Steingrímur: Kjósendur velja þá sem starfa saman, ekki stjórnmálamennirnir sjálfir

Fyrr­ver­andi for­maður Vinstri grænna segir að það geti kostað samn­inga við aðra og mála­miðl­anir að kom­ast í aðstöðu til að geta fram­kvæmt hlut­ina. Hann segir stjórn­mála­menn velji ekki sjálfir þá sem þeir þurfa að starfa með á Alþingi eða í sveit­ar­stjórnum.

Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður og fyrrverandi formaður Vinstri grænna.
Stein­grímur J. Sig­fús­son, þing­maður og fyrr­ver­andi for­maður Vinstri grænna. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Stein­grímur J. Sig­fús­son, þing­maður Vinstri grænna og fyrr­ver­andi for­maður flokks­ins, segir að kjós­endur hafi valið þá sem þurfi að starfa saman á Alþingi. Raun­veru­legum tæki­færum sem skap­ist til að bæta sam­fé­lagið og gera mann­lífið betra eigi ekki að kasta frá sér að óat­hug­uðu máli. Slík tæki­færi til að hafa áhrif vaxi ekki á trjánum. Þetta segir Stein­grímur í aðsendri grein sem birt­ist í Morg­un­blað­inu í morgun.

Flokkur hans, Vinstri græn, eru sem stendur í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum við Sjálf­stæð­is­flokk og Fram­sókn­ar­flokk. Töluverð ólga hefur verið innan flokks­ins vegna þessa og yfir 100 manns hafa sagt sig úr honum. Þá hefur ung­liða­hreyf­ing Vinstri grænna lýst sig and­snúna við­ræð­unum og tveir af ell­efu þing­mönnum flokks­ins kusu gegn því að hefja þær. Í nýlegri skoð­ana­könnun MMR kom í ljós að 57 pró­sent kjós­enda Vinstri grænna vildu síst sjá Sjálf­stæð­is­flokk­inn í rík­is­stjórn af öllum þeim flokkum sem eiga full­trúa á Alþingi.

Í grein sinni í dag veltir Stein­grímur, sem var aðal­hvata­mað­ur­inn af stofnun Vinstri grænna og var for­maður flokks­ins árum saman, því fyrir sér hvers vegna fólk taki þátt í stjórn­málum. Hann telur að flestir geri það til að láta gott af sér leiða. „Óháð því hver meg­in­hvat­inn var fyrir stjórn­mála­þátt­töku hvers og eins í byrjun er gefið að það munu skipt­ast á skin og skúrir, sigrar og ósigrar. Menn ná árangri og gleðj­ast á einum tíma en sjá lít­inn árangur erf­iðis síns og verða fyrir von­brigðum á öðrum tímum. Þetta skyldu allir hafa hug­fast sem hyggja á þátt­töku í stjórn­málum. Um leið er óhemju mik­il­vægt að þessi veru­leiki fæli ekki gott fólk frá þátt­töku. Þetta er rétt eins og að taka þátt í, ein­fald­lega að lifa, líf­inu sjálfu.“

Stein­grímur veltir því síðan fyrir sér í þágu hverra eigi að hafa áhrif og hvernig. „ Við veljum hið ein­falda og aug­ljósa svar við fyrri hluta spurn­ing­ar­innar, í þágu sam­fé­lags­ins. Svarið við seinni hlut­anum er flókn­ara, því vissu­lega geta menn haft áhrif á marga vegu. Með mál­flutn­ingi, með því að koma málum á dag­skrá, með gagn­rýni á það sem miður fer og svo síð­ast en ekki síst með því að fram­kvæma hlut­ina. Það getur kostað samn­inga við aðra og mála­miðl­anir eins og kunn­ara er en frá þurfi að segja þessa dag­ana. Og, menn velja sér ekki sjálfir þá sem þeir þurfa að starfa með á Alþingi eða í sveit­ar­stjórnum. Það gerðu kjós­endur.

Hangir svo ekki svarið við seinni hluta spurn­ing­ar­innar, þ.e. hvernig hafa menn áhrif, saman við svarið við fyrri hlut­anum, sem sagt áhrif í þágu hverra. Við erum að þessu í þágu sam­fé­lags­ins. Það er hið dags dag­lega líf og amstur fólks­ins í land­inu sem þetta snýst um. Stjórn­málin lifa ekki sjálfum sér. Stjórn­mála­flokkar eru tæki en ekki sjálf­stætt til­veru­mark­mið. Raun­veru­legum tæki­færum sem skap­ast til að bæta sam­fé­lagið og gera mann­lífið betra á ekki að kasta frá sér að óat­hug­uðu máli. Þau vaxa ekki á trjánum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár