Ívilnanir vegna innflutnings rafmagns- og tengiltvinnbíla rúmir fimm milljarðar í fyrra

Rúmir 2,2 millj­arðar virð­is­auka­skatts voru felldir niður vegna inn­flutn­ings 2.632 tengilt­vinn­bíla í fyrra. Tvívegis hefur efna­hags- og við­skipta­nefnd frestað áformum um að fella niður eða minnka íviln­anir vegna tengilt­vinn­bíla sem eru umdeildar.

Rúmlega 5,1 millj­arðs afsláttur var veittur af virð­is­auka­skatti á árinu 2020 vegna inn­flutn­ings og fyrstu kaupa á raf­magns-, vetnis- og tengilt­vinn­bílum. Bílar af þessu tagi njóta tíma­bund­innar und­an­þágu á virð­is­auka­skatti upp að ákveðnu marki. Þannig er veittur allt að 1.560.000 króna afsláttur af virð­is­auka­skatti á hvern raf­magns- og vetn­is­bíl en 960 þús­und á hvern tengilt­vinn­bíl. Til við­bótar við þetta þá taka vöru- og bif­reiða­gjöld mið af skráðri koltví­sýr­ingslosun og því eru alla jafna engin vöru­gjöld greidd af raf­magns­bílum og lág­marks bif­reiða­gjöld.

Á síð­asta ári nam upp­hæð nið­ur­fellds virð­is­auka­skatts á raf­magns­bíla alls 2,9 millj­örðum króna en slíkur afsláttur var veittur vegna inn­flutn­ings á 2.632 raf­magns­bílum. Rúmir 2,2 millj­arðar virð­is­auka­skatts voru felldir niður vegna 2.360 tengilt­vinn­bíla. Þá var virð­is­auka­skattur felldur niður vegna inn­flutn­ings á einum vetn­is­bíl. Þetta kemur fram í svari Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála og efna­hags­ráð­herra, við fyr­ir­spurn Sigríðar Á Andersen, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, um und­an­þágur frá sköttum.

Meðal þess sem spurt var um í fyr­ir­spurn Sigríðar var hvort mat lægi fyrir á því hvort lít­ill bens­ín­bíll hefði meiri eða minni losun koltví­sýr­ings í för með sér frá upp­hafi fram­leiðslu til enda notk­unar heldur en stór raf­bíll. Í svar­inu er vísað í skýrsl­una How clean are electric cars? T&E's ana­lysis of electric car lifecycle CO2 emissions sem kom út á vegum Tran­sport & Environ­ment í apríl í fyrra. Þar kemur fram að raf­magns­bílar í Evrópu losi alltaf minni koltví­sýr­ing en hefð­bundnir bensín- eða dísil­bílar að teknu til­liti til los­unar í fram­leiðslu­ferl­inu.

„Þó að Ísland sé ekki í skýrsl­unni þá tryggir raf­orku­kerfið hér á landi að nið­ur­staðan sé jafn góð eða betri en besta nið­ur­staðan í skýrsl­unni. Á Íslandi er því erfitt að finna nógu stóra raf­magns­bif­reið sem gæti losað meiri koltví­sýr­ing en smæsta bens­ín­bif­reið,“ segir í svar­inu.

Niðurfelling ívilnunar vegna tengiltvinnbíla frestað

Virð­is­auka­skattur hefur ekki verið felldur niður, upp að vissu marki, vegna inn­flutn­ings á raf­magns-, vetnis- og tengilt­vinn­bílum frá því um mitt ár 2012. Í þing­inu hafa hins vegar verið lagðar fram til­lögur sem gera ráð fyrir því að skatta­af­sláttur vegna inn­flutn­ings á tengilt­vinn­bílum verði afnum­inn. Þessum breyt­ingum hefur hins vegar tví­vegis verið frestað.

Þannig ákvað efna­hags- og við­skipta­nefnd að taka undir sjón­ar­mið bíla­inn­flytj­enda og Grænnar orku í des­em­ber 2019 þegar nefndin mat það sem svo að ekki væri tíma­bært að fella niður skattaí­vilnun vegna inn­flutn­ings tengilt­vinn­bíla. Þá stóð til að íviln­anir vegna tengilt­vinn­bíla yrðu felldar niður við lok árs 2020 en að íviln­anir vegna raf­magns- og vetn­is­bíla yrðu fram­lengdar til lok árs 2023. Eftir breyt­ing­ar­til­lögu frá nefnd­inni varð nið­ur­staðan sú að hámark nið­ur­fellds virð­is­auka­skatts af tengilt­vinn­bílum átti að lækka í skrefum.

Ári síðar ákvað efna­hags- og við­skipta­nefnd að lækkun á íviln­unum vegna inn­flutn­ings á tengilt­vinn­bílum skyldi frestað. Íviln­unin verður því óbreytt út þetta ár og mun fyrst lækka á árinu 2022. „Nefnd­inni hafa borist ábend­ingar um að í sam­ræmi við stefnu stjórn­valda í orku­skiptum standi rök til þess að fresta gild­is­töku þeirrar lækk­unar,“ sagði í nefnd­ar­á­liti.

Tengiltvinnbílar reynst „mikilvæg brú“ yfir í hreina rafbíla

Umræður um þessa frestun spunn­ust í þing­sal og Andrés Ingi Jónsson, sem þá var utan flokka, sagði áhöld vera um hversu hreinir tengilt­vinn­bílar væru og spurði Óla Björn Kárason for­mann nefnd­ar­innar hvaðan þessar ábend­ingar hefðu borist. Fram kom í ræðu hans að ábend­ingar hefðu meðal ann­ars borist frá „Bíl­greina­sam­band­inu, öðrum sér­fræð­ingum og bíla­leigu­fyr­ir­tækjum og Samtökum ferða­þjón­ust­unnar“ sem bent hefðu á að tengilt­vinn­bílar hefðu reynst mik­il­væg brú yfir í hreina raf­bíla auk þess sem þeir henti betur við núver­andi aðstæður.

Ljóst má vera að nið­ur­greiðsla á tengilt­vinn­bílum er álita­mál. Í frétt Frétta­blaðs­ins frá því fyrr í þessum mán­uði sagði Árni Finnsson, for­maður Nátt­úru­vernd­ar­sam­taka Íslands, til að mynda að það ætti að hætta að nið­ur­greiða tengilt­vinn­bíla og dýra raf­bíla. „Til hvers að greiða niður tengil­tvinn­bíla sem losa tölu­vert magn af gróð­ur­húsa­loft­teg­undum?“ er haft eftir Árna í frétt­inni. Hann sagði einnig að fáir hafi ráð á því að kaupa dýra raf­magns­bíla, þeir sem hefðu ráð á því þyrftu ekki á nið­ur­greiðslu frá rík­inu að halda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár