Rætur Ísraelsríkis

Þegar deilur fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs eru til umræðu vofir sagan ávallt yfir eins og draugur. Um hana hafa verið rit­aðir margir bóka­flokkar, og ómögu­legt er að rekja hana hér að fullu, en gott er að hafa nokkur atriði á hreinu þó að stiklað sé á stóru.

Palestínskir flóttamenn árið 1948
Palest­ínskir flótta­menn árið 1948 Arabaríkin, sem eru grann­þjóðir Palest­ínu­manna, gerðu í þrí­gang inn­rás í hið nýstofn­aða ríki Ísraels, árin 1948, 1967 og 1973, og biðu lægri hlut í hvert sinn. Það leiddi til her­náms­ins og þegar upp var staðið hafði Ísrael í raun lagt undir sig 78% af því sem áður var Palest­ína. Mynd: Wikimedia Commons

Saga Gyðinga er árþús­unda löng saga ofsókna og útlegðar en síon­ismi er nútíma­fyr­ir­bæri sem á sér ekki síður ver­ald­legar en trú­ar­legar rætur. Samkvæmt trú­ar­ritum Gyðinga þurftu þeir frá upp­hafi að glíma við miklar ofsóknir sem Guðs útvalda þjóð. Þrátt fyrir að þeim hafi verið lofað landið Ísrael voru þeir ítrekað sendir í útlegð af stærri og vold­ugri þjóðum. 

Þeir misstu heima­land sitt end­an­lega, að því er virt­ist, árið 70 eftir Krists burð þegar Róm­verjar lögðu must­erið í Jer­úsalem í rúst. En þjóð­arsálin og trú­ar­vit­undin lifðu áfram góðu lífi þrátt fyrir að Gyðingar væru nú dreifðir um heim­inn og rót­lausir sem aldrei fyrr.

Rabbínar og spá­menn sögðu að sá dagur myndi renna upp að Gyðingar sneru aftur til heilaga lands­ins sem þeim var lofað og þá yrði must­erið end­ur­byggt í Jer­úsalem. Að margra mati myndi það þó ekki ger­ast fyrr en hinn sanni Messías, frels­ari Gyðinga, kæmi til jarðar …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár