Skert aðgengi fyrir flóttafólk að íslensku menntakerfi

Af 82 flótta­mönnum sem tóku þátt í þarfa­grein­ingu Rauða kross­ins í Reykja­vík eru ein­ungis 5% í námi, en 43% eiga í erf­ið­leikum með að kom­ast í nám.

Flóttafólk mótmælti 13. febrúar síðastliðinn.
Flótta­fólk mót­mælti 13. febr­úar síð­ast­lið­inn. Mynd: Bára Huld Beck

Fimm pró­sent af þeim 82 flótta­mönnum sem tóku þátt í þarfa­grein­ingu Rauða kross­ins í Reykja­vík eru í námi hér á landi, en 43 pró­sent eiga í erf­ið­leikum með að kom­ast í nám. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Rauða kross­ins „Aðgengi flótta­fólks að menntun á Íslandi“ sem full­trúar sam­tak­anna afhentu Lilju Alfreðs­dóttur, mennta­mála­ráð­herra, í síð­ustu viku.

Í skýrsl­unni er farið yfir mögu­leika og hindr­anir sem flótta­fólk stendur frammi varð­andi nám á fram­halds­skóla- og háskóla­stigi á Íslandi.

Í frétt Rauða kross­ins um málið kemur fram að íslenskt mennta­kerfi skorti úrræði fyrir nem­endur með flótta­manna­bak­grunn, úrræði sem myndu gera þeim kleift að ljúka námi á því sviði sem hugur þeirra stendur til.

Ýmsar hindranir á veginum

Enn fremur segir að skortur á tungu­mála­þjálfun sé ein þeirra hind­r­ana sem flótta­menn standa frammi fyrir, auk skorts á til­tækum og aðgengi­legum upp­lýs­ingum um mennt­un­ar­mögu­leika. Fjár­hags­lega þröng staða og erf­ið­leikar með að fá fyrra nám metið komi einnig í veg fyrir að flótta­fólk geti menntað sig.

Þrátt fyrir að í lögum um fram­halds­skóla sé kveðið á um mót­töku­á­ætl­anir fyrir nem­endur með annað móð­ur­mál en íslensku, sýni könnun meðal fram­halds­skóla á höf­uð­borg­ar­svæð­inu – í nágrenni þess – að margir þeirra hafi ekki gert ráð­staf­anir varð­andi mót­töku og stuðn­ing við þessa nem­endur.

Sigrún Erla Egils­dóttir og Pimm Westra, verk­efna­stjórar flótta­manna­mála hjá sam­tök­unum segja að þau séu í dag­legum sam­skiptum við margt ungt flótta­fólk sem hefur mik­inn áhuga á að halda áfram sínu námi. En þar sem menntun sé ekki aðgengi­leg þessu unga fólki hér á landi segj­ast mörg þeirra upp­lifa sig föst í aðstæðum sem þau vilja ekki vera í og við það að missa alla von. „Þetta skerta aðgengi flótta­fólks að námi veldur því að íslenskt sam­fé­lag nýtir ekki til fulls mannauð þeirra og hæfi­leika.“

Hægt er að lesa skýrsl­una hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár