Viðurkennir að ýmislegt var gagnrýnisvert við hátíðarfundinn

Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, segir að hann telji enn að minn­ast eigi hátíð­ar­stunda í sögu Íslands. Hann við­ur­kennir þó að ýmis­legt sé gagn­rýn­is­vert við fund­inn sem hald­inn var á Þing­völlum í sumar.

„Ég fús­lega við­ur­kenni að það er ýmis­legt sem er gagn­rýn­is­vert í þessu, og ég kveinka mér ekk­ert undan því,“ segir Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, um hátíð­ar­fund­inn sem hald­inn var á Þing­völlum þann 18. júlí síð­ast­lið­inn. Þetta kom fram í við­tali Þórðar Snæs Júl­í­us­sonar, rit­stjóra Kjarnans, við hann í þætt­inum 21 á Hring­braut á fimmtu­dags­kvöld.

Hátið­ar­fund­ur­inn hefur verið mjög gagn­rýndur vegna ýmissa þátta. Fyrst vegna þess að Pia Kjærs­gaard, for­seti danska þings­ins, ávarp­aði fund­inn. Kjærs­gaard, og flokkur hennar Danski þjóð­ar­flokk­ur­inn, eru afar umdeild, sér­stak­lega vegna afstöðu þeirra gagn­vart fjöl­menn­ingu, inn­flytj­endum og íslam. Vera hennar á fund­inum varð til þess að þing­flokkur Pírata mætti ekki á hann og Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ingar, gekk út af honum á meðan að Kjærs­gaard tal­aði. Þá báru margir þing­menn barm­merki þar sem útlend­inga­andúð var hafnað.

Afar fáir lands­menn gerðu sér ferð á Þing­velli til að vera við­staddir fund­inn, og mun færri en búist hafi verið við.

Þegar kostn­aður við fund­ar­höldin var svo gerður upp kom í ljós að hann nam 87 millj­ónum króna, en upp­haf­lega hafði kostn­að­ar­á­ætlun hljóðað upp á 45 millj­ónir króna. Á meðal þess sem var harð­lega gagn­rýnt í end­an­legum kostn­aði var að lýs­ing fund­ar­ins hafi kostað 22 millj­ónir króna.

Aðspurður um hvort ofan­greint, og sú gagn­rýni sem hefur verið sett fram vegna þess, geri það að verkum að for­svar­an­legt sé að halda svona hátíð­ar­fund segir Stein­grímur að hann telji enn svo vera. „Við eigum að minn­ast hátíð­ar­stunda í okkar sögu. Mér finnst gott að Alþingi haldi tengslum sínum við Þingvöll, þetta er okkar forni og helgi þing­staður. Ég vil, ef eitt­hvað er, að Alþingi geri meira í því. Ég hef til dæmis varpað fram hug­myndum um að kannski ættum við að setja hvert nýtt þing að loknum kosn­ingum undir berum himni á Þing­völlum.“

Í þætt­inum ræðir Stein­grímur einnig meðal ann­ars ýmsar aðgerðir sem ráð­ist hefur verið í til að styrkja starf­semi Alþingis og traust­krísu stjórn­mál­anna. Hægt er að horfa á við­talið í heild hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár