Mynd: Heiða Helgadóttir

Alast upp í tveimur menningarheimum á Íslandi

„Ég á auðveldara með að tjá tilfinningar mínar á táknmáli,“ segir Aníta Arnars­dóttir, sextán ára mennta­skólanemi, sem á heyrnar­lausa foreldra. Stundin heimsótti hana og fjöl­skyldu hennar á dögunum og spjallaði við þau um raddmál og táknmál, menningar­heimana tvo sem Aníta og bræður hennar hafa alist upp í en þau heyra öll. Táknmál er móðurmál fjöl­skyldunnar og hundurinn á heimilinu skilur nokkur tákn.

Fyrir tæpum sextán árum, þegar Aníta var sex mánaða, heimsótti ég hana og foreldra hennar, þau Heiðdísi Dögg Eiríks­dóttur, hjúkrunar­fræðing og formann Félags heyrnar­lausra, og Arnar Ægisson bifvéla­virkja, sem nú starfar hjá Marel, til að taka viðtal við unga parið vegna heimildar­myndar sem var í smíðum um baráttu heyrnar­lausra á Íslandi fyrir bættum mann­réttindum. Heim­sóknin var eftir­minnileg. Þegar ég kom var Aníta litla sofandi úti í vagni en um hálftíma síðar byrjaði ljós á talstöð sem var á eldhús­borðinu að blikka en ég heyrði ekki barnsgrát. Arnar stóð upp þegar hann sá ljósið blikka og náði í Anítu. Á meðan spurði ég Heiðdísi hvort dóttirin væri alltaf svona róleg, hvort hún gréti ekki eins og flest börn þegar þau vakna eftir blund.

Heiðdís sagði að Aníta gréti oft eins og önnur börn en hún hafi verið fljót að læra að það væri nóg að kalla í þau með því …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár