Ákvörðunin „vonbrigði í sjálfu sér“

Ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra sagði það skipta miklu máli að aðgerðir á landa­mærum væri stöðugt til end­ur­skoð­unar hjá stjórn­völdum. Hún sagði stjórn­völd vera heppin með sótt­varna­yf­ir­völd sem hjálpi til við ákvarð­ana­töku.

Þórdís Kolbrún Reykjförð Gylfadóttir á fundi í Safnahúsinu við Hverfisgötu fyrr í ár.
Þórdís Kolbrún Reykj­förð Gylfa­dóttir á fundi í Safna­hús­inu við Hverf­is­götu fyrr í ár. Mynd: Bára Huld Beck

„Þessi ákvörðun er auð­vitað von­brigði í sjálfu sér en hún er tekin vegna þess að veiran er í vexti í lönd­unum í kringum okkur,“ sagði Þórdís Kolbrún Reykj­förð Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, á upp­lýs­inga­fundi rík­is­stjórn­ar­innar sem hald­inn var í Safna­hús­inu við Hverf­is­götu í dag.[links]

Hún sagði hertar aðgerðir á landa­mær­unum vera inn­grip í ferða­frelsi, bæði ferða­frelsi gesta okkar sem og ferða­frelsi Íslend­inga. „Og í slíkum aðstæðum viljum við alls ekki fest­ast. Þannig að það skiptir miklu máli að við séum með þetta til stöðugrar end­ur­skoð­unar eins og við höfum verið mjög skýr með allan tím­ann. Þess vegna er mik­il­vægt að létta þá á þessum tak­mörk­unum þegar að aðstæður leyfa,“ sagði Þórdís.

Alþjóðleg viðskipti hluti af sjálfsmynd Íslendinga

Hún sagði und­ir­stöðu hag­sældar á Íslandi vera alþjóð­leg við­skipti og sterkar teng­ingar við eyríkið Ísland. Þar að auki væru alþjóð­leg við­skipti, sterkar sam­göngur, teng­ingar og tengsl vera stór partur af sjálfs­mynd Íslend­inga.

„En áfram eru per­sónu­bundnar og ein­stak­lings­bundnar sótt­varnir langöflug­asta tækið til að berja niður þessa veiru, það hefur ekki breyst. Og hertar aðgerðir á landa­mærum koma aldrei í stað­inn fyrir það. Við búum í mjög góðu sam­fé­lagi og við búum í sterku sam­fé­lagi. Og við erum heppin með það teymi sem að leiðir okkur í gegnum þennan þátt verk­efn­is­ins,“ sagði Þórdís Kolbrún á fund­inum.

Hún bætti því við að stjórn­völd væru heppin með sótt­varna­yf­ir­völd. „Þetta er risa­stórt verk­efni og það er alveg krist­al­tært að það erum við hér sem berum ábyrgð á þeim póli­tísku ákvörð­unum sem teknar eru en við erum heppin með það teymi sem að leiðir okkur í gegnum það og hjálpar okkur að taka þær ákvarð­anir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár