Hundrað ára hús verði ekki sjálfkrafa aldursfriðuð

Til stendur að leggja fram frum­varp á þingi um að í stað þess að 100 ára hús verði sjálf­krafa ald­urs­friðuð verði fundið eitt­hvað nýtt ártal til þess að miða ald­urs­friðun húsa við. Ekki er ljóst hvaða ártal verður lagt til.

Í miðborg Reykjavíkur eru mörg gömul hús, sem þegar eru friðuð. Þar eru líka mörg steinsteypt hús sem eru að verða 100 ára og eiga kannski ekki endilega skilið að verða friðuð.
Í mið­borg Reykja­víkur eru mörg gömul hús, sem þegar eru friðuð. Þar eru líka mörg stein­steypt hús sem eru að verða 100 ára og eiga kannski ekki endi­lega skilið að verða friðuð. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Umhverfis-, orku- og loft­lags­ráðu­neytið hefur lagt fram í sam­ráðs­gátt stjórn­valda áform um að fella niður hina svoköll­uðu 100 ára reglu í tengslum við ald­urs­friðun húsa. Til stendur að leggja fram frum­varp til Alþingis þar sem lagt verður til að miða við eitt­hvað eitt, fast ártal, í stað þess að öll mann­virki sem ná 100 ára aldri verði sjálf­krafa ald­urs­friðuð.

Í skjali sem ráðu­neytið hefur birt í sam­ráðs­gátt­inni segir að stutt sé í ald­urs­friðun mik­ils fjölda stein­steyptra húsa og ann­arra mann­virkja bæði í þétt­býli og sveit, sem og inn­viða úr fjölda­fram­leiddum efni­við, til dæmis gadd­ar­vírs­girð­inga í sveitum lands­ins.

Ráðu­neytið segir að fágæti auki varð­veislu­gildi minja, en hið gagn­stæða dragi úr því. Ljóst sé að það sé hvorki „hægt né æski­legt að vernda allar menn­ing­arminjar og hús“ heldur sé þörf fag­legum rökum fyrir vernd, „ekki síst í ljósi þess að bygg­ing­ar­efni og verk­hættir breytt­ust all­nokkuð á þriðja ára­tug 20. aldar“. Ráðu­neytið segir að ef ekk­ert verði aðhafst muni fjöldi forn­leifa öðl­ast ald­urs­friðun, sem ekki er þörf á að vernda.

Álag á stjórnsýslu og tómur húsafriðunarsjóður

Einnig er því haldið til haga í plaggi ráðu­neyt­is­ins að með stór­auknum fjölda húsa og ann­arra mann­virkja sem yrðu friðuð á hverju ári myndi álag á stjórn­sýslu minja­mála aukast. Það er sagt geta „dregið úr getu til að fjalla á vand­aðan hátt um öll mál og til lengri tíma haft nei­kvæð áhrif á minjar með hátt varð­veislu­gildi sem sann­ar­lega þarf að vernda“. Auk þess er þess getið að fjár­hags­leg áhrif þess­ara breyt­inga á rík­is­sjóð verði senni­lega jákvæð til langs tíma litið, því ef engu yrði breytt myndi kostn­aður við stjórn­sýslu minja­mála stór­aukast.

[adspot]

Þá er fjallað um nei­kvæð áhrif á húsa­frið­un­ar­sjóð, sem er sér­stakur sjóður sem Minja­stofnun úthlutar úr til fram­kvæmda við friðuð hús. Á þessu ári var 300 millj­ónum króna úthlutað úr sjóðnum, en sótt var um fjór­falda þá upp­hæð í sjóð­inn, eða 1,2 millj­arða króna.

Ráðu­neytið segir í skjali sínu að ef það verði mikil fjölgun á ald­urs­frið­uðum húsum blasi við að húsa­frið­un­ar­sjóð­ur­inn muni ekki geta mætt slíkum fjölda, og verði ein­ungis fær um að styrkja lít­inn hluta þeirra húsa sem hlotið hafa ald­urs­friðun.

Sigmundur Davíð vildi miða við 1915

Sem áður segir er horft til þess að breyta ald­urs­frið­un­ar­á­kvæð­inu á þann hátt að í stað þess að minjar verði frið­aðar þegar þær verða 100 ára þá verði lög­fest til­tekið ártal sem verði miðað við.

Hugmynd að slíku til­teknu ártali er ekki lögð fram í skjali stjórn­valda, en til stendur að leggja fram drög að frum­varpi um málið í sam­ráðs­gátt og þá vænt­an­lega verður ein­hverju einu ártali varpað fram.

Umræða var um þessi mál árið 2015, er Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son var for­sæt­is­ráð­herra í rík­is­stjórn Fram­sóknar og Sjálf­stæð­is­flokks. Sig­mundur lagði þá fram til­lögu um sama og nú ert gert, að hætta að friða sjálf­krafa öll 100 ára gömul hús og horfa þess í stað til þess að öll hús sem byggð voru fyrir árið 1915 yrðu friðuð.

Hlaut það góðar und­ir­tektir hjá Magnúsi Skúla­syni, sem þá var for­maður húsa­frið­un­ar­nefndar, en í sam­tali við RÚV sagði hann að það væri orðið húsa­frið­un­ar­nefnd og Minja­stofnun ofviða að taka á móti jafn mörgum húsum til frið­unar og raun bæri vitni.

„Það þarf að vinsa þar úr ennþá meira. 1915-reglan er vel við­eig­andi vegna þess að þá lýkur timb­ur­húsa­öld í Reykja­vík, og við tekur svona stein­steypu­öldin, og það gildir nú fyrir allt landið reyndar,“ sagði Magnús, við frétta­stofu RÚV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár