­lokað sé að eitrað hafi verið fyrir henni með geisla­virkum efnum.

Þrátt fyrir úrskurð lækn­ana er enn óljóst hvort eitrað hafi verið fyrir henni með öðrum hætti, en lög­fræð­ingur Imane segir mögu­legt að henni hafi verið byrlað með málmum. Aðrir læknar hafa tekið undir þessar vanga­veltur, en ekk­ert er hægt að segja um það fyrr en nið­ur­stöður úr krufn­ingu á Imane liggur fyrir á næstu dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár