Átta félagasamtök lýsa yfir miklum óhug vegna ákvörðunar sjávarútvegsráðherra

Átta sam­tök sem mót­mæltu hval­veiðum fyrir framan Alþingi síð­asta sunnu­dag hafa sent opið bréf til stjórn­valda þar sem end­ur­nýjun leyfis til hval­veiða er harð­lega gagn­rýnd. Samtökin óska eftir fundi með rík­is­stjórn­inni vegna máls­ins.

Mótmæli gegn hvalveiðum síðasta sunnudag.
Mótmæli gegn hval­veiðum síð­asta sunnu­dag.

Átta félaga­sam­tök sem mót­mæltu hval­veiðum fyrir framan Alþingi síð­asta sunnu­dag hafa sent stjórn­völdum opið bréf. Í bréf­inu lýsa sam­tökin yfir miklum óhug vegna ákvörð­unar Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar, land­bún­aðar- og sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, um að end­ur­nýja leyfi til veiða á lang­reyðum og hrefnum til árs­ins 2023. Samtökin segj­ast ekki skilja þegar að það kemur að svo „umdeildu mál­efni“ að aðrir úr rík­is­stjórn­inni hafi ekki mót­mælt harð­lega og þrýst á að ákvörð­unin sé dregin til baka. Samtökin óska eftir form­legum fundi með full­trúum rík­is­stjórn­ar­innar.

Einn mikilvægasti hlekkurinn í bardaganum gegn loftslagsbreytingum

Í bréfinu vitna samtökin í leiðréttingu sérfræðinga frá Vistfræðifélagi Íslands á skýrslunni Þjóðhagsleg áhrif hvalveiða sem birt var af hagfræðideild háskóla Íslands í janúar 2019. Í bréfinu segir að í leiðréttingu sérfræðinganna sé fjallað um hvernig hvalir framleiða næringarrík úrgangsský og með því að enda lífdaga sína í hafinu sjálfu og sökkva til botns sjái hvalir um grundvallar kolefnisbindingu frá loftslagið. Hvalir séu því einn mikilvægasti hlekkurinn í bardaganum gegn loftslagsbreytingum.

Samtökin spyrja því hvort það sé ekki eitthvað bogið við það að gefa út veiðileyfi á tegund sem sé „einn helsti stríðsmaður okkur“ gegn loftslagsbreytingum. „Loftslagsbreytingar eru stærsta vá nútímans fyrir jörðina og allt mannkyn. Vikum saman hafa nemendur um allan heim farið í skóla-verkfall til að krefjast þess að yfirvöld hefji strax öflugar aðgerðir gegn loftslagsbreytingum, líka á Íslandi. Er ekki eitthvað bogið við það að á sama tíma og nemendur mótmæla, þykir eðlilegt að gefa út veiðileyfi á tegund sem er einn helsti stríðsmaður okkar gegn loftslagsbreytingum?,“ segir í bréfinu og samtökin benda jafnframt á að í aðgerðaætlun ríkisstjórnarinnar í loftlagsmálum sé ekki minnst einu orði á hafið.

Óskiljanlegt að vernda hvali á einu svæði og leyfa dráp á þeim á öðru svæði

Í bréf­inu segir að það sé gleði­efni að fyr­ir­tæki í hvala­skoðun hafi verið að vinna með borg­ar­ráði í að búa til nýtt friðland sem og að stækka núver­andi friðland hvala. Samtökin segja að vel­gengni hvala­skoð­un­ar­fyr­ir­tækja á Íslandi sýni að hvalir séu mun verð­mæt­ari lif­andi en dauðir. „Það er okkur hins­vegar með öllu óskilj­an­legt hvernig hægt er að rétt­læta að vernda hvali á einu svæði, hvetja fólk til að sjá þá frjálsa í nátt­úr­unni og á sama tíma leyfa dráp á þeim rétt utan við það svæði?“

Jafn­framt er bent á í bréf­inu að hval­kjötsát sé ekki stundað af neinu ráði á Íslandi. „Þeirri lygi sem jafnan er haldið fram, að sterk hefð sé fyrir hval­kjötsáti á Íslandi á sér ekki einu sinni stoð í raun­veru­leik­anum heldur er þetta eitt­hvað sem við öpuðum eftir Norð­mönnum fyrir nokkrum ára­tugum.“ Í bréf­inu er vitnað í Gallup könnun frá 2017 þar sem aðeins 1 pró­sent Íslend­inga sögð­ust borða hval­kjöt reglu­lega en alls 81 pró­sent sögð­ust aldrei hafa borðað það.

Óska eftir fundi með ríkisstjórninni

Að lokum segir í bréf­inu að vegna þeirra ofan­greinda atriða sem sam­tökin telja upp í bréf­inu, auk þeirra „aug­ljósa spill­ingar- og hags­muna­tengslum“ sem valdi því að nýr hval­veiði­kvóti var gef­inn út þá hafi sam­tökin átta ákveðið að mót­mæla fyrir framan Alþingi þann 24. mars síð­ast­lið­inn. Samtökin óska jafn­framt eftir form­legum fundi með full­trúum rík­is­stjórn­ar­innar.

Undir bréfið skrifa sam­tökin Gaia Iceland, Jarð­ar­vinir, Reykja­vik Animal Save, Reykja­vik Whale Save, Samtök græn­kera á Íslandi, Sea Shepherd Iceland, SEEDS Iceland, Stop Whaling in Iceland.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hvalveiðar

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár