Fylgið við flokkana: Hverjir sækja hvert?

Maskína birti á dög­unum nýja skoð­ana­könnun um fylgi flokka á lands­vísu til Alþingis. Kjarninn rýndi í bak­grunns­breytur könn­un­ar­innar og tók saman hvert stjórn­mála­flokk­arnir sem kepp­ast um hylli almenn­ings sækja fylgi sitt um þessar mundir.

Nýleg könnun Maskínu á fylgi stjórn­mála­flokka á lands­vísu leiddi í ljós litlar sveiflur á fylgi flokka á milli mán­aða. Þó bættu Vinstri græn, Sjálf­stæð­is­flokkur og Sam­fylk­ing nokkuð við sig frá fyrri könnun, en Píratar döl­uðu.

Könnunin, sem fram­kvæmd var dag­ana 28. jan­úar til 16. febr­úar, end­ur­speglar afstöðu alls 3.039 svar­enda um allt land og nið­ur­stöð­urnar eru svo vigtaðar við mann­fjölda­tölur Hag­stof­unnar til þess að tryggja að úrtakið til að end­ur­spegli þjóð­ina eins vel og hægt er.

Nið­ur­stöðu könn­un­ar­innar frá Maskínu fylgdi ítar­legt nið­ur­brot á fylgi við flokk­anna eftir hefð­bundnum bak­grunns­breytum, eins og kyni, aldri, búsetu, mennt­un­ar­stigi, heim­il­is­tekjum og hjú­skap­ar­stöðu.

Kjarninn rýndi ögn í þessar nið­ur­stöður og þar með í það til hvaða hópa í sam­fé­lag­inu flokk­arnir eru lík­leg­astir til að sækja fylgi sitt á þess­ari stundu.

Sjálfstæðisflokkurinn: Nágrannasveitarfélög Reykjavíkur - 27,3 prósent

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er stærsti flokkur lands­ins og mælist með 21,9 pró­sent fylgi í þess­ari nýj­ustu könnun. Í engum hópi mælist flokk­ur­inn þó með meira fylgi en á meðal kjós­enda í nágranna­sveit­ar­fé­lögum Reykja­vík­ur­borgar, en þar tekur flokk­ur­inn til sín 27,3 pró­sent fylgiskök­unnar í könnun Maskínu.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist svo einnig með 25,5 pró­sent fylgi hjá íbúum á Suð­ur­landi og Reykja­nesi. Flokk­ur­inn sækir fylgi sitt frekar til eldra fólks en þeirra sem yngri eru og frekar til karla en kvenna, en 24,9 pró­sent karla segj­ast að þeir myndu kjósa Sjálf­stæð­is­flokk­inn í dag en 19,2 pró­sent kvenna.

Hvað menntun varðar sækir flokk­ur­inn fylgi sitt jafnt á hópa, en þó er fylgi hans á meðal háskóla­mennt­aðra innan við 20 pró­sent, á meðan að það er 24,8 pró­sent hjá þeim sem hafa lokið fram­halds­skóla eða iðn­menntun og 22,4 pró­sent hjá þeim sem eru með grunn­skóla­próf.

Tekju­háir eru lík­legri til þess að kjósa Sjálf­stæð­is­flokk en þeir sem hafa lægri tekjur. Skörp skil verða við 800 þús­und króna heim­il­is­tekju­markið. Um 16 pró­sent í tekju­hóp­unum sem eru undir því marki segj­ast ætla að kjósa Sjálf­stæð­is­flokk­inn en rúm 20 pró­sent í tekju­hóp­unum þar fyrir ofan.

Framsókn: Norðurland - 28,6 prósent

Samkvæmt könnun Maskínu er Framsókn með 16,9 pró­sent fylgi á lands­vísu. Í könn­un­inni mæl­ast skörp skil á fylgi flokks­ins á milli lands­hluta, en sá hópur sem ljáir Fram­sókn­ar­flokknum mestan stuðn­ing þegar horft er á allar breytur eru Norð­lend­ingar. Þar mælist flokk­ur­inn 28,6 pró­sent fylgi, sem reyndar er ein­ungis einu pró­sentu­stigi meira en á Aust­ur­landi. Fylgið í Reykja­vík og í Kraganum mælist á móti um 12-13 pró­sent.

Flokk­ur­inn höfðar síðan nokkuð jafnt til ald­urs­hópa, þó síst til þeirra yngstu og elstu á kjör­skránni, en í þeim hópum er fylgið um 15 pró­sent, en um eða yfir 18 pró­sentum í ald­urs­hópum þar á milli. Framsókn höfðar fremur til karla en kvenna, 18,2 pró­sent karla og 15,6 pró­sent kvenna segja að þau myndu kjósa flokk­inn.

Framsókn höfðar svo einnig nokkuð jafnt til tekju­hópa, að því und­an­skildu að þeir sem segj­ast með heim­il­is­tekjur undir 400 þús­und krónum eru ólík­legri en aðrir til að kjósa flokk­inn. Hjá þeim hópi er flokk­ur­inn með 13,2 pró­sent fylgi í könnun Maskínu, en á bil­inu 17,6-19,4 pró­sent í öðrum tekju­hópum.

Eini hóp­ur­inn í sam­fé­lag­inu þar sem Framsókn mælist með minna en tíu pró­sent fylgi er hjá þeim sem eru frá­skildir, en þar er flokk­ur­inn með 9,3 pró­sent fylgi.

Samfylkingin: 18 til 29 ára – 19,2 prósent

Sam­fylk­ingin er þriðji stærsti flokkur lands­ins sam­kvæmt nýj­ustu könnun Maskínu og er með 13,4 pró­senta fylgi á lands­vísu. Flokk­ur­inn virð­ist ná best til ungra kjós­enda, Reyk­vík­inga og þeirra sem eru með fram­halds­menntun úr háskóla.

Fylgi flokks­ins rís hæst ef horft er til ald­urs­hóps­ins 18-29 ára, en þar mælist það 19,2 pró­sent, sem er rúmum fimm pró­sentu­stigum hærra en í nokkrum öðrum ald­urs­hópi. 14,1 pró­sent þeirra sem eru yfir sex­tugu segj­ast ætla að kjósa flokk­inn, en á bil­inu 11,2-12,3 pró­sent í ald­urs­hóp­unum þarna á milli.

Skörp skil eru á stuðn­ingi við flokk­inn þegar horft er til mennt­unar. Einungis 7,4 pró­sent þeirra sem hafa lokið grunn­skóla­prófi segj­ast ætla að kjósa Sam­fylk­ing­una og 10,6 pró­sent þeirra sem hafa lokið fram­halds­skóla­prófi eða iðn­námi. 15,3 pró­sent þeirra sem hafa lokið grun­námi í háskóla styðja flokk­inn en svo er flokk­ur­inn með 18,5 pró­sent fylgi á meðal þeirra sem lokið hafa fram­halds­námi á háskóla­stigi.

Er horft er til heim­il­is­tekna skorar Sam­fylk­ingin nokkuð jafnt í öllum hópum og einnig þegar horft er til hjú­skap­ar­stöðu. Flokk­ur­inn höfðar ögn meira til kvenna en karla.

Flokk­ur­inn er sá næst stærsti á meðal Reyk­vík­inga á eftir Sjálf­stæð­is­flokki, sam­kvæmt könnun Maskínu, en vert er að árétta að hér var spurt um kosn­inga­ætlan í alþing­is­kosn­ingum, en ekki til borg­ar­stjórnar. Þar mæld­ist Sam­fylk­ingin stærst í Reykja­vík, í könnun frá sama fyr­ir­tæki sem birt var fyrr í mán­uð­inum.

Átján pró­sent Reyk­vík­inga segja að þeir myndu kjósa Sam­fylk­ing­una til þings í þess­ari könnun, en utan borg­ar­innar mælist flokk­ur­inn með á bil­inu 8,8 til 13,7 pró­sent sneið af fylg­inu, minnst á Suð­ur­landi og Reykja­nesi.

Vinstri græn: Háskólagengnir með framhaldsmenntun – 17,8 prósent

Vinstri græn mæld­ust í þess­ari könnun Maskínu yfir kjör­fylgi í fyrsta sinn frá því að ný rík­is­stjórn var kynnt til sög­unnar í lok nóv­em­ber­mán­aðar. Fylgið á lands­vísu stendur í 12,9 pró­sentum sam­kvæmt könn­un­inni.

Sá ein­staki hópur sem lík­leg­astur er til þess að kjósa VG eru þeir sem segj­ast vera með fram­halds­menntun úr háskóla, en í þeim hópi sögð­ust 17,8 pró­sent ætla sér að kjósa flokk for­sæt­is­ráð­herra ef kosið væri í dag. Fylgið fer svo lækk­andi niður mennt­un­ar­stig­ann, 13,9 pró­sent þeirra sem hafa lokið grun­námi í háskóla segj­ast ætla að kjósa flokk­inn en ein­ungis rúm 9 eða tæp 10 pró­sent þeirra sem eru með grunn­skóla­próf eða fram­halds­skóla­próf eða iðn­menntun.

Ef horft er til tekju­hópa kemur í ljós að fylgi VG er mest hjá þeim sem hafa mest á milli hand­anna, en hjá þeim sem eru með heim­il­is­tekjur yfir 1,2 millj­ónum á mán­uði mælist fylgi við flokk­inn 17,2 pró­sent. Fylgið fer svo lækk­andi eftir því sem heim­il­is­tekj­urnar eru lægri og þegar komið er undir 549 þús­und króna heim­il­is­tekjur er fylgi við VG innan við 9 pró­sent.

Áhuga­verð­asta breytan í fylg­is­dreif­ingu Vinstri grænna er þó ef til vill hversu mjög flokk­ur­inn höfðar til kvenna umfram karla. 17,4 pró­sent kvenna ljá VG fylgi sitt sam­kvæmt könnun Maskínu, en ein­ungis 7,9 pró­sent karla.

Píratar: 30 til 39 ára – 17,5 prósent

Píratar dala eins og áður sagði nokkuð á milli mán­aða í þess­ari könnun Maskínu og mæl­ast fimmti stærsti flokkur lands­ins með 10,3 pró­sent fylgi á lands­vísu. Flokk­ur­inn sækir mest fylgi sitt til ungs fólks.

Stærstir mæl­ast Píratar ef ein­ungis er horft til ald­urs­hóps­ins 30 til 39 ára, en þar er flokk­ur­inn með 17,5 pró­sent fylgi, ögn meira en í ald­urs­hópnum þar fyrir neðan þar sem fylgið mæld­ist 15,6 pró­sent. Þegar farið er upp á við í aldri minnkar fylgið við Pírata og hjá þeim sem eru yfir sex­tugu er fylgið ein­ungis 6,2 pró­sent.

Svipað hlut­fall karla og kvenna kýs flokk­inn og þegar horft er til mennt­unar sjást ekki stór­kost­lega skörp skil eins og hjá Sam­fylg­unni og Vinstri grænum, þó háskóla­mennt­aðir séu lík­legri til þess að kjósa flokk­inn en þeir sem hafa styttri skóla­göngu eða iðn­nám að baki.

Fimmtán pró­sent þeirra sem eru ein­hleyp segja að þau myndu kjósa Pírata, en innan við tíu pró­sent þeirra sem eru gift eða í sam­búð. Ef horft er til heim­il­is­tekna má sjá að Píratar höfða síst til þeirra sem hæstar hafa tekj­urnar, en ein­ungis 6,7 pró­sent þeirra með heim­il­is­tekjur myndu kjósa flokk­inn. Það er næstum helm­ingi lægra fylgi en mælist við Pírata hjá þeim sem tekj­urnar hafa minnstar.

Viðreisn: Háskólagengnir með framhaldsmenntun – 14,1 prósent

Viðreisn mælist yfir kjör­fylgi sínu í þess­ari nýlegu könnun Maskínu, og með 9,7 pró­sent fylgi á lands­vísu. Fylgi Við­reisnar dreif­ist nær jafnt á milli kynja og er nokkuð stöðugt eftir aldri einnig, en þegar horft er til búsetu, mennt­un­ar­stigs og tekna eru skilin skarp­ari.

Mest fylgi við Viðreisn mælist í hópi þeirra sem eru með fram­halds­menntun á háskóla­stigi, eða 14,1 pró­sent. Það fer svo stig­lækk­andi eftir mennt­un­ar­stigi og hjá þeim sem eru með grunn­skóla­próf er fylgið við Viðreisn 4,9 pró­sent.

Viðreisn sækir fylgi sitt svo helst til þeirra sem hæstar tekjur hafa. Hjá þeim sem segj­ast vera með heim­il­is­tekjur yfir 1,2 millj­ónum mælist Viðreisn með 13,4 pró­sent fylgi og 9,9 pró­sent sem segj­ast vera með á bil­inu milljón til 1,19 millj­ónir í tekjur segj­ast ætla sér að kjósa Viðreisn.

Í tekju­hóp­unum fyrir neðan millj­ón­ina er fylgi við Viðreisn á bil­inu 7,1-8,3 pró­sent.

Þegar búsetan er skoðuð sést að ein­ungis í nágranna­sveit­ar­fé­lögum Reykja­víkur nær fylgi við Viðreisn tveggja stafa tölu, en þar er það 13,4 pró­sent. Fylgið er svo 9,8 pró­sent á meðal Reyk­vík­inga og 9,5 pró­sent á Suð­ur­landi og Reykja­nesi en í hinum lands­byggð­unum finn­ast harla fáir kjós­endur Við­reisnar, sam­kvæmt könnun Maskínu. Fylgið á Aust­ur­landi mælist 2,1 pró­sent – og byggir það á þremur svörum.

Flokkur fólksins: Heimilistekjur undir 400 þúsund krónum – 18 prósent

Flokkur fólks­ins mæld­ist með 7,6 pró­sent fylgi í könnun Maskínu. Hjá ákveðnum hópum sam­fé­lags­ins mælist flokk­ur­inn þó mun með mun meira fylgi – og jafn­vel meira fylgi en nokkur annar flokkur.

Það á við um lægsta tekju­hóp­inn, eða þá sem segj­ast með heim­il­is­tekjur undir 400 þús­und krónum. Hjá þeim hópi er fylgið við Flokk fólks­ins 18 pró­sent, meira en hjá nokkrum öðrum flokki. Í tekju­hópnum þar fyrir ofan, sem tekur til heim­il­is­tekna að 549 þús­und krónum, er fylgi við Flokk fólks­ins svo 15,7 pró­sent og ein­ungis meira hjá Framsókn og Sjálf­stæð­is­flokki, en það fer svo hratt dvín­andi eftir því sem heim­il­is­tekjur aukast. Hjá tekju­hæsta hópnum, þeim sem eru með yfir 1,2 millj­óna heim­il­is­tekjur, mælist fylgi við Flokk fólks­ins 3,1 pró­sent.

Flokkur fólks­ins er líka með mikið fylgi í hópi þeirra sem hafa lokið grunn­skóla­prófi, eða 17,6 pró­sent. Fylgi flokks­ins er líka nokkuð í hópi þeirra sem lokið hafa fram­halds­skóla eða iðn­menntun, en mun minna í hópi háskóla­manna. Samkvæmt könnun Maskínu myndi ein­ungis 1,6 pró­sent þeirra sem lokið hafa fram­halds­námi á háskóla­stigi kjósa flokk­inn.

Fylgi flokks fólks­ins á meðal karla og kvenna er afar áþekkt. Þegar horft er til ald­urs sést að flokk­ur­inn sækir fremur fylgi sitt til þeirra sem eldri eru, en á meðal þeirra sem eru yfir sex­tugu mælist Flokk­ur­inn með 11,8 pró­senta fylgi. Það lækkar svo í næstu ald­urs­hópum fyrir neðan og mælist að end­ingu 4,3 pró­sent hjá fólki á aldr­inum 18-29 ára.

Samkvæmt könnun Maskínu er sterkasta vígi Flokks fólks­ins á Suð­ur­landi og Reykja­nesi, en 12,6 pró­sent svar­enda sem sögð­ust þaðan hafa í hyggju að kjósa Flokk fólks­ins. Á meðal svar­enda á Vest­ur­landi og Vest­fjörðum mælist fylgi flokks­ins 9,6 pró­sent, en á öðrum land­svæðum er það á bil­inu 5,1-7,4 pró­sent.

Miðflokkur og Sósíalistaflokkur

Minnstu tveir flokk­arnir sam­kvæmt könnun Maskínu eru Mið­flokk­ur­inn og Sós­í­alista­flokk­ur­inn. Öfugt við alla hina flokk­ana er hvor­ugur þess­ara flokka með yfir tíu pró­senta fylgi innan ein­hverra ákveð­inna hópa, sam­kvæmt könnun Maskínu. Það er því erfitt að tala um þá sem sér­stak­lega sterka á meðal ein­hverra ákveð­inna hópa kjós­enda.

Það eru þó nokkrir hlutir sem hægt er að týna til sem gefa vís­bend­ingar um hvert flokk­arnir sækja fylgi sitt, en fylgið er hjá báðum flokkum innan við fjögur pró­sent á lands­vísu, Mið­flokkur mælist með 3,9 pró­sent og Sós­í­alista­flokkur 3,5 pró­sent.

Karlar virð­ast lík­legri til að kjósa Mið­flokk­inn en konur, en flokk­ur­inn nýtur 5,4 pró­senta stuðn­ings meðal karla en ein­ungis 2,5 pró­senta fylgis meðal kvenna. Þá er Mið­flokk­ur­inn sam­kvæmt könn­un­inni sterkastur á Aust­ur­landi, með 7,8 pró­senta fylgi, en vert er að taka fram að þær fylgis­tölur byggja ein­ungis á tíu svörum Aust­lend­inga. Flokk­ur­inn sækir síður fylgi sitt til höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Mið­flokk­ur­inn nýtur svo meiri stuðn­ings þeirra sem eru yfir sex­tugu en ann­arra ald­urs­hópa.

Sós­í­alista­flokk­ur­inn mælist með mest fylgi í hópi þeirra tekju­lægstu, en 7 pró­sent þeirra sem sögð­ust vera með undir 400 þús­und króna heim­il­is­tekjur sögð­ust ætla að kjósa Sós­í­alista, en ein­ungis 1,8 pró­sent þeirra sem eru með yfir 1,2 millj­ónir í heim­il­is­tekjur. Þá mælist stuðn­ingur við Sós­í­alista meiri hjá þeim sem eru lítið mennt­aðir en hjá þeim sem eru lang­skóla­gengnir.

Flokk­ur­inn sækir nokkuð jafnt á eftir aldri og kyni, en þegar búseta er skoðuð kemur upp úr krafs­inu að fylgi mælist mest aust­an­lands og norð­an­lands. Þar byggja nið­ur­stöður Maskínu þó á fremur fáum svörum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár