Ögmundur vill setja launabili hjá hinu opinbera skorður: Fordæmið yrði einkageiranum „siðferðilegur vegvísir“

Ögmundur Jónasson, þing­maður Vinstri grænna, vill að Alþingi álykti um að fjár­mála­ráðu­neytið og stofn­anir sem undir það heyra semji alltaf á þann veg í kjara­samn­ingum að lægstu föstu launa­greiðslur verði aldrei lægri en þriðj­ungur af hæstu föstu launa­greiðslum.

Ögmundur Jónasson, þing­maður Vinstri grænna, vill að Alþingi álykti um að fjár­mála­ráðu­neytið og stofn­anir sem undir það heyra semji alltaf á þann veg í kjara­samn­ingum að lægstu föstu launa­greiðslur verði aldrei lægri en þriðj­ungur af hæstu föstu launa­greiðslum. Þetta kemur fram í þings­á­lykt­un­ar­til­lögu frá honum sem birt­ist á vef Alþingis rétt í þessu. 

Í grein­ar­gerð segir hann mik­il­vægt að styðja ekki ein­ungis við kröf­una um hækkun lægstu launa heldur einnig að tryggja að lægstu laun fylgi að lág­marki þróun hæstu launa. „Ákjós­an­leg­ast væri að launa­bilið yrði tals­vert minna en nemur þre­földum mun en með þeirri launa­stefnu sem í til­lögu þess­ari felst yrði engu að síður dregið veru­lega úr kjara­mis­rétt­inu. Málið yrði þannig mik­il­vægur áfangi í átt til kjara­jöfn­unar,“ skrifar Ögmundur.

„Í stað þess að beðið sé eftir því að gengið hafi verið frá samn­ingum lág­launa­manns­ins svo smyrja megi á kjör hátekju­fólks­ins þá verður byggð inn í kerfið eins konar varn­ar­vísi­tala fyrir lægstu launin nái til­lagan fram að ganga. Annar kostur og betri í kjara­samn­ingum væri að ákveða fyrst kjör hinna hæstu og ganga að því búnu frá almennum kjara­samn­ingum, ella kæmi til kasta sjálf­virkrar vísi­tölu sem kalla mætti varn­ar­vísi­tölu lág­tekju­fólks.“

Ögmundur telur rang­látt launa­bil hjá hinu opin­bera „smá­vægi­legt miðað við almenna mark­að­inn þar sem sjálftöku­menn skammta sér í mán­að­ar­tekjur jafn­vel marg­föld árs­laun verka­fólks“. Í einka­geir­anum verði þetta hins vegar varla lagað með lög­gjöf. „En for­dæmi almanna­þjón­ust­unnar gæti orðið sið­ferði­legur veg­vísir.“

Loks skrifar hann: „Þá má ætla að samn­inga­menn reyndu að koma ákvæðum um varn­ar­vísi­tölu lág­tekju­fólks inn í kjara­samn­inga á almenna mark­aðnum. Viðmiðið gæti verið með­al­tals­laun stjórnar Samtaka atvinnu­lífs­ins. Án öryggi­s­tappa af þessu tagi yrði víð­tækt hand­járnað sam­flot á launa­mark­aði alltaf á for­sendum hátekju­fólks­ins, enda mik­ill ákafi þar á bæ að koma slíku fyr­ir­komu­lagi á. Síðan kæmu hátekju­skattar til sög­unnar til að draga úr gróf­asta mis­rétt­inu sem út af stæði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár