Ísland orðið rautt á korti Sóttvarnastofnunar Evrópu

Þrátt fyrir rauða lit­inn þýðir það ekki sjálf­krafa að Ísland sé komið á rauða lista ein­stakra ríkja, sam­kvæmt utan­rík­is­ráðu­neyt­inu. Litur Íslands er app­el­sínu­gulur á korti banda­rískra yfir­valda en grænn hjá breskum.

Nýuppfært kort Sóttvarnastofnunar Evrópu
Nýupp­fært kort Sótt­varna­stofn­unar Evrópu Mynd: ECDC

Ísland er orðið rautt á korti Sótt­varna­stofn­unar Evrópu (ECDC) um þróun kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins í álf­unni en kortið var upp­fært í dag. Lönd fá rauðan lit á kort­inu ef nýgengi smita er á bil­inu 200 til 500 en ef hlut­fall jákvæðra sýna af fjölda sýna er yfir fjögur pró­sent nægir nýgengi á bil­inu 75 til 200 til þess að fá rauðan lit.

Kort ECDC er upp­fært á fimmtu­dögum en stofn­unin styðst við gögn frá því á mið­nætti á þriðju­dags­kvöldi. Nýgengi smita hér inn­an­lands er nú 414,5 en á þriðju­dag var nýgengi inn­an­lands 378,2 inn­an­lands. Dökk­rauður litur er gef­inn þeim svæðum þar sem nýgengi er yfir 500.

Aðild­ar­ríki Evr­ópu­sam­bands­ins eru sér­stak­lega hvött til þess að beita sam­bæri­legum tak­mörk­unum á landa­mærum sínum sem taka mið af korti ECDC. Í sér­stökum til­mælum sam­bands­ins segir að aðild­ar­ríki skulu mæla gegn ferða­lögum til og frá rauðum svæðum og mæla harð­lega gegn ferða­lögum frá dökk­rauðum svæðum. Sé það talið nauð­syn­legt að beita aðgerðum á landa­mærum gagn­vart ferða­fólki frá svæðum sem ekki eru græn á kort­inu þá er mælt með því að fólk skuli sæta sótt­kví eða fara í skimun fyrir eða eftir brott­för. Það er þó í höndum hvers ríkis fyrir sig að ákveða hvaða tak­mark­anir gilda hverju sinni.

Reglur gagnvart íslensku ferðafólki breytast ekki endilega strax

Í færslu á Facebook-síðu utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins segir að reglur gagn­vart Íslandi breyt­ist ekki endi­lega strax. „Þó Ísland verði rautt á korti Sótt­varn­ar­stofn­unar Evrópu vegna COVID-19 í dag þýðir það ekki sjálf­krafa að Ísland sé komið á rauða lista ein­stakra ríkja eða að reglur gagn­vart Íslandi breyt­ist strax í dag. Mörg ríki styðj­ast við sínar eigin skil­grein­ingar og flokka og því er afar mik­il­vægt að kynna sér vel þær reglur sem gilda á áfanga­stað.“

Þar er einnig bent á að víða séu und­an­þágur í gildi fyrir bólu­setta. Á vef utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins má finna upp­lýs­ingar um gild­andi tak­mark­anir á helstu áfanga­stöðum Íslend­inga erlendis. Þar segir að sótt­varna­læknir ráð­leggi íbúum Íslands frá ferða­lögum á áhættu­svæði, sem í dag eru öll lönd og svæði heims nema Grænland.

Appelsínugul í Bandaríkjunum en græn í Bretlandi

Á korti Sótt­varna­stofn­unar Banda­ríkj­anna (CDC) sem upp­fært var á mánu­dag er Ísland app­el­sínugult, sem þýðir að hættu­stig vegna ferða­laga hingað til lands er metið hátt af stofn­un­inni. Á vef stofn­un­ar­innar eru ferða­menn hvattir til þess að ferð­ast ekki hingað til lands óbólu­settir. Ferðalög til Banda­ríkj­anna hafa verið miklum tak­mörk­unum háð um langa hríð og er ferða­bann í gildi gagn­vart rík­is­borg­urum Schengen-ríkj­anna. Þangað kemst því eng­inn án sér­stakrar und­an­þágu.

Á lista Bret­lands er Ísland enn grænt en sá listi var upp­færður í gær. Ferða­fólk frá grænum löndum sem hyggur á ferðir til Bret­lands þarf að for­skrá sig með því að fylla út sér­stakt eyðu­blað fyrir brott­för og taka COVID-próf áður en haldið er af stað. Þá þarf að taka COVID-próf aftur á öðrum degi eftir kom­una til Bret­lands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár