Start Up Reykjavík rúllar af stað í fjórða sinn

Startup Reykja­vík við­skipta­hrað­all­inn er nú far­inn af stað í fjórða sinn og hefur verið opnað fyrir umsóknir fyr­ir­tækja sem vilja taka þátt í vinn­unni í sumar. Mark­miðið með Startup Reykja­vík er að skapa umgjörð fyrir ung sprota­fyr­ir­tæki til að ýta hug­myndum sínum úr vör.

Umsókn­ar­frest­ur­inn er til 6. apríl næst­kom­andi og þá tekur dóm­nefnd við umsóknum og metur hvaða verk­efni eiga heima í Startup Reykja­vík í ár. Hægt er að sækja um hér.

https://www.youtube.com/watch?v=o07yb5ASJqU

Gert er ráð fyrir að opnuð verði vinnu­smiðja þegar umsókna­ferl­inu lýkur, þar sem dóm­nefndin fær tæki­færi til að kynn­ast verk­efn­unum betur. Að lokum verða valdar tíu hug­myndir sem fá tveggja milljón króna fjár­fest­ingu hver og njóta ráð­gjafar og leið­sagnar í sumar.

Fyr­ir­tækin sem valin verða fá svo aðgang að skrif­stofu­rými í tíu vikur í sumar, frá og með 15. júní til 28. ágúst þegar fjár­festa­dag­ur­inn svo­kall­aði er hald­inn. Þar kynna aðstendur verk­efn­anna fyr­ir­tækin sín fyrir fjár­festum.

Síðan við­skipta­hrað­all­inn var fyrst hald­inn árið 2012 hefur verið fjár­fest í 30 sprota­fyr­ir­tækjum. Arion Banki hefur alltaf lagt til hluta­féið og gerir það líka í ár, gegn 6 pró­sent eign­ar­hlut í fyr­ir­tækj­unum.

Allar nán­ari upp­lýs­ingar og umsókn­ar­eyðu­blöð má finna á startu­preykja­vik.com.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár