Alþingi samþykkir einróma lengra fæðingarorlof vegna andvana fæðinga

Báðir for­eldrar barna sem fæð­ast and­vana fá þriggja mán­aða fæð­ing­ar­or­lof frá og með deg­inum í dag. Alþingi sam­þykkti lög þess efnis með 45 ein­róma atkvæðum á þingi fyrr í dag.

Hingað til hafa for­eldrar átt sam­eig­in­legan rétt til þriggja mán­aða orlofs ef and­vana­fæð­ing á sér stað eftir 22 vikna með­göngu. Einróma stuðn­ingur var við það að lengja rétt for­eldra þannig að hvort um sig fá sjálf­stæðan rétt til þriggja mán­aða fæð­ing­ar­or­lofs. Gamla fyr­ir­komu­lagið hafi ekki veitt for­eldrum nægi­legt svig­rúm til þess að jafna sig eftir missi.

Frumvarp um breyt­ingar á lög­unum var lagt fram í haust í annað skipti, en Páll Valur Björns­son, þing­maður Bjartrar fram­tíðar, var fyrsti flutn­ings­maður þess. Auk hans voru flutn­ings­menn hinir fimm þing­menn Bjartrar fram­tíðar, Katrín Jak­obs­dóttir for­maður VG, Helgi Hrafn Gunn­ars­son kafteinn Pírata og Össur Skarp­héð­ins­son þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Í frum­varp­inu var gert ráð fyrir því að fæð­ing­ar­or­lofið yrði lengt í fullt fæð­ing­ar­or­lof, og var sagt að varla væri hægt að halda því fram að munur sé á því að eign­ast and­vana barn eða að missa barn skömmu eftir fæð­ingu. Ef barn deyr skömmu eftir fæð­ingu fá for­eldrar fullt fæð­ing­ar­or­lof, sem er þrír mán­uðir hvort for­eldri um sig og þrír mán­uðir sem eru sam­eig­in­legir. „Í báðum til­vikum þurfa for­eldr­arnir að takast á við sam­bæri­legt sorg­ar­ferli, til við­bótar því álagi sem fylgir fæð­ingu barns. Hið and­lega bata­ferli er af sama meiði hvort sem barnið lést í móð­ur­kviði eða stuttu eftir fæð­ingu,“ sagði í grein­ar­gerð með frum­varp­inu.

Við með­ferð máls­ins hjá vel­ferð­ar­nefnd sam­ein­að­ist öll nefndin um að gera breyt­ingar þannig að hvort for­eldri um sig fái þriggja mán­aða orlof. Nefndin féllst á að það væri ekki heppi­legt að það væri sex mán­aða munur á orlof­inu eftir því hvort barn deyr rétt fyrir eða eftir fæð­ingu.

Páll Valur Björns­son var einnig fyrsti flutn­ings­maður þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sem var sam­þykkt á þingi í dag, en hún kveður á um að 20. nóv­em­ber hvers árs verði helg­aður fræðslu um mann­rétt­indi barna í skólum lands­ins. Talið er að það sé eins­dæmi að tvö mál þing­manns minni­hluta fáist sam­þykkt á sama degi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár