Microsoft kaupir LinkedIn fyrir andvirði 3.200 milljarða króna

Tölvuris­inn Microsoft hefur keypt sam­fé­lags­mið­il­inn LinkedIn en samn­ingar hafa staðið yfir í nokkurn tíma.

Microsoft hefur keypt LinkedIn-sam­fé­lags­mið­il­inn fyrir 26,2 millj­arða doll­ara eða því sem nemur rúm­lega 3.200 millj­örðum íslenskra króna. Þetta mun vera stærsti við­skipta­samn­ingur sem Microsoft hefur gert. LinkedIn hefur 433 milljón not­endur og því mun umfang þessa sam­runa vera gríð­ar­legt.

Samkvæmt Reuters frétta­stof­unni mun þessi samn­ingur hjálpa Microsoft að halda tölvu­póst­forrit­inu Outlook gang­andi og koma í veg fyrir að fólk sæki enn frekar í Google-tölvu­póst­við­mótið. Að sama skapi mun LinkedIn færa út kví­arnar með því að fá aðgang að not­endum Office-við­skipta­hug­bún­að­ar­ins.

[adspot]

Satya Nadella fram­kvæmda­stjóri Microsoft segir í sam­tali við Reuters að samn­ing­arnir hafi verið í píp­unum lengi og að þeir muni koma sér vel fyrir not­endur þeirra.

Reid Hoffman, for­maður stjórnar LinkedIn, segir að hann hafi verið fylgj­andi samn­ingnum en Jeff Weiner mun halda starfi sínu sem fram­kvæmda­stjóri. LinkedIn verður áfram sjálf­stæð ein­ing þrátt fyrir þennan sam­runa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár