Fjölskyldustund í uppnámi?

Í 31 ár hafa danskar fjöl­skyldur sest saman við sjón­varpið á föstu­dags­kvöldum og horft á dag­skrár­lið­inn Disney Sjov og borðað viku­skammt­inn af sæl­gæti. Nú hverfa Disney mynd­irnar af skjánum en nýr þáttur kemur í stað­inn. Ekki eru allir jafn spenntir.

Föstu­dag­inn 25. októ­ber 1991 klukkan 18.30 sýndi danska sjón­varpið, DR, þátt sem bar yfir­skrift­ina Disney Sjov. Árið 1994 var þátt­ur­inn fluttur til klukkan 19. Disney Sjov naut frá upp­hafi mik­illa vin­sælda meðal Dana, hug­myndin að þætt­inum var komin frá banda­ríska þætt­inum Disney Afternoon.

Í Disney Sjov (Sjov er ekki prent­villa) eru, eins og nafnið gefur til kynna, sýndar teikni­myndir frá Disney sam­steyp­unni. Iðulega er sýnd ein ný teikni­mynd, stundum tvær, í hverjum þætti, ásamt eldri myndum.

[adspot]

Þátt­ur­inn hefur nær alla tíð verið klukku­tíma langur, hluti hans með dönsku tali en ann­ars textaður. Árið 1999 ætl­aði danska sjón­varpið að hætta sýn­ingum á Disney Sjov, ástæðan var sögð sú að myndefnið væri alltof dýrt og sömu­leiðis hefði gæðum nýju mynd­anna hrakað. Þessi ákvörðun mælt­ist ekki vel fyrir meðal Dana, sím­kerfið hjá DR hrundi, mót­mæla­bréfum rigndi inn og í spjall­þáttum danska útvarps­ins var mörgum mikið niðri fyrir. Sýningar hófust því fljót­lega aftur og síðan hefur Disney Sjov verið óslitið á dag­skránni á föstu­dögum klukkan 19.

Umsjón­ar­maður og rit­stjóri hefur frá upp­hafi verið Jakob Stegel­mann.

Hann var ekki blautur á bak­við eyrun í þessum efnum, hafði frá unga aldri haft mik­inn áhuga á kvik­myndum. Níu ára gam­all eign­að­ist hann litla sýn­ing­ar­vél og nokkrar 8mm stutt­myndir sem hann sýndi gjarna í afmælum gegn vægu gjaldi. Hann skrif­aði líka korn­ungur kvik­mynda­gagn­rýni í dag­blöð og á mennta­skóla­ár­unum rak hann versl­un­ina Panopti­kon í Kaup­manna­höfn sem seldi 8mm kvik­myndir. Um níu ára skeið gaf hann út tíma­ritið Film­sam­leren.

Árið 1980 sam­þykkti rit­stjórn danska sjón­varps­ins hug­mynd Jakob Stegel­mann um viku­legan þátt, sem fékk heitið „Så er der tegnef­ilm“, 25 mín­útna langur þáttur með banda­rískum teikni­myndum. Þátt­ur­inn var sýndur á laug­ar­dags­kvöldum og naut frá upp­hafi mik­illa vin­sælda sem kom for­ráða­mönnum DR á óvart. „Så er der tegnef­ilm“ var á dag­skrá danska sjón­varps­ins þangað til Disney Sjov kom til sög­unnar árið 1991 Árið 1989 byrj­aði Jakob Stegel­mann með þátt, ætl­aðan börnum og ung­mennum, í danska sjón­varp­inu.

[adspot]

Í þætt­inum sem fékk heitið Trold­spej­let var fjallað um bók­menntir, tölvu­spil, kvik­myndir og fleira. Þegar rætt var við Jakob Stegel­mann, áður en fyrsti þátt­ur­inn fór í loftið, sagði sagð­ist hann hafa eitt mottó: stjórn­and­inn ætti ekki að spila á gítar og syngja, en það tíðk­að­ist mjög í sjón­varps­þáttum fyrir börn og ung­linga á þessum árum. Trold­spej­let er þriðji lang­lífasti þátt­ur­inn í dönsku sjón­varpi, heitir í dag Trold­spej­let & Co.

Fjölskyldustund og nammidagur

Fæsta hefur lík­lega grunað þegar Disney Sjov hóf göngu sína að þátt­ur­inn yrði einn lang­lífasti dag­skrár­liður í dönsku sjón­varpi og að klukku­tím­inn frá klukkan 19 til 20 á föstu­dögum yrði að eins­konar fjöl­skyldu­stund. Föstu­dagar höfðu lengi verið vin­sælir bíó­dagar, ekki síst hjá barna­fjöl­skyldum og með til­komu Disney Sjov færð­ust sýn­ing­arnar heim í stofu, bíóstólnum skipt út fyrir sófann í stof­unni.

En með flutn­ingnum úr bíóstólnum varð til það sem kall­ast fre­dags­slik. Sem sé að í stað þess að kaupa sæl­gæti í bíó­hús­inu var nú farið í búð­ina og gott­er­íið keypt þar. Föstu­dagsnam­mið varð nær órjúf­an­legur hluti þess að ung­viðið og hinir eldri sett­ust við „heima­alt­arið“ klukkan 19 á föstu­dögum. Sagn­fræð­ing­ur­inn Bettina Buhl, sem hefur lagt stund á rann­sóknir á mat­ar­venjum Dana, sagði í við­tali við danska útvarpið að sá siður að setj­ast við sjón­varpið á föstu­dags­kvöldum og „guffe i sig“ eins og hún komst að orði hefði fyrst náð almennri útbreiðslu eftir að Disney Sjov kom til sög­unnar.

Skrifari þessa pistils bjó um ára­bil í Kaup­manna­höfn og veitti því athygli að í stórri verslun í nágrenni heim­ilis hans var iðu­lega mikil ös við stóran nammi­bar­inn, eftir hádegi á föstu­dögum. Sölu­tölur sýna líka umtals­vert meiri sæl­gæt­is­sölu á föstu­dögum en aðra daga vik­unnar.

Mestu nammigrísir í heimi

Samkvæmt rann­sókn sem unnin var af sér­fræð­ingum við danska tækni­há­skól­ann DTU eru Danir mestu sæl­gæt­is­grísir í heimi. Danir borða 6,6 kíló af „slikk­eríi“ á ári. Slikkerí er þarna skil­greint sem sæl­gæti sem finna má í svoköll­uðum nammi­börum í versl­unum. Inni í þess­ari tölu er ekki súkkulaði, heima­bak­aðar kökur, kökur og sæt­indi í mötu­neytum eða í landamæra­búðum.

Í fyrstu kór­ónu­bylgj­unni vorið 2020 jókst sala á sæl­gæti um 40% og sala á gos­drykkjum jókst sömu­leiðis veru­lega. „Í kór­ónu­veirunni var dálít­ill föstu­dagur í sæl­gæt­inu alla daga,“ sagði kaup­maður sem danska útvarpið ræddi við. Sjón­varps­á­horf jókst sömu­leiðis umtals­vert.

Fredags Tam Tam í stað Disney Sjov

Fyrir nokkrum dögum var greint frá því á net­síðu danska útvarps­ins, DR, að um næstu ára­mót ljúki 31 árs sögu Disney Sjov. Við tekur, á sama tíma, milli klukkan 19 og 20 á föstu­dögum, þáttur sem ber heitið „Fredags Tam Tam“. Í þætt­inum sem fer í loftið 6. jan­úar 2023 verður fjöl­breytt efni víða að, ekki síst danskt og nor­rænt, eins og Morten Skov, yfir­maður barna-og ung­linga­efnis hjá danska sjón­varp­inu komst að orði „efni fyrir alla fjöl­skyld­una“.

Í könnun sem danska útvarpið gerði, meðal skóla­barna, kom í ljós að flestum fannst í lagi að breyta til en sögðu jafn­framt að það yrði að koma í ljós hvort þetta yrði jafn skemmti­legt og Disney Sjov. Morten Skov sagð­ist þess full­viss að breyt­ingin yrði til góðs „allt hefur sinn tíma, líka Disney Sjov“ sagði hann í við­tali fyrir nokkrum dögum.

[adspot]

Þess má í lokin geta að teikni­mynda­syrpan Disney Juleshow verður áfram á sínum stað í danska sjón­varp­inu 24. des­em­ber. Þessi syrpa var fyrst sýnd í danska sjón­varp­inu sem var sett saman árið 1958 var fyrst sýnd í danska sjón­varp­inu á þor­láks­messu­kvöld árið 1967 en hefur frá árinu 1991 verið sýnd á aðfanga­dag kl. 16. Að jafn­aði setj­ast rúm­lega 700 þús­und Danir sér þá í sófann en árið 2020 horfðu rúm­lega 1300 þús­und á þátt­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár