Þurfum við „sterka“ forystumenn?

Þegar áföll dynja yfir og trún­aður brestur er eðli­legt að fyrstu við­brögð hins vonsvikna séu reiði og æstar til­finn­ingar. En aldrei er eins nauð­syn­legt að leyfa yfir­vegun og skyn­semi að kom­ast að – eins fljótt og auðið er – og þegar heill þjóðar er í húfi. Þótt Íslend­ingum séu nú efst í huga mál­efni stjórn­mála­manna og breytni getum við ekki ýtt því til hliðar að fram undan er for­seta­kjör. Þessi grein geymir almennar hug­leið­ingar sem það varða. Hún var að mestu samin í mars. Óhjá­kvæmi­lega hefur hún tekið breyt­ingum eftir 3. apríl, þótt höf­undur hafi reynt að halda ró sinni.

Í mörgum löndum heims eru sterkir for­setar eða for­sæt­is­ráð­herrar, valda­miklir menn sem virð­ast lítt bundnir af stjórn­ar­skrám og lögum. Dæmi: Pútín og Erdogan. Til eru líka lönd eins og Banda­ríkin, þar sem for­set­inn fer með fram­kvæmda­valdið. Þar er aðskiln­aður lög­gjaf­ar­valds og fram­kvæmda­valds alger. Þannig tvö­falt kerfi er dýrt fyrir litlar þjóðir og getur verið lam­andi þegar ágrein­ingur er á milli for­seta og þings. Ýmsar milli­leiðir hafa vissu­lega verið farnar. Á fyrstu árunum eftir seinni heims­styrj­öld höfðu Finnar sterka for­seta sem fóru að miklu leyti með utan­rík­is­málin og sömdu við vold­ugan nágranna í kyrr­þey. Finnar gáfust upp á þessu og hafa nú svip­aðan hátt á og hér á landi. Þjóð­verjum hefur eftir stríð gef­ist vel að hafa valda­litla for­seta sem hafnir eru yfir dæg­ur­þras.

Reynslan sýnir að þeir sem fá mikil völd fara einatt að dýrka valdið – og sjálfa sig – og vilja meira. Einhvern veg­inn verður að setja þeirri vald­sókn skorður. Það gera góðar stjórn­ar­skrár. Nú lítur út fyrir að Ísland sé í alvar­legri stjórn­mála­legri kreppu, trún­að­ar­brestur hvert sem litið er. For­seta­kosn­ingar eru fram undan, og þá kann það að virð­ast freist­andi hugsun að við þurfum sterkan for­seta sem geti sett rík­is­stjórn stól­inn fyrir dyrnar. Ætli það sé rétt? Er ekki virkt þing­ræði í sam­virkni við mál­frelsi og virka frjása fjöl­miðlun besta vörnin? Lík­leg­asta leiðin til að hægt sé að leið­rétta þau mis­tök sem við kunnum að hafa gera á kjör­dögum?

Hvernig for­seta þurfum við þá? Fáir munu óska sér rúss­neska eða tyrk­neska fyr­ir­komu­lags­ins, en þó hafa heyrst raddir um að við þurfum sterkan for­seta, lík­lega eitt­hvað í ætt við Kekkonen sál­uga. Slíkar raddir heyr­ast gjarnan frá þeim sem bölva stjórn­mála­mönnum í sand og ösku og telja nauð­syn­legt að ein­hver geti sett þeim stól­inn fyrir dyrnar, finnst að þing­ræðið sé gjald­þrota. En jafn­vel úr hópi stjórn­mála­manna heyr­ast raddir um að mik­il­vægt sé að for­seti sé þjálf­aður í pólítísku tafli, geti t.d. ráðið nokkru um það hvernig rík­is­stjórn sé í land­inu. Það var, sýnd­ist mér, eitt af meg­in­at­riðum í grein sem Össur Skarp­héð­ins­son birti nýlega í Frétta­blað­inu. E.t.v. von­ast ein­hverjir til að í skjóli óskýrra stjórn­ar­skrár­á­kvæða geti snjallir for­setar gert emb­ættið sterkara og sterkara. En viljum við það? Viljum við að for­seti hafi völd sem erfitt er að hemja?

Lýðræði og þingræði

Þegar kos­inn er sterkur for­seti er einum manni falið mikið vald. Lýðræði með þing­bund­inni stjórn felur líka í sér framal valds, en því er dreift á ein­stak­linga og flokka. Nútíma­þjóð­fé­lagi verður ekki stjórnað vel og skyn­sam­lega nema vald sé fram­selt kjörnum full­trúum í tak­mark­aðan tíma. „Beint lýð­ræði“ þarf að eiga sér far­vegi oftar en á kjör­dag, en engin von er til að við getum öll sett okkur með full­nægj­andi hætti inn í mik­inn hluta þeirra mála sem þing þarf að afgreiða. Við almennir kjós­endur verðum að treysta full­trúum okkar fyrir valdi, en á þeim hvílir þung ábyrgð að sýna að þeir séu traustins verðir. Þingræði sem styðst við skil­virka stjórn­ar­skrá, rétt­látt kosn­inga­kerfi, trausta lög­gjöf og heil­brigðar stjórnar- og stjórn­sýslu­hefðir virð­ist vera besta stjórn­skipu­lag sem völ er á. Forseti sem mis­stígur sig getur setið sem fast­ast til loka kjör­tíma­bils, en for­sæt­is­ráð­herra og rík­is­stjórn eiga sína stöðu undir þing­inu og end­an­lega þjóð­inni sjálfri. Þingræði þarf auð­vitað að fylgja fullt mál­frelsi og virkt fjöl­miðla­frelsi. Gott dæmi um frjálsa fjöl­miðlun er rík­is­út­varp sem afhjúpar mis­fellur í stjórn­ar­fari; vesæl og gangs­laus er slík stofnun ef hún lætur stjórn­mála­menn þagga niður í sér.

Þótt fólk hafi einatt hörð orð um stjórn­mála­menn og stjórn­mála­flokka, er ekki hægt án þeirra að vera. Þjóð­ar­innar er að kjósa og veita aðhald með gagn­rýni. Árin frá stofnun lýð­veldis hafa fært okkur Íslend­ingum heim sann­inn um að lýð­ræðið er ekki fengið í eitt skipti fyrir öll. Það er verk­efni sem krefst stöðugrar árvekni og umræðu og verður að geta tekið bæði áföllum og sigrum. Lýð­ræðis­vit­und og sið­ferði lýð­ræð­is­ins verður að rækta með þjóð, og það tekur tíma. Stundum virð­ist fremur miða aftur en fram.

Forseti, þing og þjóð

Samráð, sam­ræða og átök á full­trúa­sam­komu er far­sælasta leið til að ráða fram úr felstum málum þjóðar, en ef ágrein­ingur er djúpur og skýr getur verið besta ráðið að leita til þjóð­ar­innar sjálfrar. Stjórn­ar­skrá og lög þurfa þá að skýra og skil­greina hvenær slíkt getur gerst, hvernig það fer fram og hvaða afleið­ingar nið­ur­staðan hefur. Fráleitt er að ein­stak­lingi sé falið geð­þótta­vald um þjóð­ar­at­kvæði. Meðan stjórn­ar­skráin vísar ekki veg­inn verður að gera þá kröfu til for­seta­fram­bjóð­enda, sem vilja verða teknir alvar­lega, að þeir geri skýra og skil­merki­lega grein fyrir því á hvaða for­sendum þeir telja að vísa megi lög­gjöf til þjóð­ar­at­kvæðis.

Bent hefur verið á að hlut­verk for­seta við stjórn­ar­mynd­anir muni breyt­ast nokkuð sam­kvæmt til­lögum stjórn­laga­ráðs. Grund­vall­ar­regla þing­ræð­is­ins mun þó áfram verða í gildi: Ekki verður mynduð önnur rík­is­stjórn en sú sem þingið vill sam­þykkja. Mestu skiptir að for­seti sé heið­ar­legur og óhlut­drægur þegar kemur til stjórn­ar­mynd­unar, njóti trausts allra flokka, en ólík­legt er að reynsla for­seta af klækjapóli­tík og vilji til að beita henni yrði þingi og þjóð til far­sældar.

Styrkur mýktarinnar

Engin ein fyr­ir­mynd getur ráðið vali þjóð­ar­innar á for­seta. Hver tími hefur sín við­mið, og óhjá­kvæmi­lega eru skoð­anir fólks skiptar. Við viljum þó vænt­an­lega öll for­seta sem sé heill í öllu sem hún eða hann segir og gerir, að for­set­inn sé góður og glæsi­legur full­trúi þjóð­ar­innar innan lands og utan, bæði fær um og lík­legur til að túlka mál­efni og menn­ingu þjóð­ar­innar af þekk­ingu, gjarnan af stolti en án oflætis. Ef þjóðin á í deilum á erlendum vett­vangi, sem for­seti tekur þátt í, er mik­il­vægt að for­seti og rík­is­stjórn tali einum munni. Sér­kenni­legt er að utan­rík­is­ráð­herra síð­ustu rík­is­stjórnar virð­ist telja það for­seta til tekna að hafa leynt og ljóst haldið fram annarri utan­rík­is­stefnu en rík­is­stjórnin hafði. Ætli starfs­menn utan­rík­is­þjón­ust­unnar hafi ekki haft nóg að gera að skýra fyrir stjórn­völdum ann­arra ríkja að for­set­inn réði ekki utan­rík­is­stefn­unni og gæti aðeins lýst per­sónu­legum skoð­unum sínum?

Sú mann­eskja sem við kjósum til for­seta þarf að hafa mik­inn þroska og fjöl­þætta reynslu, þótt sú reynsla geti verið fengin við ólík störf og aðstæður. Hún þarf að hafa sýnt getu til að fást við flókin við­fangs­efni og valda ábyrgð. Þjóðin þarf að vita eða geta kom­ist að raun um við hvaða gildi for­seta­fram­bjóð­andi hyggst miða störf sín. Þar nægja ekki yfir­lýs­ingar um áhuga á mál­efnum sem ekki eru á verk­sviði eða valdi for­set­ans.

Sann­ar­lega þarf for­seti að vera sterkur ein­stak­lingur, af því að hlut­verk­inu fylgir mikil ábyrgð. Forseti hefur áhrif með per­sónu­leika sínum, orðum og gerðum. En for­seti ætti ekki að ásæl­ast meiri völd en stjórn­ar­skrá og hefðir afmarka, og þau völd sem for­set­inn hefur verður að fara vel með. Vit­an­lega gerir það engan óhæfan að hafa starfað í stjórn­málum. En sá sem kemur úr þeirri átt þarf eins og aðrir að sann­færa kjós­endur um heil­indi sín og óhlut­drægni, um hæfni til að hefja sig yfir flokka­drætti. Forseti á að hvetja og sam­eina. Mýktin á að vera styrkur for­set­ans.

Höfundur er eldri borg­ari.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár