Sumar skógareldanna

Gróður- og skóg­ar­eldar eru skýr birt­ing­ar­mynd lofts­lags­breyt­inga en slíkir eldar hafa brunnið víða í sumar og af mik­illi ákefð. Frá því í byrjun júní hafa gróð­ur­eldar losað meira magn koldí­oxíðs heldur en allt árið í fyrra.

Íbúi grísku eyjarinnar Evia fylgist með eldtungunum í grennd við þorpið Pefki sem liggur við norðurströnd eyjarinnar.
Íbúi grísku eyj­ar­innar Evia fylgist með eld­tung­unum í grennd við þorpið Pefki sem liggur við norð­ur­strönd eyj­ar­innar. Mynd: EPA

Langvar­andi hita­bylgjur sem oft fylgja miklir þurrkar eru kjörað­stæður fyrir gróð­ur­elda en með lofts­lags­breyt­ingum og hækk­andi hita skap­ast slíkar aðstæður oftar og þar af leið­andi hafa gróður- og skóg­ar­eldar ekki bara orðið algeng­ari heldur einnig vara þeir lengur og eru orðnir erf­ið­ari við að eiga. Slökkvi­liðs­menn um víða ver­öld hafa þurft að glíma við elda af þessu tagi af miklum móð í sumar en aldrei áður hefur umfang gróð­ur­elda verið jafn mikið í júlí­mán­uði og í ár.

Þessum eldum fylgir líka mikil losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Þann fjórða ágúst til­kynnti evr­ópska lofts­lags­rann­sókn­ar­stofn­unin (CAM) að frá júní hefðu 505 megatonn af koldí­oxíði losnað út í and­rúms­loftið vegna gróð­ur­elda, til sam­an­burðar losar mann­kynið um 80-falt meira af koldí­oxíði á ári hverju, um 40 gígatonn. Losunin frá gróð­ur­eldum á þessu tíma­bili er nú þegar orðin meiri en hún var allt árið í fyrra en þá nam los­unin 450 megatonnum.

Reykur frá Síberíu á norðurpólnum

Á norð­ur­pólnum sjást nú í fyrsta sinn merki skóg­ar­elda. Reykur frá skógum sem nú brenna í Síberíu hefur teygt sig alla leið á pól­inn. Á síð­ustu árum hafa skóg­ar­eldar logað reglu­lega í Síberíu sem rúss­neskir veð­ur­fræð­ingar og umhverf­is­vernd­ar­sinnar segja að sé vegna lofts­lags­breyt­inga og ónógs fjár­magns til vernd­unar og við­halds skóga.

Eldarnir loga í Yakútíu, sem er aust­ar­lega í Rúss­landi, en þar hefur mælst óvenju­hár hiti að und­an­förnu og þurrkar hafa verið miklir. Svæðið er afskekkt sem gerir slökkvi­starf erfitt. Eldarnir brenna á svæði sem er um 34 þús­und fer­kíló­metrar að stærð, sem er rúm­lega þriðj­ungur af flat­ar­máli Íslands en talið er að um 14 þús­und fer­kíló­metrar af skógi vöxnu landi hafi brunnið það sem af er ári.

Skógareldar loga enn í Grikklandi

Frá þriðja ágúst hafa eldar logað á eyj­unni Evia, næst­stærstu eyju Grikk­lands en hún er skammt norð­austan við höf­uð­borg­ina Aþenu. Norð­ur­hluti eyj­unnar hefur að stórum hluta brunnið en hund­ruð slökkvi­liðs­manna hafa reynt að bjarga því sem hægt er að bjarga. Aðstoð hefur borist frá öðrum löndum en sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá yfir­völdum voru í gær hátt í 900 slökkvi­liðs­menn að störfum, sem komu meðal ann­ars frá Úkraínu, Rúmeníu, Serbíu, Slóvakíu og Póllandi. Stjórn­völd hafa ein­beitt sér að því að forða mann­tjóni en þús­undir hafa þurft að yfir­gefa heim­ili sín.

Síðustu vik­urnar hafa Grikkir glímt við skóg­ar­elda víðar í land­inu en þar hefur versta hita­bylgja í ára­tugi nýlega gengið yfir, hit­inn náði til að mynda 47 gráðum í norð­ur­hluta lands­ins fyrir viku. Eldarnir eru ekki ein­ungis bundnir við eyj­una Evia, fyrr í mán­uð­inum þurftu íbúar í norð­ur­hluta Aþenu að forða sér undan eldum.

Handan Eyja­hafs­ins hafa einnig orðið miklar ham­farir vegna skóg­ar­elda. Í það minnsta átta hafa lát­ist í miklum eldum í suð­ur­hluta Tyrk­lands. Eldarnir hafa helst brunnið í grennd við strand­bæi sem eru vin­sælir sum­ar­dval­ar­staðir.

Suð­ur­hluti Ítalíu fékk sinn skerf af gróð­ur­eldum í seinni hluta júlí. Sikiley og Sardinía voru þau svæði sem verst fóru út úr eld­unum. Ítal­íu­deild alþjóð­legu umhverf­is­sam­tak­anna WWF segja 20 þús­und hekt­ara, um 200 fer­kíló­metra, hafa orðið eld­inum að bráð á Sardiníu.

Sunnan Mið­jarð­ar­hafs­ins brenna skógar einnig. Frá því á mánu­dag hafa slökkvi­liðs­menn barist við elda sem loga víða í Alsír. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá þar­lendum yfir­völdum hafa að minnsta kosti sjö almennir borg­ara lát­ist í eld­unum og 25 her­menn sem unnið hafa við hjálp­ar­starf.

Skógar hafa logað frá því í vor í Kanada

Í Norður-Ameríku hafa skógar brunnið síðan í vor. Enn eru mán­uðir eftir af skóg­ar­elda­tíma­bil­inu í Kanada en frá því í vor hafa um 5800 fer­kíló­metrar af skógum brunnið í Bresku Kólumbíu. Þar féllu hita­met þrjá daga í röð í lok júní en hit­inn þar náði 49,6 gráðum þann 29. júní. Á annað hund­rað lést í hita­bylgj­unni.

Slökkvi­liðs­menn í Kali­forníu hafa glímt við einn mesta skóg­ar­eld sem sögur fara af í rík­inu í um mánuð. Dixie eld­ur­inn svo­kall­aði hefur brunnið á tæp­lega 5000 fer­kíló­metra svæði. Fjögurra er saknað og þús­undir hafa þurft að yfir­gefa heim­ili sín.

Hætta á vítahring

Svona mætti lengi telja og upp­taln­ingin hér að ofan er langt frá því að vera tæm­andi yfir þá gróð­ur­elda sem logað hafa á síð­ustu tveimur mán­uðum. Þessi mikla ákefð gróð­ur­elda er skýr birt­ing­ar­mynd lofts­lags­breyt­inga, en það sem meira er, þeir stuðla líka að lofts­lags­breyt­ingum því í eld­unum losnar gíf­ur­legt magn gróð­ur­húsa­loft­teg­unda, líkt og áður kom fram.

Með auknum gróð­ur­eldum eykst nefni­lega losun koldí­oxíðs út í and­rúms­loftið. Þá geta gróð­ur­eldar á jafn stóru svæði og þeir sem geng­iði hafa yfir Síberíu, sam­hliða hækkun hita­stigs á norð­ur­hveli afþýtt freð­mýrar og þar með losað mikið magn bæði koldí­oxíðs og met­ans út í and­rúms­loftið. Haldi hit­inn því áfram að hækka gætu freð­mýrar farið að þiðna í meira mæli og þar með skap­ast ákveð­inn víta­hringur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár