Grænlenskur gullsandur

Skortur á sandi er lík­lega það síð­asta sem þeim sem fara um Mýr­dals­sand og Sahara dettur í hug. Sand­ur­inn er hins­vegar ekki óþrjót­andi auð­lind, en Græn­lend­ingar eiga nóg af honum og þar bæt­ist sífellt við.

Þegar talið berst að auð­lindum jarðar er sandur lík­lega ekki það sem oft­ast ber á góma. Þeir sem fara um stóru sandana á Suður- og Suð­aust­ur­landi, og finnst þeir stórir, eiga kannski erfitt með að trúa því að víða um heim sé sandur eft­ir­sótt hrá­efni, sem ekki er óþrjót­andi.

Stundum er sagt að í ver­öld­inni séu tvö hrá­efni sem séu mik­il­væg­ust alls: vatn og sandur. Vatnið fyrir mann­fólkið, dýra­lífið, rækt­un­ar­land og fram­leiðslu. Sand­ur­inn í stein­steypu, sem er mik­il­væg­asta bygg­inga­efni jarð­ar­búa, notuð í hús, vegi, og flest mann­virki sem fyr­ir­finn­ast. Í stein­steypu eru sandur og möl um það bil átta­tíu pró­sent efn­is­ins. Rétt er að geta þess að and­rúms­loftið flokk­ast ekki undir hrá­efni.

Gríðarleg aukning

Á síð­ustu 100 árum hefur notkun á sandi auk­ist gríð­ar­lega, nánar til­tekið er árleg notkun nú um það bil tutt­ugu og þrisvar sinnum meiri en í upp­hafi síð­ustu aldar. Á síð­ustu tíu árum hafa Kín­verjar notað álíka mik­inn sand og Banda­ríkin not­uðu á allri síð­ustu öld.

Árið 2017 not­uðu jarð­ar­búar um það bil níu og hálfan millj­arð tonna sands, mark­aðsvirði þessa stóra bings sam­svarar um það bil 12 þús­und millj­örðum íslenskra króna.

Þessi mikla notkun á sandi hefur haft í för með sér stór­aukna eft­ir­spurn, og þótt verðið sé enn „til­tölu­lega“ lágt spá sér­fræð­ingar að það muni stór­hækka á næstu árum og ára­tugum.

Er ekki nóg til af sandi?

Af og til sjást í sjón­varpi myndir frá sand­auðnum Afríku, einkum Sahara, og kannski erfitt að gera sér í hug­ar­lund að sand­skortur geti orðið vanda­mál. Iðulega sjást líka myndir frá Dubai, þar sem hvítar sand­strendur, með háhýsum og pálmatrjám eru mest áber­andi. Ætla mætti að allur sá sandur sem þar er væri heima­feng­inn eða frá nágrönnum í Sádi-Arabíu og Oman. En það er öðru nær. Vissu­lega er í þessum tveim löndum nægur sandur, ljós og fín­gerður. Gallinn er bara sá að þessi sandur, og allur eyði­merk­ur­sandur, hentar ákaf­lega illa í stein­steypu. Til þess er hann alltof fín­gerður og sé hann not­aður í stein­steypu nær steypan ekki þeim styrk­leika sem nauð­syn­legt er og auk þess end­ist slík steypa ekki sér­lega vel. Sand­ur­inn í Dubai hefur verið fluttur um langan veg, nánar til­tekið frá Ástralíu. Sömu sögu er að segja frá Los Angeles í Kali­forníu, þangað er fluttur sandur, í stórum stíl, frá Vancouver eyju, um tvö þús­und kíló­metra leið. Singapúrar flytja jafnt og þétt sand frá Malasíu, Indónesíu, Víetnam og Kambódíu. Mestu af þeim sandi er sturtað í hafið við strönd­ina, til nota síðar. Singapúr­arnir horfa til fram­tíðar, telja sig vita að sandur hækki mjög í verði og þá er gott að eiga birgðir. Sann­kölluð hækkun í hafi.

Sandframleiðandinn Grænland

Fyrir nokkrum dögum greindi vís­inda­ritið Nature Susta­ina­bility frá rann­sókn­ar­verk­efni nokk­urra sér­fræð­inga. Yfir­um­sjón með verk­efn­inu hafði Metta Bendixen sér­fræð­ingur við Hafn­ar­há­skóla en hún hefur und­an­farið gegnt stöðu gesta­kenn­ara við háskól­ann í Boulder Colorado. Auk hennar unnu að verk­efn­inu danskir og banda­rískir sér­fræð­ingar.

Verk­efnið sner­ist um að rann­saka þær breyt­ingar sem bráðnun jökla á Græn­landi hefur í för með sér. Nánar til­tekið það sem berst í sjó fram með vatni frá jöklunum. Lengi hefur verið vitað að vatnið sem þannig fellur til ber með sér jarð­efni en magnið kom hins vegar sér­fræð­ing­unum á óvart. Semsé að næstum tíu pró­sent þess sands sem til verður í heim­inum ár hvert streymi til sjávar frá Græn­landi. Stærstur hluti þessa sands fellur til á afmörk­uðum svæðum og fjórð­ungur af áður­nefndum tíu pró­sentum berst til sjávar með Sermeq ánni, nokkuð fyrir sunnan Nuuk. Í skýrslu sér­fræð­ing­anna segir að hlýnun jarðar hafi í för með sér að sand­magnið sem berst til sjávar á Græn­landi muni aukast til muna á næstu árum og ára­tugum.

Ef Græn­lend­ingar haldi rétt á spil­unum geti útflutn­ingur á sandi hugs­an­lega skapað lands­mönnum miklar tekjur. Í við­tali við dag­blaðið Berl­ingske sagði Mette Bendixen að áður en hugs­an­legur útflutn­ingur gæti haf­ist þyrftu marg­hátt­aðar rann­sóknir að koma til.

Ekki allir jafn sannfærðir

Per Kalvig, for­stöðu­maður GEUS rann­sókna­set­urs­ins, sem ann­ast alhliða rann­sóknir á nátt­úru­auð­lindum, sagði í blaða­við­tali að hug­myndin um sand­nám á Græn­landi sé spenn­andi. „Ég hef hins­vegar ákveðnar efa­semdir um við­skipta­hug­mynd­ina og hugs­an­legar tekjur.“ Þótt verð á sandi færi hækk­andi yrði hann ódýrt hrá­efni og ef verðið hækk­aði of mikið myndu vís­inda­menn leita leiða til að not­ast við önnur efni „þótt ég viti ekki hver þau ættu að vera“ sagði Per Kalvig.

Jöklaleirinn er næringarríkur áburður

Minik Rosing pró­fessor við Nátt­úru­fræði­deild Hafn­ar­há­skóla var í hópi þeirra sem tóku þátt í verk­efni Mette Bendixen. Í við­tali við dag­blaðið Berl­ingske sagði hann að fram­burður jök­ul­ánna bæri með sér fleira en sand. Nefni­lega jök­ul­leir, í geysi­miklu magni. Leirinn hefur verið rann­sak­aður og hann reyn­ist mjög nær­ing­ar­ríkur. „Kannski er það bjart­sýni en ég tel að leir­inn gæti orðið enn mik­il­væg­ari útflutn­ings­vara en sand­ur­inn, til dæmis til Afr­íku­landa. Þar skortir víða áburð“ sagði Minik Rosing.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár