Rétt að ráðherra fái svigrúm til mats við mönnun heils dómstóls

Formaður Dóm­ara­fé­lags Íslands telur rétt að ráð­herra hafi svig­rúm til mats í máli eins og Lands­rétt­ar­mál­inu. Annað mál sé hvernig staðið sé að því. Allir sem að mál­inu koma þurfi að hugsa sinn gang.

Skúli Magn­ús­son, for­maður Dóm­ara­fé­lags Íslands, segir að allir sem koma að skipan dóm­ara ættu að hugsa sinn gang eftir Lands­rétt­ar­málið. Þetta kom fram í við­tali við Skúla í kvöld­fréttum Stöðvar 2 í kvöld.

Skúli segir einnig að dóms­mála­ráð­herra ætti að hafa svig­rúm til mats þegar verið sé að skipa fimmtán nýja dóm­ara eins og nú var til­fellið. „Svo er það annað mál hvernig ráð­herra ber þá að standa að slíku frá­viki og hvort að þá mat ráð­herra getur talist ólög­mætt.“

Skúli bendir einnig á að nefndin hafi ítrekað verið gagn­rýnd fyrir að raða umsækj­endum of stíft upp á lista. „Kemst nefndin að þeirri nið­ur­stöðu að þarna standi 15 umsækj­endur framar öðrum þannig að ráð­herra hefur ekk­ert svig­rúm til mats. Þegar um er að ræða skipun 15 nýrra dóm­ara og það á að manna heilan dóm­stól frá grunni og þá hlýtur það óneit­an­lega að telj­ast umhugs­un­ar­efni,“ segir Skúli. Þegar verið sé að manna heilan nýjan dóm­stól komi fram ýmis sjón­ar­mið um fjöl­breyti­leika.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár