Lífeyrisaldur verði hækkaður í skrefum í 70 ár – Deilt um útfærslur

Viðræður um end­ur­skipu­lagn­ingu á opin­bera líf­eyr­is­kerf­inu og jöfnun líf­eyr­is­rétt­inda standa nú yfir.

Horft er til þess að hækka líf­eyr­i­s­töku­aldur úr 65 til 67 ára í 70 ár til að tryggja sjálf­bærni í fyr­ir­komu­lagi líf­eyr­is­mála hér á landi. Þetta yrði gert í skrefum, sam­hliða öðrum breyt­ingu, en vinna stendur nú yfir þar sem líf­eyr­is­kerfi opin­berra starfs­manna er til skoð­unar. Efnahags- og fjár­mála­ráðu­neytið, Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga, auk heild­ar­sam­taka á opin­berum vinnu­mark­aði með aðkomu BSRB, BHM og KÍ, eiga í þessum við­ræðum, en þær fara fram í sam­hengi við kjara­samn­inga, hins svo­kall­aða SALEK-sam­komu­lags.

Ekki ríkir ein­hugur um um hvernig breyta eigi líf­eyr­is­kerf­inu, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans, en fyrir liggur að skerða þarf rétt­indi, frá því sem nú er, sam­kvæmt þeim til­lögum sem stjórn­völd hafa lagt fram og ýta á í fram­kvæmd um næstu ára­mót. Stétt­ar­fé­lög opin­berra starfs­manna eru sam­mála um mik­il­vægi þess að koma líf­eyr­is­kerf­inu í sjálf­bæra stöðu, en breyt­ingar megi ekki leiða til kjara­rýrn­unar sem sé sárs­auka­full. Það sé ekki ásætt­an­legt, heldur þurfi að leiða fram ígrund­aðar breyt­ingar yfir langan tíma sem vernda rétt­indi en um leið stuðla að sjálf­bærni kerf­is­ins.

Mikill vandi

Í grein Jóns Ævars Pálma­sonar stærð­fræð­ings hjá Fjár­mála­eft­ir­lit­inu, í vefrit­inu Fjár­málum, frá því nóv­em­ber, kemur fram að nei­kvæð trygg­ing­ar­fræði­leg staða líf­eyr­is­sjóða með ábyrgð launa­greið­enda, sem í flestum til­fellum er hið opin­bera, hafi numið 623 millj­örðum króna. Hækkandi lífaldur þrýsti enn fremur á um að breyt­ingar verði gerðar. Aðkallandi sé að bregð­ast við þess­ari stöðu, og þar komi helst til greina að hækka líf­eyr­is­aldur, skerða rétt­indi og hækka iðgjöld, eða fara leið sem er blanda af þessum mögu­leikum.

Breyt­ing­arnar sem unnið er að, snúa að sam­ræm­ingu og jöfnun rétt­inda á almennum og opin­berum vinnu­mark­aði. Vilji stjórn­valda er sá að það verði að grund­vall­ar­reglu kerf­is­ins að rétt­indi séu ald­urstengd ann­ars vegar og hins vegar að líf­eyr­is­aldur verði hækk­aður í áföngum til að tryggja sjálf­bærni, eins og áður segir.

Vilji til breytinga og afnáms bakábyrgðar

Stétt­ar­fé­lög opin­berra starfs­manna hafa talað fyrir því að huga betur að því, en gert hefur verið verið, hvernig skerð­ing á rétt­indum verði bætt. Aug­ljós­lega þurfi að gera breyt­ingar, en það megi ekki leiða til sárs­auka­fullrar kjara­rýrn­unar.

Þá stendur vilji hjá stjórn­völdum til að afnema baká­byrgð. Það þýðir að í stað fastra rétt­inda og breyti­legs iðgjalds kemur fast iðgjald en breyti­leg rétt­indi. Réttindi myndu því ráð­ast af stöðu sjóðs­ins eins og nú er á almennum mark­aði. Ef reikni­for­sendur breyt­ast þá verður breyt­ing á rétt­indum. Þessi til­laga miðar að því að jafna líf­eyr­is­rétt­indi milli opin­berra starfs­manna og þeirra sem eru á almennum vinnu­mark­aði.

Nýr grunnur kerfisins

Eins og Jón Ævar kemur inn á í grein sinni í Fjár­mál­umþá liggur fyrir að inn­leið­ing nýrra taflna fyrir lífslíkur lands­manna, mun eiga sér stað á næst­unni. Hún byggir meðal ann­ars á mann­fjölda­spám og mati á lífaldri. Í ljósi þess að þjóðin er að eld­ast, með til­heyr­andi áhrifum á heil­brigðis- og líf­eyr­is­kerf­inu, þá mun vafa­lítið koma til þess að laga þurfi stöðu líf­eyr­is­sjóða að þessum grund­vall­ar­breyt­ingum trygg­ing­ar­fræði­legum útreikngum á stöðu líf­eyr­is­mála hér á landi.

Þetta er ríkur áhættu­þáttur í líf­eyr­is­kerf­inu, eins og rakið var ítar­lega í erindi Stein­unnar Guð­jóns­dóttur trygg­inga­stærð­fræð­ings, í apríl 2013.

Stétt­ar­fé­lög opin­berra starfs­manna, telja að meta þurfi hvernig best sé hægt að tryggja rétt­indi félags­manna, en um leið vernda sam­keppn­is­hæf kjör, á grund­velli nýgerðra kjara­samn­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár