Pútín er enn óákveðinn um framboð

Forseti Rúss­lands seg­ist enn ekki hafa ákveðið hvort hann vilji gefa áfram kost á sér sem for­seti í kosn­ingum næsta vor.

Vladimír Pútín, forseti Rússlands.
Vladimír Pútín, for­seti Rúss­lands. Mynd: EPA

Vladimír Pútín, for­seti Rúss­lands, seg­ist enn ekki hafa ákveðið hvort hann ætli að sækj­ast eftir end­ur­kjöri í for­seta­kosn­ingum á næsta ári. Þó Pútín seg­ist vera óákveð­inn er hann af flestum tal­inn vera lík­leg­asti sig­ur­veg­ari kosn­ing­anna.

[links]

„Ég er á ekki aðeins eftir að ákveða hverjir fá að fara í fram­boð gegn mér, ég á einnig eftir að ákveða hvort ég fari í fram­boð yfir höfuð,“ er haft eftir Pútín á vef Reuters. Hann svar­aði spurn­ingum blaða­manna á orku­þingi í Moskvu.

Pútín sagði að þeir sem ætl­uðu að gefa kost á sér þyrftu ekki að til­kynna um fram­boð fyrr en í kringum mán­aða­mótin nóv­em­ber - des­em­ber.

Ef for­set­inn ákveður að gefa kost á sér telja flestir að hann muni sigra með yfir­burðum, enda muni eng­inn áreið­an­legur fram­bjóð­andi gefa kost á sér gegn sitj­andi for­seta.

[adspot]

Rúss­neskir dóm­stólar fang­elsuðu helsta stjórn­ar­and­stæð­ing Pútíns, Alexei Navalny, á mánu­dag og settu þess vegna áætl­anir Navalny um að taka þátt í kosn­inga­bar­átt­unni með gagn­rýnum hætti í upp­nám.

Navalny situr inni í 20 daga í þetta sinn, en það þýðir að hann getur ekki tekið þátt í fjölda­fundi í Sankti Pét­urs­borg, heima­borg Pútíns, á laug­ar­dag­inn afmæl­is­dag for­set­ans.

Jafnvel þó Navalny sé einn helsti gagn­rýn­andi Pútíns sýna skoð­ana­kann­anir að hann myndi tapa stórt í kosn­ingum gegn Pútín.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár