Geymdi háleynileg gögn heima hjá sér

Meðal þess sem alrík­is­lög­reglan lagði hald á í hús­leit á heim­ili Donalds Trump voru háleyni­leg gögn sem ekki má opna nema undir örygg­is­gæslu innan rík­is­stofn­ana Banda­ríkj­anna.

Um er að ræða enn eitt skrefið í margþættri rannsókn á tilraunum Trump til þess að halda völdum.
Um er að ræða enn eitt skrefið í marg­þættri rann­sókn á til­raunum Trump til þess að halda völdum. Mynd: EPA

Mikið fjaðrafok varð í Banda­ríkj­unum á dög­unum þegar fregnir bár­ust af því að alrík­is­lög­reglan hefði farið inn á eitt heim­ila Donalds Trump, fyrr­ver­andi Banda­ríkja­for­seta, til þess að gera þar hús­leit. Trump og stuðn­ings­fólk hans fór hörðum orðum um stofn­un­ina, sem það sagði spillta öfga­stofnun undir stjórn vinstri­manna, en það virt­ist alveg gleym­ast í hama­gangnum að það var sjálfur Trump sem til­nefndi for­stjóra hennar, Christopher Wray.

Til að byrja með ná lokkur leynd yfir því hvað það var nákvæm­lega sem alrík­is­lög­reglan var að leita að í Mar-a-Lago, „vetr­ar­heim­ili for­set­ans“ í Flórída, en stutt er síðan hluti rétt­ar­hald­anna vegna árás­ar­innar á þing­húsið í Washington DC þar sem til­raun var gerð til að varpa hluta ábyrgð­ar­innar á for­set­ann fyrr­ver­andi stóðu yfir.

Í gær gerði alrík­is­lög­reglan loks grein fyrir hús­leit­inni og því sem þar fannst. Um var að ræða aðgerð vegna rann­sóknar vegna gruns um brot á njósn­a­lög­gjöf­inni meðal ann­ars og lagði alrík­is­lög­reglan hald á ell­efu gagna­söfn, þar af nokkur sem inni­héldu háleyni­leg gögn, og önnur sem inni­héldu leyni­leg og við­kvæm gögn, að því er fram kemur í umfjöllun New York Times. Samkvæmt lögum má aðeins geyma og bera augum háleyni­leg gögn innan öruggra veggja rík­is­stofn­ana Banda­ríkj­anna.

Um er að ræða enn eitt skrefið í marg­þættri rann­sókn á til­raunum hans til þess að halda völdum. Ljóst þykir að hann er hald­inn alls kyns rang­hug­myndum um heim­ildir for­seta, nú eða fyrr­ver­andi for­seta, en ekki er um að ræða fyrsta dæmi þess að hann líti svo á að á gögn sem hann hafði yfir­sýn með sem for­seti til­heyri honum per­sónu­lega, þó kannski sé um að ræða alvar­leg­asta dæmið.

Þá þykir hús­leit þessi og það sem þar upp­götv­að­ist til marks um hversu háal­var­legir glæp­irnir sem for­set­inn fyrr­ver­andi er grun­aður um eru, en Trump þykir lík­legur til þess að bjóða sig aftur fram til for­seta í næstu for­seta­kosn­ingum í Banda­ríkj­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár